Erlent

Full­trúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín

Kjartan Kjartansson skrifar
Steve Witkoff, sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar, tekur í hönd „mannvinarins“ Vladímírs Pútín í Pétursborg í morgun. Hátt í fjögur hundruð óbreyttir borgarar féllu í rússneskum árásum á Úkraínu í september einum og sér.
Steve Witkoff, sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar, tekur í hönd „mannvinarins“ Vladímírs Pútín í Pétursborg í morgun. Hátt í fjögur hundruð óbreyttir borgarar féllu í rússneskum árásum á Úkraínu í september einum og sér. Vísir/EPA

Sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar hyllti Vladímír Pútín, forseta Rússlands, sem „mannvin“ á fundi þeirra í Pétursborg í dag. Bandaríkjastjórn hefur færst æ nær stjórnvöldum í Kreml á undanförnum dögum.

Steve Witkoff, sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar, flaug til fundar við Pútín í Pétursborg eftir að hann fundaði með Volodýmýr Selenskí, forseta Úkraínu, auk forseta Finnlands og forsætisráðherra Noregs í Osló í gær.

Á fundinum í dag lofaði Witkoff rússneska forsetann í hástert.

„Þú talar svo mikið um að forsetinn minn, Donald Trump, sé mannvinur. Þú ert líka mannvinur, herra, og ég fagna því, ég lofa þig og ég þakka þér aftur,“ sagði Witkoff við Pútín. Rússneskir ríkisfjölmiðlar birtu myndband af ummælunum á samfélagsmiðlum.

Trump’s special envoy Steve Witkoff to Vladimir Putin today: “You talk so much about Trump being a humanitarian, you are a humanitarian also, sir. And I salute that. I commend you.”

[image or embed]

— Ron Filipkowski (@ronfilipkowski.bsky.social) October 21, 2026 at 11:23 AM

Að minnsta kosti þrír félu í árásum Rússa á Kænugarð og Kharkiv í nótt. Sameinuðu þjóðirnar segja að 328 óbreyttir borgarar í það minnsta hafi fallið í árásum Pútíns á Úkraínu í september einum og sér.

Bandaríkjastjórn hefur á undanförnum dögum reynt að þvinga Úkraínumenn til þess að semja um frið við Rússa með ýmsum leiðum. Trump hefur þjarmað að Selenskí, sakað hann um að vilja ekki frið og sagt að Úkraínumenn ættu að velja sér nýjan forseta.

Bandaríski forsetinn, sem er gramur Úkraínumönnum fyrir að ráðast á olíuinnviði í Rússlandi, samdi jafnframt við Rússa um kaup á olíu í síðustu viku, nokkuð sem bandarískir ráðamenn hafa brýnt fyrir öðrum þjóðum að gera ekki. 

Þá hafa Bandaríkjamenn takmarkað aðgang Úkraínumanna að gervihnattagögnum og nettengingum sem hefur bitnað á vörnum þeirra gegn látlausum rússneskum árásum.

Trump sagði sjálfur að Pútín hefði komið vel fram í Úkraínu. Þau ummæli lét hann falla sama dag og Rússar drápu móður og eins árs gamalt barn hennar í árás á leikvöll í Kharkiv. Sex önnur börn létust í þeirri árás.

Vinna að viðskiptasamningum við Rússa

Witkoff hefur verið tíður gestur í Rússlandi, ásamt Jared Kushner, tengdasyni Trumps, en þeim hefur lítið orðið ágengt í því að koma á friði. Samhliða því hafa þeir rætt stóra viðskiptasamninga við Rússa. Þeir hafa bæði rætt samninga milli Bandaríkjanna og Rússlands og samninga fyrir hönd hóps fjárfesta frá Mið-Austurlöndum við Rússa.

Sá samningur snýr að kaupum fjárfestanna á erlendum eigum rússneska orkufyrirtækisins Lukoil. Þar á meðal eru olíuvinnslur í Austur-Evrópu.

Bandaríska ríkið myndi einnig eignast um fimmtán prósent í þessum eigum en fjárfestahópurinn er leiddur af bandaríska auðjöfrinum Todd Boehly, sem hefur gefið að minnsta kosti tvær milljónir dala í sjóði Trumps á undanförnum árum. Hann myndi eignast smáan hlut í eigunum.

Fjárfestarnir frá Mið-Austurlöndum myndu eignast meira en helminginn.

Meðal fjárfestanna eru félög í eigu konungsfjölskyldu Sameinuðu arabísku furstadæmanna og tveir bræður frá Katar sem hafa átt í töluverðum viðskiptum við Kushner og Ivönku Trump, eiginkonu hans og dóttur Trumps.

Þá er sjeikinn Tahnoon bin Zayed Al Nahyan einnig einn af fjárfestunum. Hann tilheyrir áðurnefndri konungsfjölskyldu og á fyrir í viðskiptum við bæði Kushner og Witkoff, auk þess að eiga í viðskiptum við syni Donalds Trump.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×