Fréttir
152 153 154 155 156 157 158 159 160 … 334 ›
Yfirvöld ábyrg fyrir dauða þúsunda einstaklinga sökum mengaðs blóðs Yfir 3.000 manns af 30.000 eru látnir í Bretlandi eftir að hafa fengið „mengað“ blóð eða blóðhluta á árunum 1970 til 1998. Höfundur nýútkominnar skýrslu segir málið áfellisdóm yfir heilbrigðiskerfinu og stjórnvöldum og að draga hefði mátt verulega úr skaðanum. Erlent 21.5.2024 11:44
Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Starfsfólk HS Orku í Svartsengi var sent heim í morgun í öryggisskyni. Innlent 21.5.2024 11:41
Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur segir fylgi forsetaframbjóðenda að öllum líkindum verða á hreyfingu allt fram á kjördag og því útlit fyrir spennandi kosningar. Fylgi þriggja efstu frambjóðenda væri mjög jafnt og líklegt að forseti verði í fyrsta skipti kjörinn með innan við fjórðungi atkvæða. Innlent 21.5.2024 11:40
Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Ráðgjafi í kosningateymi Baldurs Þórhallssonar segir mestu áskorunina í baráttunni vera þá að fá Baldur til að tala um sjálfan sig. Ráðgjafi Höllu Hrundar segir mögulega eitthvað til í því að það sé kalt á toppnum, en þau láti ekki neikvæða umræðu á sig fá heldur haldi sínu striki. Innlent 21.5.2024 11:39
Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Einn lét lífið og rúmlega þrjátíu slösuðust þegar farþegaþota frá Singpore Airlines lenti í mikilli ókyrrð á leið sinni frá London til Singapore. Erlent 21.5.2024 11:11
Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað reglugerð um sjálfbæra landnýtingu sem taka mun gildi þann 1. september. Drög að reglugerðinni voru kynnt í samráðsgátt í janúar og hafa þau tekið breytingum með hliðsjón af þeim athugasemdum sem fram komu á samráðstíma. Innlent 21.5.2024 11:10
Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis og fyrrverandi héraðsdómari var metinn hæfastur af fjórum umsækjendum um embætti dómara við Hæstarétt. Innlent 21.5.2024 11:00
Aldraður eðlisfræðingur sendur í gúlagið fyrir landráð Rússneskur dómstóll dæmdi eðlisfræðing á áttræðisaldri í fjórtán ára í fanganýlendu fyrir landráð. Vísindamaðurinn er sagður hafa unnið að rannsóknum sem tengdust þróun hljóðfrárra flugskeyta. Erlent 21.5.2024 10:57
Breytingar í borholum á Reykjanesi Starfsfólk HS orku í Svartsengi var í morgun sent heim vegna breytinga í borholum. Innlent 21.5.2024 10:47
„Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Þau undur og stórmerki urðu í liðinni viku að Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi kærði Halldór Baldursson skopteiknara til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands. Ljóst er að Arnari Þór er ekki skemmt. Innlent 21.5.2024 10:28
Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti í morgun eftir fimmtán ára stúlku. Hún er nú fundin. Innlent 21.5.2024 10:21
Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Samkomulag hefur náðst um staðarval nýs kirkjugarðs í Ólafsfirði þar sem sá sem fyrir er við kirkjuna er sprunginn. Íbúakosning um málið fór fram á dögunum þar sem rúmlega sex af hverjum tíu greiddu atkvæði með tillögu um að nýjum kirkjugarði skyldi komið fyrir við Brimnes. Innlent 21.5.2024 10:08
„Stöðvið stuldinn“-fáni á lóð dómara eftir árásina á þinghúsið Bandaríski fáninn blakti á hvolfi við heimili hæstaréttardómara dagana eftir að stuðningsmenn Donalds Trump réðust á þinghúsið fyrir þremur árum. Slíkur fáni var tákn stuðningsmannanna sem höfnuðu úrslitum forsetakosninganna en mál sumra þeirra eru nú á borði réttarins. Erlent 21.5.2024 09:39
Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Krafa einnar ríkustu konu heims um að mynd af henni sem nú er til sýnis í National Gallery of Australia verði fjarlægð hefur haft þau áhrif að myndin hefur farið út um allan heim á síðustu dögum og vakið mun meiri athygli en ella. Erlent 21.5.2024 09:26
Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir það algert gáleysi að breyta málfræði tungumálsins án samtals. Hún ætlar að funda með RÚV um „nýlenskuna“ og notkun blaðamanna stofnunarinnar á henni. Sjálf sé hún ekki hrifin af þessari breytingu á tungumálinu. Innlent 21.5.2024 09:06
Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Joe Biden Bandaríkjaforseti var ómyrkur í máli í gær þegar hann tjáði sig um ákvörðun Alþjóðaglæpadómstólsins (ICC) um að gefa út handtökuskipanir á hendur leiðtogum Ísrael vegna átakanna á Gasa. Erlent 21.5.2024 07:46
Fremur vætusamt um sunnan- og vestanvert landið Hægt minnkandi lægð er nú nærri kyrrstæð skammt vestur af landinu og beinir suðlægum áttum til landsins. Gera má ráð fyrir að verði fremur vætusamt um landið sunnan- og vestanvert, en lengst af þurrt og bjart fyrir norðan og austan. Veður 21.5.2024 07:11
Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Réttarhöld yfir meintum höfuðpaurum valdaránssamsæris í Þýskalandi hefjast í Frankfurt í dag. Erlent 21.5.2024 07:04
OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Leikkonan Scarlett Johansson hefur gagnrýnt OpenAI eftir að fyrirtækið afhjúpaði nýjar raddir fyrir ChatGPT, meðal annars rödd sem þótti afar lík rödd Johansson. Erlent 21.5.2024 06:57
Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Þyrlan sem hrapaði í gær með Ebrahim Raisi, forseta Írans, og Hossein Amir-Abdollahian utanríkisráðherra, var annað hvort ekki með merkissvara um borð eða að slökkt hafi verið á honum þegar slysið varð. Erlent 20.5.2024 23:39
Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hafnar alfarið handtökuskipun á hendur sér sem aðalsaksóknari hins Alþjóðlega sakamáladómstóls hefur farið fram á. Aðalsaksóknarinn sakar Netanjahú, Yoav Gallant varnarmálaráðherra og þrjá leiðtoga Hamas um aðild að stríðsglæpum í mannskæðum átökum Hamas og Ísraels sem staðið hafa yfir í um sjö mánuði. Erlent 20.5.2024 21:59
Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Katrín Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, leiðir í nýjustu könnun Prósent með 22,1 prósenta fylgi. Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri mælist með tæp tuttugu prósent sem er talsvert tap frá síðustu könnun Prósents. Baldur Þórhallsson mælist með 18,2 prósenta fylgi. Innlent 20.5.2024 21:03
„Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Ákvörðun dómstóls í Bretlandi um framsal Julian Assange til Bandaríkjanna markar kaflaskil í máli blaðamannsins að mati ritstjóra WikiLeaks Innlent 20.5.2024 21:01
Þolinmæði saminganefnda á þrotum Félagsmenn VM og Rafiðnaðarsambands Íslands hafa nú verið samningslausir í fjóra mánuði og segir Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM, að þolinmæðin sé á þrotum. Komi til aðgerða af þeirra hálfu gæti það haft rafmagnsskort í för með sér. Innlent 20.5.2024 20:39
Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt Gæsluvarðhald yfir Quang Lé hefur verið framlengt af Héraðsdómi Reykjavíkur og var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald til sautjánda júní. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í byrjun mars. Innlent 20.5.2024 20:07
80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Þegar mest var voru um 60 þúsund hermenn á Íslandi árin 1942 til 1945 og þar af voru um 28 þúsund hermenn í Hvalfirði í herskipum, sem lágu þar. Um þetta er fjallað á sýningu í Hernámssetrinu í Hvalfirði, sem hefur notið mikillar vinsældar hjá “Gaua litla” eins og hann er alltaf kallaður. Innlent 20.5.2024 20:03
Fyrsti stríðsþristurinn lentur Fyrstur fimm þrista, gamalla herflugvéla úr síðari heimsstyrjöld af gerðinni DC-3, er lentur á Reykjavíkurflugvelli eftir flug frá Narsarsuaq í Grænlandi. Claudia Janse van Rensburg annast Reykjavíkurdvöl vélanna og segir ótrúlegt að fá að taka þátt í flugsögunni með þessum hætti. Innlent 20.5.2024 19:17
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Prófessor í stjórnmálafræði segir það stórfréttir að alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafi farið fram á handtökuskipun á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Stærstu fréttirnar séu þó þær að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi reynst algjörlega vanhæft til að takast á við aðstæðurnar. Innlent 20.5.2024 18:09
Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Prófessor í stjórnmálafræði segir það stórfréttir að alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafi farið fram á handtökuskipun á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Stærstu fréttirnar séu þó þær að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi reynst algjörlega vanhæft til að takast á við aðstæðurnar. Innlent 20.5.2024 18:00
Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Spænska ríkisstjórnin hefur kallað sendiherrann sinn í Búenos Aíres, höfuðborg Argentínu, heim og ítrekað kröfu sína um að Javier Milei, forseti Argentínu, biðjist afsökunar á hegðun sinni. Leiðtogar þjóðanna tveggja hafa eldað grátt silfur undanfarnar vikur í kjölfar ummæla samgönguráðherrans spænska Óscar Puente í garð Milei. Erlent 20.5.2024 17:47