Ísland tapaði fyrir Svíþjóð, 25-32, í síðasta leik sínum á EM 2020 í handbolta í kvöld.
Íslenska liðið endaði í neðsta sæti milliriðils II og í 11. sæti á mótinu. Svíþjóð endaði í 9. sæti. Kristján Andrésson stýrði sænska liðinu í síðasta sinn í kvöld.
Líkt og gegn Noregi í gær byrjaði íslenska liðið illa og lenti 1-4 undir.
Svíar voru með frumkvæðið allan tímann og voru sjö mörkum undir í hálfleik, 11-18. Sami munur var á liðunum í leikslok, 25-32.
Kári Kristján Kristjánsson og Bjarki Már Elísson voru markahæstir í íslenska liðinu með fimm mörk hvor. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fjögur mörk.
Leik lokið: Ísland - Svíþjóð 25-32 | Tómur tankur í lokaleiknum
