Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. júní 2026 21:15 Kristín I. Pálsdóttir segir rekstur Konukots á nýjum stað heilt yfir hafa gengið vel. Vísir/Sigurjón Bæta ætti þjónustu við konur sem leita sér aðstoðar í Konukoti í Ármúla fremur en að skrímslavæða þær í fjölmiðlum. Þetta segir framkvæmdastjóri Rótarinnar sem segir fréttaflutning af meintu ófremdarástandi í götunni ekki standast skoðun.
Það var um áramótin sem Konukot flutti úr Eskihlíð og í Ármúla. Undanfarið hefur borið á umfjöllun um meint ófremdarástand í götunni vegna þessa. Þannig ræddi DV í vikunni við ónafngreinda rekstraraðila í Ármúla sem lýsa hinu meinta ófremdarástandi sem stafi af skjólstæðingum Konukots sem er úrræði fyrir heimilislausar konur. Það lýsi sér meðal annars í reglulegum komum lögreglu- og sjúkrabíla, óþrifnaði í formi sprautunála við húsnæði og skemmdarverkum sem unnin séu á bílum. Kristín I. Pálsdóttir framkvæmdastjóri Rótarinnar sem rekur Konukot segist ekki kannast við hið meinta ástand. „Þarna er til dæmis rakið að það séu þrjú útköll viðbragsaðila hérna á dag, þetta er algjörlega langt frá raunveruleikanum.“ Komum viðbragðsaðila hafi fækkað um tæp sjötíu prósent síðan Konukot flutti í Ármúla og eru um 25 komur viðbragðsaðila á árinu. Flestar komur lögreglu séu ekki vegna neyðarástands sem hefur áhrif á nágranna. Þá hafi verið tvö atvik sem vitað sé af sem hafi verið truflandi fyrir nágranna, atvikið í síðustu viku og atvik þar sem lögregla kom með konu sem hefði þurft aðra þjónustu. Útkall viðbragsaðila að Konukoti feli langoftast í sér komu sjúkrabíla, þar sem sumar kvennanna kljáist við heilsufarsvanda, auk þess sem hreinlæti við húsið sé vel sinnt af starfsfólki. Kristín segist óttast að verið sé að skrímslavæða hópinn, samtal starfsmanna við nágranna hafi verið gott hingað til. „Þessi frétt var algjörlega skrifuð þannig. Að setja fram allavega fullyrðingar þar sem er vitnað í ónafngreinda aðila sem standast alls ekki, eða eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum, það er bara mjög óábyrgt.“ Hún segir staðreynd málsins vera að konurnar séu ekki staddar í Konukoti stærstan hluta dagsins, heldur aðallega utan vinnutíma. Ljóst sé að bæta þurfi þjónustu, bjóða upp á betri skaðaminnkandi úrræði og bjóða upp á geðheilbrigðisþjónustu. „Í staðinn fyrir að skrímslavæða jaðarsettar konur, að horfa á hvaða kerfisbreytingar við getum gert til að bæta samfélagið.“
Málefni heimilislausra Reykjavík Fíkn Félagsmál Jafnréttismál Heilbrigðismál Geðheilbrigði Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira