Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 9. júní 2026 12:00 Frumvarp um innviðafélag er meðal þess sem rætt verður á þingi í dag. Enn er óvíst hvort takist að ljúka þingstörfum í vikunni líkt og gert er ráð fyrir í starfsáætlun Alþingis, þingflokksformaður Viðreisnar segir þó góðan gang í viðræðum þingflokksformanna, en meðal ásteytingsefna er frumvarp um innviðafélag.
Þingfundur hefst eftir rúman hálftíma og meðal þess sem er á dagskrá þingsins er brottfararstöð, samgönguáætlun og nýtt innviðafélag. Samkvæmt gildandi starfsáætlun þingsins fara eldhúsdagsumræður fram á morgun og á síðasti starfsdagur að vera á föstudag. Enn er þó óvíst hvort af þessu verði en fulltrúar stjórnarmeirihlutans og stjórnarandstöðu hafa enn ekki samið um þinglok. Sigmar Guðmundsson þingflokksformaður Viðreisnar segir góðan gang í viðræðum. „Við höfum verið að funda nokkuð þétt þingflokksformenn, og verið að kasta á milli okkar allskonar hugmyndum og útfærslum um varðandi þinglokin og vorum svolítið að funda í gærkvöldi og höldum því áfram í dag. Ég myndi segja að við værum komin nær þessu heldur en var um helgina, en það er enn eftir svolítið af útfærslum, enn eftir talsvert af málum sem á eftir að klára, þannig við erum alltaf að þokast nær og það verða svolítil fundarhöld um þetta allt saman í dag.“ Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins hefur látið að sér kveða í umræðum um nýtt innviðafélag og segir áhyggjur Miðflokksins af því margþættar, málið sé verr ígrundað en í fyrstu hafi verið talið. „Og það kannski helgast af því að málið var tekið hratt út úr nefndinni þannig menn áttuðu sig ekki á öllu því sem ekki er búið að leiða í jörðu hvað efnisatriði málsins. Síðan er auðvitað önnur mynd sem er þessi gríðarlega aukning í gjaldtöku á akstur á ökutæki með þessu máli, tafagjöldum Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og 1,7 prósent markmiði stjórnvalda.“ Miðflokkurinn kalli eftir því að verkefni félagsins og gjaldtaka verði skoðuð með heildstæðum hætti. Sigmar Guðmundsson segir innviðafélagið mikið áherslumál ríkisstjórnarinnar. „Þetta er eitt af því sem við höfum verið að ræða í þinglokasamningunum, hvort það þurfi mögulega að gera breytingar á málunum og það er auðvitað í vinnslu. En það liggur fyrir og er svo sem rétt hjá Bergþóri að þetta er stórt og mikilvægt mál en það er ekkert útséð með það hvort það verði einhverju breytt í því til að mæta þar einhverjum sjónarmiðum, það er eiginlega eitthvað sem verður að skýrast í dag, en það er auðvitað á dagskrá á þingfundi í dag, ásamt fleiri málum. Þannig það er alveg ennþá svigrúm til þess að ná lendingu og sátt um öll þessi mál.“
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira