
HM 2015 í Katar

Vignir: Vissi ekki að Frakkland væri næst
Segir að dómgæsla í handbolta geti alltaf haft áhrif á úrslit leikja.

Ísland á fjóra þjálfara sem eru á toppnum í Evrópu
Sérfræðingi TV2 í Danmörku finnst stórmerkilegt hvernig jafn lítil þjóð og Íslandi geti haft svona mikil áhrif á handboltaheiminn.

Dagur: Gaman að geta strítt Gumma
Það verður stór stund í sögu íslensks handbolta þegar tvö af stærstu handboltaveldum heims, Þýskaland og Danmörk, mætast á Heimsmeistaramótinu í handbolta í Katar í kvöld. Bæði lið eru þjálfuð af Íslendingum.

Alexander: Betra að mæta Frökkum heldur en Alsír eða Egyptum
Alexander Petersson segir að Aron Pálmarsson geri alla betri í kringum sig.

Patrekur: Það voru allir blóðugir hjá mér í hálfleik
Austurríki og Túnis gerðu jafntefli í æsispennandi leik í C-riðli á HM. Patrekur Jóhannesson ræddi við Vísi eftir leik.

Gunnar Magg: Frakkar með frábært lið en alls ekki ósigrandi
Gunnar Magnússon aðstoðarþjálfari landsliðsins gegnir þýðingarmiklu hlutverki í liðinu. Hann situr lengi fram eftir nóttu við að klippa myndir úr leikjum. Hann býr yfir mikilli þekkingu á næsta mótherja. En hversu góðir eru Frakkar?

Lærisveinar Patreks fengu stig gegn Túnis
Austurríki í þriðja sæti B-riðils eftir jafntefli í æsispennandi leik.

Ásgeir Örn: Frakkarnir eru ekki bara góðir handbolta heldur líka flottir gæjar
Íslenski landsliðsmaðurinn Ásgeir Örn Hallgrímsson þekkir fjölmarga leikmenn sem spila í franska liðinu eftir dvöl sína í Frakklandi. Hann eins og félagar hans í íslenska landsliðinu bíður spenntur eftir leiknum við Frakka annað kvöld.

Kúbumaðurinn í liði Katar skaut Slóvena í kaf
Heimamenn með fullt hús í A-riðli ásamt heimsmeisturnum eftir frábæran sigur.

Aron: Við Einar máttum við því að missa nokkur kíló
Aron Kristjánsson og Einar Þorvarðarson fengu báðir magapest fyrir leikinn gegn Alsír í gær.

Aron Rafn: Gaui er búinn að tala um að hann geti þetta ennþá
Markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson stóð sig mjög vel þegar hann kom inná í leiknum gegn Alsír í gær. Hann varði 6 af 9 skotum á lokakaflanum þegar Íslendingar náðu að sigla sigrinum í höfn. Aron Rafn bíður spenntur eftir leiknum við Frakka en Arnar Björnsson hitti á hann í dag.

Þriðja tap Hvít-Rússa í röð
Brasilíumenn hafa verið að bíta frá sér í fyrstu tveimur leikjum sínum á HM í handbolta en fagnaði loksins fyrsta sigrinum í dag þegar brasilíska liðið vann fimm marka sigur á Hvít-Rússum, 34-29.

Spánverjar áttu sex markahæstu leikmenn vallarins
Heimsmeistarar Spánverjar áttu ekki í miklum vandræðum með að vinna Síle í fyrsta leik dagsins á Heimsmeistaramótinu í handbolta í Katar en spænska liðið vann á endanum 21 marks sigur, 37-16.

Snorri Steinn með tvöfalt tímamótamark á móti Alsír
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sögulegt mark fyrir íslenska handboltalandsliðið í sigurleiknum á móti Alsír á HM í handbolta í gær. Fyrra mark Snorra í leiknum var nefnilega tvöfalt tímamótamark.

Júlíus Jónasar í HM-kvöldi: Menn þurfa að vinna meira saman í vörninni
Hörður Magnússon, Guðjón Guðmundsson og Júlíus Jónassonar fóru yfir varnarleik íslenska liðsins á móti Alsír í HM-kvöldinu í gær en Ísland vann átta marka sigur á Alsíringum í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í Katar.

HM-Handvarpið: Íslenskur úrslitaleikur í Katar?
Hlustaðu á annan þátt hlaðvarps Vísis um heimsmeistaramótið í handbolta.

Eitt af fimm heimsmeistaramótum í Katar fyrir HM í fótbolta 2022 | Myndband
Arnar Björnsson, íþróttafréttamaður 365, er staddur úti í Katar á heimsmeistaramótinu en hann skoðaði sig um í Katar og fór yfir það af hverju HM í handbolta fer fram í Katar í ár.

Bara tvö lið með fleiri skot en Ísland í stöng eða slá
Norður-Afríkuþjóðirnar Túnis og Alsír eru þær einu á HM í handbolta í Katar sem hafa slegið við íslenska landsliðinu í skotum í slá eða stöng á mörkum andstæðinganna.

Arnór: Sumir of fljótir að afskrifa Seattle
Það eru miklir áhugamenn um NFL-deildina í íslenska landsliðinu.

Guðjón Valur: Vonandi tökum við enn eitt skref í rétta átt á morgun
Arnar Björnsson hitti landsliðsfyrirliðann Guðjón Val Sigurðsson í dag og þeir ræddu saman um leikinn við Frakkland á HM í handbolta á morgun. Þetta er þriðji leikur íslenska liðsins á heimsmeistaramótinu.

Guðmundur: Ég tek nú ekki þátt í sálfræðistríði við Dag
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins í handbolta, var ögn brosmildari eftir tuttugu marka sigur á Sádi Aröbum á HM í handbolta í Katar en eftir jafnteflisleikinn við Argentínu.

Aron með flestar stoðsendingar á HM til þessa
Aron Pálmarsson er efstur í stoðsendingum hjá mótshöldurum eftir tvær fyrstu umferðirnar á HM í handbolta í Katar og hann er jafnframt í 3. sæti yfir þá sem hafa átt þátt í flestum mörkum.

Káta kylfinginn í landsliðið
Ísland er komið af stað á HM í handbolta þrátt fyrir pínlega byrjun gegn Alsír í gær. Strákarnir unnu sín fyrstu stig á mótinu en fyrirliðinn segir deginum ljósara hvað þurfi að gera til að ná árangri í Katar.

Arnór hefur ekki áhyggjur af lærinu
Arnór Þór Gunnarsson fékk þungt högg framan á hægra lærið í leiknum gegn Alsír í gær og var hann nokkra stund að hrista það af sér. Hann hefur þó ekki áhyggjur af því að það muni há honum í keppninni.

Gaupi í HM-kvöldi: Alexander var of spenntur
Guðjón Guðmundsson og Júlíus Jónasson voru gestir Harðar Magnússonar í HM-kvöldi á Stöð 2 Sport 3 í kvöld þar sem þeir fóru yfir leik Íslands og Alsír á HM í Katar.

Einar Rifill og dætur sóttar heim | Myndband
Einar Guðlaugsson, eða Rifilinn eins og hann er oft kallaður, er einn helsti stuðningsmaður íslenska landsliðsins í handbolta en hann hefur fylgt því á mörg stórmót.

Stórsigur hjá Dönum | Svíar líta vel út
Þremur leikjum er nýlokið á HM í handbolta í Katar.

Einkunnir Gaupa: Aron Pálmarsson bestur
Eftir hvern leik íslenska liðsins mun Guðjón Guðmundsson, handboltasérfræðingur Stöðvar 2 Sports, gefa leikmönnum og þjálfaranum einkunnir.

Aron Kristjánsson: Færanýtingin var að drepa okkur
Landsliðsþjálfarinn segir að það hafi verið lykilatriði gegn Alsír að halda rónni þrátt fyrir mótlætið.

Umfjöllun: Þýskur sigur í hörkuleik
Dagur Sigurðsson og drengir hans í þýska landsliðinu mættu grjóthörðum Rússum í Lusail í dag.