Fréttir

Áslaug hafi þennan „x-factor“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir heitir því að verða formaður allra sjálfstæðismanna nái hún kjöri. Hún tilkynnti formannsframboð fyrir fullum sal af stuðningsfólki sínu í dag. Fyrrverandi og núverandi kjörnir fulltrúar flokksins segja Áslaugu boða nýtt upphaf fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Laugin muni ekki opna fyrr en í fyrsta lagi seinnipart mánudags
Vesturbæjarlaug var áfram lokuð í dag og verður ekki opnuð fyrr en í fyrsta lagi seinnipart mánudags. Lauginni var lokað tímabundið í gær vegna netbilunar sem gerði það að verkum að öryggisbúnaður virkar ekki.

Eldur á Álfhólsvegi
Eldur kviknaði í bíl á Álfhólsvegi í Kópavogi á sjötta tímanum. Bíllinn er upp við bílskúr og annar bíll við hlið hans. Slökkvilið er langt komið með að ráða niðurlögum hans.

Ekkert bólar á ökklaböndum og nýir tímar hjá Sjálfstæðisflokknum
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir heitir því að verða formaður allra sjálfstæðismanna verði hún kjörin. Hún tilkynnti formannsframboð fyrir fullum sal af stuðningsfólki sínu í dag. Fyrrverandi og núverandi kjörnir fulltrúar flokksins segja Áslaugu boða nýtt upphaf fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Ekki ákveðið hvort hún ætli í varaformanninn ef hún tapar
„Ég vona að flokkurinn fái val um fólk til að velja í forystuna. Ég hef sýnt að ég víla ekki fyrir mér að biðja um embætti og treysti mér til þess að sinna því, stíga inn í framtíðina og líta inn á við á sama tíma og ekki síst að vera öflugur málsvari sjálfstæðisstefnunnar. Og ég ætla að gefa sjálfstæðismönnum það val á landsfundi.“

Ýmislegt hægt að lesa í mætingu á fund Áslaugar
Margt var um manninn í Sjálfstæðissalnum á NASA þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins tilkynnti um framboð sitt til formanns flokksins í dag. Þó lét enginn þingmaður flokksins sjá sig.

„Afar miður“ að sjá breytta afstöðu Bandaríkjanna í hinseginmálum
Utanríkisráðherra þykir miður að sjá það raungerast að bandarísk stjórnvöld hverfi frá þeirri afstöðu sem stjórnvöld hafa sýnt á alþjóðavettvangi í mannréttindamálum undanfarin ár.

Fimmtungsfjölgun íbúa í Vogum á síðasta ári
Íbúum Sveitarfélagsins Voga á Suðurnesjum fjölgaði um tuttugu prósent á síðasta ári og virðist ekkert lát vera á fjölguninni því það er byggt og byggt i sveitarfélaginu.

Segir alla íbúa Grænlands vilja undir Bandaríkin
Donald Trump Bandaríkjaforseti áréttar þá afstöðu sína að Bandaríkin skuli taka við stjórn Grænlands. Hann sé fullviss í sinni trú að Bandaríkjamönnum muni takast þetta ætlunarverk sitt.

Musk birtist óvænt og ávarpaði samkomu fjarhægrimanna
Elon Musk, samfélagsmiðla- og tæknimógúll, flutti óvænt ræðu á fjöldafundi AfD, Valkosti fyrir Þýskaland, flokki sem lýst hefur verið sem „fjarhægri“, í gær.

Hefð fyrir ungum formönnum en ekki konum
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins mun tilkynna um framboð sitt til formanns flokksins í dag, samkvæmt heimildum fréttastofu. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem þekkir sögu flokksins vel, segir að ýmislegt megi lesa í samsetningu hópsins sem verður viðstaddur. Óljóst er með mótframboð en hann bendir á að allt geti gerst fram á síðustu stundu.

Áslaug ætlar í formanninn
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra ætlar að sækjast eftir kjöri sem formaður Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi flokksins.

Fimmtánfalda sekt fyrir vopnaburð á almannafæri
Lágmarkssekt fyrir vopnaburð á almannafæri hefur verið hækkuð úr tíu þúsund krónum í 150 þúsund krónur. Dómsmálaráðherra fagnar breytingunum.

Mikill viðbúnaður vegna skotvopns og fyrsti formannsframbjóðandinn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með mikinn viðbúnað í gær vegna tilkynningar um ungmenni með skotvopn. Byssumannsins er enn leitað. Hann var meðhöndlaði byssuna í kringum hóp annarra ungmenna og hefur lögreglu tekist að bera kennsl á einhver þeirra.

Byssumaðurinn hafi miðað á aðra í hópnum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með mikinn viðbúnað í gær vegna tilkynningar um ungmenni með skotvopn. Byssumannsins er enn leitað. Hann meðhöndlaði byssuna í kringum hóp annarra ungmenna og hefur lögreglu tekist að bera kennsl á einhver þeirra.

Sækist eftir sjöunda kjörtímabilinu
Forsetakosningar fara fram í Belarús í dag. Allt bendir til þess að Alexander Lúkasjenkó, sitjandi forseti, nái endurkjöri en hann hefur gegnt embættinu frá 1994.

Stærsta kristal-amfetamínmál sögunnar: Sagði bílinn fluttan inn vegna kvikmyndaverkefnis
Tveir sakborningar í umfangsmiklu fíkniefnamáli hafa viðurkennt að hafa komið að innflutningi bíls hingað til lands, sem innihélt mikið magn af metamfetamín-kristöllum, en þeir segjast ekki hafa verið meðvitaðir um að efnin væru í bílnum.

Sjókvíaeldi og hugsanlegt framboð Guðlaugs Þórs á Sprengisandi
Sprengisandur er á sínum stað klukkan 10 þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti.

Snjókoma í flestum landshlutum
Að sögn Veðurstofunnar er í dag útlit fyrir norðvestlæga eða breytilega átt og snjókomu eða él. Búast má við snjókomu í flestum landshlutum.

Byssumaður farinn af vettvangi þegar lögreglan kom
Lögreglunni var tilkynnt um mann sem var að meðhöndla skammbyssu á almannafæri í hverfi 108 í Reykjavík í gærkvöld eða nótt.

Allir starfsmenn VG missa vinnuna seinna á árinu
Framtíðin verður að leiða í ljós hvað verður um Vinstri græn og raunar vinstrið í heild sinni að sögn framkvæmdastjóra flokksins. Flokkurinn fær engin fjárframlög frá ríkinu þetta kjörtímabilið.

Vesturbæjarlaug lokað tímabundið vegna netbilunar
Vesturbæjarlaug hefur verið lokað tímabundið þar sem öryggisbúnaður virkar ekki vegna netbilunar. Ekki liggur fyrir hvenær laugin verður opnuð á ný.

Geitabóndi hannaði sitt eigið geitavesti
Anna María Flygenring geitabóndi á bænum Hlíð II í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er ekki bara með geiturnar sínar til gamans og yndisauka, nei, því hún vinnur fatnað úr geitafiðunni eins og geitavesti, sem hún klæðist þegar hún sinnir geitunum sínum.

„Þetta er einhver samfélagsmiðlasýki“
Sérfræðingur í forvörnum segir mikilvægt að foreldrar ræði við börn sín um hætturnar sem fylgt geta tálbeituaðferðum. Myndbönd sem sýna ungmenni ganga í skrokk á meintum barnaníðingum eru í dreifingu á samfélagsmiðlum.

Minntust Ásgeirs á Lífskviðunni
Vinir og fjölskylda Ásgeirs H. Ingólfssonar, skálds og blaðamanns, komu saman á svokallaðri Lífskviðu í Kjarnaskógi í dag.

Ísraelsmenn saka Hamas um brot á samkomulaginu
Fjölskyldur fjögurra kvenna sem sleppt var úr haldi Hamas í dag fögnuðu ákaft og brustu í grát þegar konurnar komu loks heim. Ísraelsmenn saka Hamas um brot á vopnahléssamkomulagi en slepptu þó tvö hundruð Palestínumönnum úr fangelsi.

Enginn megi vera krýndur formaður
Spennan magnast fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins en þingmenn telja allar líkur á að barist verði um formannsembættið. Fyrsti frambjóðandinn mun tilkynna framboð sitt á morgun.

Þingmenn búast við formannsslag og Lífskviða Ásgeirs
Spennan magnast fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins en þingmenn telja allar líkur á að barist verði um formannsembættið. Fyrsti frambjóðandinn mun tilkynna framboð sitt á morgun. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í opinni dagskrá klukkan 18:30.

Sleðar bannaðir á opnunartíma: „Leið eins og maður væri ekki velkominn“
Reykjavíkurborg hefur tekið þá ákvörðun að banna umferð sleða á skíðasvæðum borgarinnar meðan á opnun skíðalyftanna stendur. Iðkandi til margra ára er forviða á reglunum og lýsir leiðinlegri upplifun á skíðasvæðinu í Ártúnsbrekku er honum var tjáð um breytinguna.

Birta bráðabirgðaskýrslu vegna slyssins
Yfirvöld í Suður-Kóreu munu birta bráðabirgðaskýrslu um flugslysið sem varð á flugvellinum í Muan í landinu í lok síðasta mánaðar, ekki síðar en á mánudag. Slysið er það mannskæðasta sem orðið hefur í landinu en 179 af 181 um borð létu lífið.