
Úkraína

Hafa rænt úkraínskum börnum í massavís
Yfirvöld í Rússlandi hafa rænt fjölmörgum úkraínskum börnum frá yfirráðasvæðum þeirra í Úkraínu og ættleitt þau til fólks í Rússlandi. Meðal annars hefur verið logið að börnunum að úkraínskir foreldrar þeirra vilji þau ekki.

Flóttamenn frá Kherson komnir til Rússlands
Flóttamenn frá Kherson héraðinu í suðurhluta Úkraínu eru farnir að koma til Rússlands eftir að leppstjórn Rússa í héraðinu hvatti íbúa til að flýja öryggis síns vegna. Sérfræðingar segja þetta benda til þess að heljartak Rússa á héraðinu sé farið að linast.

„Innlimaði“ bílastæði rússneska ræðismannsins
Finnskur karlmaður tók sig til og „innlimaði“ bílastæði rússneska ræðismannsins í Turku fyrir hönd Úkraínu í gær. Hann segir innlimunina í samræmi við úrslit eins manns þjóðaratkvæðagreiðslu sem hann hélt sjálfur í anda þeirra sem fóru fram á vegum leppstjórna Rússa í Úkraínu nýlega.

Endalaus hryllingur
Úkraínska þjóðin berst af mikilli hörku, dugnaði og þrautseigju fyrir lífi sínu og frelsi sínu. Hræðilegar árásir Rússa á Úkraínu ekki bara á hernaðarmannvirki heldur á almennaborgara, verslunarmiðstöðvar, sjúkrahús og leikvelli sýnir meiri grimmd og hrylling en hægt væri að ímynda sér.

Sprengjum rignir enn yfir borgir Úkraínu
Ráðamenn í Kænugarði segja að það muni taka nokkrar vikur að gera að fullu við orkuver og dreifikerfi Úkraínu eftir umfangsmiklar árásir á innviði landsins í vikunni. Um þriðjungur rafmagnsinnviða landsins er sagður hafa orðið fyrir skemmdum og rafmagnsleysi er víða.

Úkraína fær háþróuð loftvarnarkerfi frá bandamönnum
Bandamenn Úkraínu í NATO munu senda úkraínska hernum aukinn og háþróaðan herbúnað til að efla loftvarnarbúnað hersins. Ástæðan er aukning í eldflaugaárásum Rússa á skotmörk ú Úkraínu.

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Þagga niður í óánægjuröddum með árásum á óbreytta borgara
Litlar breytingar hafa orðið á víglínunum í Úkraínu síðustu daga, eða síðan Úkraínumenn náðu töluverðum og hröðum árangri í bæði suðurhluta og austurhluta landsins. Harðir bardagar eru sagðir hafa átt sér stað víðsvegar í landinu þar sem Rússar eru sagðir hafa gert gagnárás gegn Úkraínumönnum í austri og Úkraínumenn eru sagðir hafa frelsað nokkur þorp í Kherson-héraði.

Segir Pútín sýna rökhugsun en hafa stórkostlega misreiknað stöðuna í Úkraínu
Joe Biden Bandaríkjaforseti segir Vladimir Pútín Rússlandsforseta sýna rökhugsun en hann hafi hins vegar stórkostlega misreiknað þegar hann ákvað að ráðast inn í Úkraínu. Þá segir forsetinn hótanir Rússa um notkun kjarnorkuvopna mögulega geta leitt til hörmulegra mistaka.

Rússneska leyniþjónustan handtekur átta vegna sprengingarinnar á Kerch brú
Rússneska leyniþjónustan FSB hefur handtekið fimm Rússa og þrjá úkraínska- og/eða armenska ríkisborgara vegna sprengingarinnar á Kerch brúnni á laugardag. Brúin skemmdist allnokkuð í sprenginunni en hluti hennar féll í Kerch sundið.

Hættur að versla við KS vegna stríðsins
Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segist vera hættur að versla við veitingastaði og afþreyingastaði sem eru í eigu Kaupfélags Skagfirðinga (KS). Ástæðan er sú að starfsmaður kaupfélagsins er heiðurskonsúll Rússlands á Íslandi. Konsúllinn segist ekki sinna þeim störfum fyrir hönd KS.

Úkraínuforseti segir árásir Rússa sameina þjóðina
Forseti Úkraínu segir að Rússum muni ekki takast að hræða Úkraínumenn til undirgefni með eldflaugaárásum á saklausan almenning og innviði samfélagsins. Árásirnar herði andstöðuna við innrás Rússa og sameini þjóðina enn frekar.

Stríðshaukar í Kreml krefjast skæðari árása í Úkraínu
Embættismenn og stuðningsmenn stríðsreksturs Rússa í Úkraínu hafa fagnað mannskæðum árásum um alla Úkraínu í gær. Rússneski herinn hefur undanfarnar vikur verið harðlega gagnrýndur af hópi manna í Kreml vegna þess hve honum hefur gengið illa á vígvellinum undanfarnar vikur.

Minnst fimmtán sprengjur féllu í Zaporizhzhia í nótt
Minnst fimmtán sprengjur féllu í borginni Zaporizhzhia í suðurhluta Úkraínu í nótt. Að sögn varautanríkisráðherra landsins var sprengjunum beint að íbúðabyggingum, menntastofnunum og sjúkrahúsum.

Bandaríkjamenn aðstoða Úkraínu við loftvarnir
Bandaríkjaforseti fordæmir eldflaugaárásir Rússa sem fram fóru í dag. Bandaríkjamenn halda áfram stuðningi og hyggjast gefa Úkraínumönnum háþróuð loftvarnarkerfi.

Vesturlönd þurfi að bregðast við: „Það er strategískt verið að ráðast á saklausa borgara“
Utanríkisráðherra segir árásir Rússa á úkraínskar borgir í morgun skýrt dæmi um að átökin séu að stigmagnast. Ljóst sé að Rússar hafi gerst sekir um stríðsglæpi með árásum á almenna borgara. Vesturlöndin þurfi að bregðast við en fórnarkostnaður þeirra sé sáralítill í samanburði við það sem úkraínska þjóðin sé að ganga í gegnum.

Sama tilfinning og þegar innrásin hófst
Úkraínumenn og hópur Rússa á Íslandi fordæma eldflaugaárásir Rússlands á borgir í Úkraínu. Blásið var til mótmæla fyrir utan sendiráð Rússlands á Íslandi í dag og lýstu mótmælendur yfir samstöðu með Úkraínumönnum. Skipuleggjandi mótmælanna segir tilfinninguna þá sömu og þegar innrásin hófst.

Evrópusambandið framlengir vernd yfir Úkraínumönnum á flótta
Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen lýsti fyrr í dag yfir andúð sinni vegna sprenginga Rússa í Úkraínu í morgun. Framkvæmdastjórnin hefur nú búið til gagnagrunn sem gerir þeim sem eru á flótta vegna stríðsins aukinn möguleika á því að finna sér vinnu. Einnig verði vernd yfir Úkraínumönnum á flótta endurnýjuð til ársins 2024.

Alþjóðasamfélagið lýsir yfir andúð sinni og segir árásina stríðsglæp
Að minnsta kosti 11 eru látin og 64 særð eftir sprengingar Rússa í Úkraínu nú í morgun. Vladímír Pútín forseti Rússlands segir árásunum hafa verið beint að innviðum Úkraínu en það hafi verið gert til að svara sprengingar við Kertsj-brúna. Alþjóðasamfélagið hefur kallað aðgerðirnar stríðsglæp.

Pútín og Selenskí saka hvor annan um hryðjuverk á víxl
Sprengingar skóku Kænugarð og fleiri borgir í Úkraínu í morgun þar sem Rússar svöruðu fyrir árásina á Kerch brúna um helgina. Vólódimír Selenskí og Vladimír Putín saka hvor annan um hryðjuverk á víxl en Evrópusambandið hefur fordæmt árásirnar og leiðtogar G7 ríkjanna funda með Selenskí á morgun.

„Þeir reyna að tortíma okkur og þurrka út af yfirborði jarðar“
Sprengjuárásir rússneska hersins á Kænugarð og fleiri úkraínskar borgir í morgun sýna fram á að Rússar séu að reyna að tortíma Úkraínumönnum og þurrka þeim út af yfirborði jarðar.

Árásir á óbreytta borgara skelfilegar
Vladímír Pútín, forseti Rússlands segir árásir morgunsins hafa verið svar Rússa við árásinni á Kertsj-brúna. Árásinni hafi verið beint að samskipta-, orku- og hernaðarinnviðum Úkraínumanna.

Senda kafara til að kanna skemmdir á Kerch brúnni
Rússar hyggjast senda kafara til að kanna skemmdir á Kerch brúnni í dag. Brúin varð fyrir kraftmikilli sprengingu í gærmorgun og hluti hennar féll í sundið. Brúin er sögð táknmynd hernáms Rússa á Krímskaga en hún tengir skagann viðmeginland Rússlands og er mikilvæg birgðaflutningaleið fyrir Rússa.

Stressuð að byrja í íslenskum skóla
Hin fimmtán ára Yeva frá Úkraínu kveðst stressuð fyrir því að byrja í íslenskum skóla. Hún byrjar á mánudaginn og bindur vonir við að skólagangan verði góð. Úkraínumenn á Íslandi blésu í dag til hátíðar í Kolaportinu í Reykjavík í þakkarskyni fyrir góðar móttökur og stuðning Íslendinga.

Óskaði Pútín til hamingju með afmælið eftir sprenginguna
Háttsettur embættismaður í Úkraínu birti mynd af sprengingunni á Kerch brúnni sem varð fyrr í morgun og óskaði Rússlandsforseta til hamingju með afmælið. Úkraínumenn hafa ekki lýst formlega yfir ábyrgð en sprengingin er sögð mikið högg fyrir Rússa.

Rússar segja þrjá hafa dáið í sprengingunni á Kerch brú
Rússnesk yfirvöld halda því fram að þrír hafi dáið þegar sendiferðarbíll sprakk í loft upp á brúnni yfir Kerch sund í nótt, brúnni sem tengir Rússland við Krímskaga. Hluti brúarinnar féll í sprengingunni og hefur annar hluti staðið í ljósum logum síðan sprengingin varð.

Sjálfsvígsheimsvaldastefna Kremlar
Eins fráleit og hún var, þá var ekkert sem kom á óvart í ræðunni sem Pútín hélt í tilefni innlimunar úkraínsku landsvæðanna. Á undanförnum vikum hefur Rússland orðið fyrir hverju öðru, hernaðarlegu áfallinu í norðaustur Úkraínu. Að sýna veikleika er óhugsandi í huga Pútín og þar af leiðandi bætir hann upp dapurt gengi á vígvellinum með sífellt meira ógnandi málflutningi.

Brúin sem tengir Rússland við Krím stendur í ljósum logum
Kerch brúin sem tengir Rússland við Krímskagann í Úkraínu stendur í ljósum logum eftir að gríðarstór sprenging varð fyrr í morgun. Brúin er sögð táknmynd hernáms Rússa á Krímskaga og hötuð af Úkraínumönnum.

Eurovision fer fram í Liverpool á næsta ári
Breska borgin Liverpool mun hýsa 67. Eurovision-söngvakeppnina fyrir hönd Úkraínu á næsta ári. Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) greindi frá þessu í dag en áður hafði komið fram að valið stæði milli Glasgow og Bítlaborgarinnar.

Einangraður einræðisherra sjötugur í dag
Lík fimm hundruð þrjátíu og fjögurra, þar af nítján barna, hafa fundist í fjöldagröf á nýfrelsuðum svæðum í Kharkiv héraði í Úkraínu. Einnig hafa fundist rúmlega tuttugu staðir þar sem greinilegt er að rússneska hernámsliðið hafði stundað pyndingar á fólki. Leiðtogar Evrópusambandsins ræddu orkukreppu Evrópu vegna stríðsins í dag.

Lausir úr skotgröfunum og vilja ekki leyfa Rússum að ná áttum
Eftir að hafa að mestu setið fastir í skotgröfum um mánaða skeið meðan Rússar létu sprengjum rigna yfir þá, keppast úkraínskir hermenn nú við að gera gagnárásir á Rússa. Þeim hefur nokkrum sinnum tekist að stökkva Rússum á flótta sem á undanhaldinu hafa skilið eftir sig mikið magn þungavopna og annarra hergagna sem Úkraínumenn hafa notað í átökunum.