Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Lovísa Arnardóttir skrifar 22. júní 2026 12:01 Ferðalangar þurfa frá áramótum að huga að tryggingum sínum ætli þeir að ferðast til landa utan EES. Vísir/Vilhelm Sjúkratryggingar Íslands fá í nýjum lögum ríkari heimildir til gagnaöflunar. Í lögunum hafa einnig verið gerðar breytingar á réttindum sjúkratryggðra sem ferðast eða flytja til landa utan EES.
Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu kemur fram að markmið breytinganna sé meðal annars að styrkja hlutverk Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) sem kaupanda heilbrigðisþjónustu, bæta eftirlit stofnunarinnar og stuðla að skilvirkari nýtingu fjármuna í heilbrigðiskerfinu. Lögin taka gildi 1. ágúst en sumar breytinganna næstu áramót. Hvað varðar breytingar í lögunum varðandi sjúkratryggingu einstaklinga kemur fram að bið einstaklinga eftir sjúkratryggingu sem flytja frá ríkjum utan EES til Íslands verði nú þrír mánuðir eftir að viðkomandi skráir lögheimili sitt á Íslandi, í stað sex mánaða áður. Ferðatrygging ekki utan EES Þá hefur einnig verið gerð sú breyting að frá og með næstu áramótum verða þeir sem ferðast til landa utan EES ekki tryggðir gagnvart kostnaði sem þeir kunna að verða fyrir vegna veikinda eða slysa. Í tilkynningu ráðuneytisins er ferðamönnum bent á að kanna tryggingarétt sinn hjá tryggingafélögum og athuga kortatryggingar sínar. Í tilkynningu segir um breytingar sem snúa að SÍ að í nýju lögunum séu skýrð frekar ákvæði laganna þess efnis að við ákvarðanir sjúkratryggingastofnunarinnar skuli byggt á gagnreyndri þekkingu á sviði heilbrigðisþjónustu og faglegu og hagrænu mati í samræmi við alþjóðlega viðurkenndar aðferðir. „Geta stofnunarinnar til að kostnaðargreina heilbrigðisþjónustu er styrkt með ríkari heimildum til aðgangs að upplýsingum um raunkostnað þeirrar þjónustu sem samið er um. Skerpt er á þeirri meginreglu að sjúkratryggingastofnunin taki þátt í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu á grundvelli samninga. Lagabreytingarnar eru m.a. gerðar vegna ábendinga Ríkisendurskoðunar í nýlegri skýrslu um SÍ sem samnings- og eftirlitsaðila. Þar var bent á þörf fyrir aukið gagnsæi, betri upplýsingagjöf, markvissara eftirlit og öflugri stjórntæki við framkvæmd sjúkratrygginga og ráðstöfun opinbers fjár,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. Stafræn þjónusta og samskipti Þar kemur einnig fram að í lögunum hafi verið lögð áhersla á stafræna þjónustu, rafræn samskipti og örugga meðferð persónuupplýsinga. Greiðsluþátttaka fyrir stafræna heilbrigðisþjónustu skal byggjast á sömu forsendum og önnur heilbrigðisþjónusta. Þá sé nú einnig kveðið á um aukna samræmingu upplýsinga, skráningu biðlista og miðlun gagna í þágu betri þjónustu og eftirlits. Þá fá Sjúkratryggingar auknar heimildir til gagnaöflunar og eftirlits til að tryggja rétta framkvæmd og greiðslur auk þess sem ný ákvæði styrkja heimildir stofnunarinnar til kostnaðargreiningar og eftirlits með samningum og þjónustutengdri fjármögnun. Þá hefur stjórn SÍ verið lögð niður í samræmi við ákvæði laganna um niðurlagningu stjórnarinnar.
Sjúkratryggingar Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Ríkisendurskoðun Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira