Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020

Kjörsókn aldrei meiri
Kjörsókn í bandarískum forsetakosningum hefur aldrei verið meiri. Miklar raðir mynduðust við kjörstaði og þurftu sumir kjósendur að bíða í um níu klukkustundir. Talið er að allt að 120 milljónir kjósenda hafi nýtt sér kosningarétt sinn, sem er jafnmikið eða meira hlutfallslega en á metárinu 1960.
271 öruggur og líklegur kjörmaður
George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur tryggt sér 193 kjörmenn samkvæmt samantekt AP-fréttastofunnar og leiðir í ríkjum þar sem barist er um 78 kjörmenn. Samkvæmt þessu er hann með 271 öruggan og líklegan kjörmann og því á leið með að fá einum kjörmanni fleira en þarf til að tryggja sér sigur.

Víða kosið fram yfir lokunartíma
Í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna, þeirra á meðal Flórída, Ohio og Pennsylvaníu er fólk enn að kjósa þrátt fyrir að kjörstaðir hafi átt að loka fyrir 45 og 75 mínútum síðan. Ástæðan er sú að langar biðraðir eru við kjörstaði, reglur kveða á um að þeir sem komnir eru í röð fái að kjósa og því getur verið að kjörstaðir loki nokkrum klukkutímum of seint

Breytingum hafnað í Colorado
Kjósendur í Colorado höfnuðu tillögu um að breyta úthlutun kjörmanna ríkisins. Lagt var til að kjörmönnunum yrði úthlutað í samræmi við atkvæðahlutfall frambjóðenda en nú fær sigurvegarinn í ríkinu alla níu kjörmenn ríkisins, sem er sama fyrirkomulag og í öllum nema tveimur ríkjum Bandaríkjanna.

Halda meirihluta á þingi
Repúblikanar héldu meirihluta sínum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fimmtu kosningarnar í röð og juku reyndar við meirihlutann því þeir unnu fjögur sæti í Texas á kostnað demókrata. Þetta er í fyrsta sinn í meira en 70 ár sem repúblikanar eru í meirihluta í fulltrúadeildinni tólf ár í röð.</font />

Fox og NBC spá Bush sigri í Ohio
Tvær sjónvarpsstöðvar, Fox og NBC hafa spáð George W. Bush sigri í Ohio. Aðrir fjölmiðlar hafa ekki gert það sama. Mjög hefur dregið saman með Bush og Kerry í ríkinu, framan af var Bush með fimm prósentustiga forskot en það er komið niður í tvö prósent samkvæmt nýjustu tölum þegar 87 prósent atkvæða hafa verið talin.

Bush hugsanlega búinn að sigra
Bush er hugsanlega búinn að tryggja sér sigur í forsetakosningunum. Samkvæmt samantekt AP er hann búinn að tryggja sér sigur í átján ríkjum með 170 kjördæmum og leiðir í ríkjum með 106 kjörmenn. Gangi þetta eftir er hann kominn með 276 kjörmenn en hann þarf 270 til að tryggja sér endurkjör.

Meiri foringi en margur hyggur
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir sigur George W. Bush í forsetakosningunum í Bandaríkjunum virðast mjög afgerandi. "Ég tel að þetta sé mikið afrek hjá honum og sýni að hann er meiri foringi en margur hyggur, sérstaklega í Evrópu," segir hann.
Fjölmiðlar hafa varann á sér
"Við viljum frekar vera síðust en að hafa rangt fyrir okkur," sagði Dan Rather hjá CBS og endurómaði þar þankagang margra sem vilja öðru fremur forðast að gera sömu mistök og fyrir fjórum árum þegar sjónvarpsstöðvarnar lýstu yfir sigri George W. Bush þegar raunin var sú að staðan var enn of jöfn til að hægt væri að spá fyrir um úrslit.

Biðin gæti varað í vikur
Úrslit eru ekki ráðin í forsetakosningunum í Bandaríkjunum en George Bush hefur hlotið meirihluta talinna atkvæða. Það gæti hins vegar tekið marga daga, jafnvel nokkrar vikur, að telja bráðabirgðaatkvæðin í Ohio þar sem úrslitin ráðast. Ingólfur Bjarni Sigfússon er í Washington og hefur fylgst með talningunni í alla nótt.

Bush 24 kjörmönnum frá endurkjöri
George W. Bush er kominn með 246 kjörmenn eftir að hafa tryggt sér sigur í Colorado samvæmt spám bandarískra fjölmiðla. John Kerry er með 195 kjörmenn og þarf að bæta við sig 75 kjörmönnum meðan Bush dugar 24 í viðbót við þá sem hann virðist þegar hafa tryggt sér. Heldur hefur dregið saman með Bush og Kerry í Ohio.

99 kjörmönnum frá endurkjöri
George W. Bush hefur tryggt sér sigur í Louisiana og Mississippi samkvæmt þeim atkvæðum sem hafa þegar verið talin. Hann er því kominn með 171 kjörmann og þarf aðeins 99 til viðbótar til að tryggja sér endurkjör. Sigur hans í ríkjunum tveimur er í samræmi við skoðanakannanir sem birtust fyrir kosningar.

Siðferðismál réðu miklu um úrslit
Áhersla George W. Bush á siðferðismál og baráttu gegn hryðjuverkum virðist hafa átt stóran hlut í því að tryggja honum endurkjör sem forseti Bandaríkjanna. Þrátt fyrir að fólk lýsti mikilli óánægju með stöðu efnahagsmála og að Íraksstríðið væri afar umdeilt gefa skoðanakannanir á kjördag til kynna að fólk hafi sett siðferðismál á oddinn.

Hefjum tímabil vonar
"Við hefjum nú tímabil vonar," sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti þegar hann ávarpaði þúsundir stuðningsmanna sinna sem fögnuðu endurkjöri hans í Ronald Reagan-byggingunni í Washington.
Dregur saman með Bush og Kerry
Eins og staðan er núna er George W. Bush talinn hafa tryggt sér áttatíu kjörmenn en John Kerry 77. Staðan í Flórída er svo jöfn að ekki er hægt að spá fyrir um sigurvegara, í Pennsylvaníu liggja ekki fyrir nægar upplýsingar. Því er enn óljóst hvernig fer í þremur stærstu óvissuríkjunum.

Óvíst hver vinnur í Ohio
Of litlu munar á George W. Bush og John Kerry í Ohio til að spá fyrir um hvor þeirra fær þá 20 kjörmenn sem ríkið færir sigurvegaranum. Ríkið er eitt af þremur stærstu óvissuríkjunum sem talið er að komi til með að vega einna þyngst á munum þegar upp er staðið. Samkvæmt fyrstu tölum hefur Bush naumt forskot, 52 prósent gegn 48 prósentum hjá Kerry.

Gæti tekið daga eða vikur að telja
Það gæti tekið nokkra daga og jafnvel vikur að telja öll atkvæði sagði George Stephanopoulous, stjórnmálaskýrandi ABC sjónvarpsstöðvarinnar. Hann segir ástæðuna vera utankjörfundaratkvæði og vafaatkvæði sem ólíklegt sé að verði talin í nótt.

Bush sigurvegari
George Bush, forseti Bandaríkjanna, mun flytja ræðu klukkan 20 í kvöld að íslenskum tíma, eða klukkan 15 að staðartíma í Washington, þar sem hann mun tilkynna sigur sinn í forsetakosningunum í gær.

Berlusconi fagnar sigri Bush
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, fagnaði í dag sigri George Bush í kosningunum í Bandaríkjunum í gær, þrátt fyrir að endanleg úrslit liggi ekki fyrir. Berlusconi segir sigurinn tilkominn vegna efnahagsástands Bandaríkjanna og skattalækkana Bush.

Barist um Ohio
Þegar 91 prósent atkvæða í Ohio hefur verið talið og eftir á að telja hálfa milljón atkvæða munar 102 þúsund atkvæðum á George W. Bush og John Kerry sem þarf nauðsynlega að sigra í ríkinu ef hann ætlar sér að eiga einhvern möguleika á því að verða forseti. Tvær stöðvar hafa þegar spáð Bush sigri í ríkinu en aðrir fjölmiðlar segja það of snemmt.

Verðum að græða sárin
"Við getum ekki unnið þessar kosningar," sagði John Kerry öldungadeildarþingmaður þegar hann viðurkenndi ósigur sinn í bandarísku forsetakosningunum í gær. Hann lagði áherslu á að hefjast þyrfti handa við að sætta landsmenn eftir þær deilur sem hafa klofið þá undanfarin misseri.

Lýsir Bush yfir sigri?
Búist er við að George Bush muni lýsa yfir sigri í forsetakosningunum í Bandaríkjunum innan stundar og ríkir sigurgleði í herbúðum hans. Samkvæmt útgönguspám hefur hann sigrað í Nevada og því hlotið 254 kjörmenn af þeim 270 sem þarf til að sigra.

Bush aftur framúr
George W. Bush er kominn með 102 kjörmenn og John Kerry 77 samkvæmt spám flestra stóru sjónvarpsstöðvanna vestanhafs. ABC, CNN, Fox og NBC spá þessu allar. NBC telur hins vegar að Bush sé kominn með 108 kjörmenn en er sammála spánni um 77 kjörmenn Kerrys. Búast má við breytingum á næstu mínútum þegar kjörstaðir loka í fimmtán ríkjum.

Munar átta kjörmönnum
Litlu munar á kjörmannafjölda George W. Bush og John Kerry eftir að Kerry tryggði sér sigur í Pennsylvaníu, einu óvissuríkjanna sem barist var um, og Kaliforníu, ríkisins sem gefur af sér flesta kjörmenn og Kerry var sigurstranglegur í. Samkvæmt síðustu tölum NBC er Bush búinn að tryggja sér 207 kjörmenn en Kerry 199 kjörmenn.

New Hampshire skiptir um lit
John Kerry virðist hafa tryggt sér sigur í New Hampshire. Þar með hefur það gerst í fyrsta skipti í þessum kosningum að ríki sem kaus George W. Bush fyrir fjórum árum hafi ekki kosið hann nú. Hins vegar hefur Bush enn sem komið er ekki tryggt sér sigur í neinu þeirra ríkja sem Al Gore sigraði í fyrir fjórum árum.

Kerry spáð sigri í Wisconsin
CNN-sjónvarpsstöðin spáði John Kerry sigri í Wisconsin-ríki nú fyrir stundu. Tíu kjörmenn eru þar í boði og ef rétt reynist er Kerry kominn með 252 kjörmenn en Bush 254. Hin ríkin þrjú þar sem enn er beðið niðurstöðu eru Ohio (20 kjörmenn), Iowa (7) og Nýja-Mexíkó (5).

Ríkin sem Bush og Kerry unnu
Þegar úrslit eru ráðin í öllum nema fjórum ríkjum er George W. Bush með 254 kjörmenn en John Kerry kominn með 242 kjörmenn. Úrslitin ráðast því af niðurstöðum í fjórum ríkjum, einkum því stærsta þeirra Ohio þar sem munurinn er minni en svo að flestir fjölmiðlar treysti sér til að spá Bush Bandaríkjaforseta sigri.

Ómögulegt að spá um úrslit
Einhverjar mest spennandi forsetakosningar í manna minnum fara fram í Bandaríkjunum í dag. Mikil óvissa ríkir og fréttaskýrendum hefur reynst ómögulegt að spá um útkomuna. Mikill hiti er í frambjóðendum og er talið að þeir Bush og Kerry muni rjúfa þá hefð að vera ekki með áróður á kjördag.

Stefnir í metkjörsókn
Það stefnir í metkjörsókn í forsetakosningunum í Bandaríkjunum og langar raðir eru við kjörstaði nú á kosningadaginn. Athygli manna beinist einkum að örlitlu broti kjósenda.

Mikilvægustu kosningar sögunnar
Mikilvægustu kosningar í bandarískri stjórnmálasögu eru hafnar. Búist er við að metfjöldi kjósenda nýti sér kosningarétt sinn í dag til að segja skoðun sína á því hver verður forseti Bandaríkjanna næstu fjögur ár. Ingólfur Bjarni Sigfússon skrifar frá Washington.