BSO-stöðin komin á nýtt heimili Bjarki Sigurðsson skrifar 22. júní 2026 13:18 Húsið er nú á bílaplani garðsins og verður að öllum líkindum fært á varanlegan stað í vetur. Vísir/Júlíus Waage Húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar, BSO, er komið á nýjan stað. Húsið stendur nú á bílaplani Jólagarðsins og fær varanlegan stað í garðinum á næstu mánuðum. Eigandi hússins segir það fá að halda sinni upprunalegu mynd.
Eftir langan aðdraganda var ákvörðun tekin undir lok apríl um hvað yrði um húsnæði BSO á Akureyri. Bílstjórarnir yfirgáfu stöðina 1. maí og farið var í að finna nýjan stað fyrir þessa sögufrægu byggingu sem hafði staðið við Strandgötu um árabil. Dómnefnd á vegum bæjarins lagði til að Jólagarðurinn í Eyjafjarðarsveit myndi fá húsið afhent án endurgjalds eftir hugmyndasamkeppni. „Við munum snúa því öfugt miðað við hvernig það snýr núna. Þá setjum við það í brekkuna og þá er gott útsýni þaðan yfir sveitina. Þá sérðu það líka frá þjóðveginum. Það á að vera mjög áberandi þegar þar að kemur,“ segir Benedikt Ingi Grétarsson, eigandi Jólagarðsins. Húsinu verður komið fyrir í brekku við Jólagarðinn þar sem það verður vel sjáanlegt öllum þeim sem aka fram eftir.Vísir/Júlíus Waage Húsið var flutt í heild sinni á flutningabíl síðastliðið sunnudagskvöld frá Strandgötunni þar sem það hafði staðið um árabil. Akureyrarbær óskaði eftir umsóknum frá fólki sem vildi taka húsið að sér og þótti umsókn Jólagarðsins skara fram úr. Leigubílstjórar sem áður óku undir merkjum BSO fylgdu húsinu úr bænum. „Þeir gerðu þetta rosalega flott. Þeir fylgdu okkur að mörkum Akureyrar og Eyjafjarðarsveitar, þar tókum við við og flautuðum á þá þegar við fórum á eftir bílnum með húsið inn í sveitina. Það kom aðeins við mann,“ segir Benedikt. Litlu sem engu verður breytt í húsinu. „Þetta lítur ljómandi vel út.“
Eyjafjarðarsveit Hús og heimili Tímamót Leigubílar Jól Akureyri Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira