Fréttir
220 221 222 223 224 225 226 227 228 … 334 ›
Baldur mælist með langmest fylgi Baldur Þórhallsson mælist með 37 prósent fylgi í könnun Prósents um hvern frambjóðanda fólk vilji að verði næsti forseti Íslands. Næsti frambjóðandi, Halla Tómasdóttir, mælist með 15 prósent fylgi en 34 prósent svarenda segjast ekki vita hvern þeir vilja í embætti forseta. Innlent 27.3.2024 14:19
Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Óprúttnir aðilar gerðu tilraun til að stela brotajárni og áli frá Vélsmiðju Grindavíkur í gærkvöldi. Ómar Davíð Ólafsson, eigandi Vélsmiðjunnar, segir að lögreglan hafi nappað þjófana þegar þeir voru komnir með tvö kör af áli inn í bílinn hjá sér. Innlent 27.3.2024 14:19
Útlit fyrir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs Enn er hætta á gasmengun og er útlit fyrir að mengunin berist til vesturs og suðvesturs í dag, meðal annars yfir Svartsengi, Hafnir og Grindavík. Huga þarf að loftgæðum. Virkni eldgossins er enn stöðug og hefur verið þar frá mánudegi. Enn mælist landris en það er hægara en áður. Innlent 27.3.2024 14:07
Hæstiréttur bannar síþrotamanni að stunda rekstur Hæstiréttur hefur staðfest þriggja ára atvinnurekstrarbann manns sem hefur verið í forsvari fyrir níu félög sem enduðu í gjaldþroti. Þrotabú einkahlutafélags sem maðurinn átti einn fór fram á bannið en lýstar kröfur í búið nema ríflega 300 milljónum króna. Innlent 27.3.2024 13:58
Flestir öryggishnappar vegna heimilisofbeldis Eftir því sem næst verður komist eru 106 öryggishnappar í umferð hér á landi og eru ýmsar ástæður fyrir notkun þeirra af ýmsum toga. Fólk sem er með slíka hnappa á það þó sameiginlegt að óttast um öryggi sitt. Innlent 27.3.2024 13:47
Fá 82 þúsund fyrir að vinna frá átta til 23 Reykjavíkurborg leitar nú að fólki til að taka að sér setu í undirkjörstjórnum við forsetakosningarnar sem fram fara 1. júní. Vaktin hefst klukkan átta og lýkur í fyrsta lagi klukkan 23 en kjörstöðum er lokað klukkan 22. Launin eru 82 þúsund krónur fyrir skatt. Innlent 27.3.2024 13:39
Mikilvægt að upplýsa málið svo aðrir sjái sér ekki leik á borði Þjófarnir sem stálu milljónum úr bíl Öryggismiðstöðvarinnar í Hamraborg í fyrradag ganga enn lausir. Féð sem þeir höfðu á brott með sér er sömuleiðis ófundið. Afbrotafræðingur segir mjög mikilvægt að málið verði upplýst, svo þeim skilaboðum verði komið á framæri að rán sem þessi borgi sig ekki. Innlent 27.3.2024 13:19
Helga hellir sér í forsetaslaginn Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar ætlar að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands. Helga upplýsti um þetta á blaðamannafundi á heimili sínu í Fossvoginum í hádeginu. Innlent 27.3.2024 12:05
Pallborðið: Eiga læknar að aðstoða fólk við að deyja? Umsögnum um nýtt frumvarp um dánaraðstoð fjölgar nú dag frá degi en það miðar að því að tryggja einstaklingum réttinn til að velja að deyja með aðstoð lækna. Dánaraðstoð verður til umræðu í Pallborðinu klukkan 14 í dag, í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 27.3.2024 11:58
Hættuleg gasmengun kemur í veg fyrir opnun Bláa lónsins Bláa lónið hefur samtals verið lokað í rúmlega áttatíu daga frá því að jarðhræringarnar við Grindavík hófust fyrir fimm mánuðum. Óvíst er hvenær hægt verður að opna á ný vegna hættulegrar gasmengunnar. Innlent 27.3.2024 11:57
„Galið að fara svona með opinbert fé“ Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, gagnrýnir harðlega samning Sambands íslenskra sveitarfélaga við Höllu Gunnarsdóttur upplýsingafulltrúa. Innlent 27.3.2024 11:43
Þjófanna enn leitað og óvíst hvenær Bláa lónið opnar Í hádegisfréttum fylgjumst við áfram með peningaráninu sem framið var í Hamraborg í Kópavogi í fyrradag. Innlent 27.3.2024 11:36
Svona kynnti Helga framboð sitt til forseta Íslands Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, greinir frá ákvörðun sinni um framboð til forseta Íslands á blaðamannafundi á heimili sínu. Innlent 27.3.2024 11:30
Skrapp til Grindavíkur og uppgötvaði stórtækan þjófnað Járnmottum sem voru í Grindavík og í eigu byggingafyrirtækisins Bláhæðar hefur verið stolið. Innlent 27.3.2024 11:21
Þjófarnir ganga enn lausir og milljónirnar ófundnar Þjófarnir sem stálu milljónum úr bíl Öryggismiðstöðvarinnar í Hamraborg í fyrradag ganga enn lausir. Féð sem þeir höfðu á brott með sér er sömuleiðis ófundið. Innlent 27.3.2024 11:14
Gæludýrin þurfa að ferðast með töskunum Ekki er lengur heimilt að flytja hunda og ketti til landsins í farþegarými flugvéla. Innlent 27.3.2024 11:00
Halla fer á eftir kjörnum áreiturum og ofbeldisseggjum Halla Gunnarsdóttir, starfsmaður upplýsingasviðs Landspítala, skrifaði Sambandi íslenskra sveitarfélaga bréf þar sem hún lýsir því hvernig hún ætlar að elta uppi „kjörna áreitara og ofbeldisseggi“. Innlent 27.3.2024 10:31
Hafi líklega keyrt Yarisinn smá spotta og síðan skipt um bíl „Þetta er nú bara bíll. Það er ekkert flókið að fylgjast með nokkrum sinnum, og sjá hvernig þetta gengur fyrir sig. Ég held að við séum búin að vera með verðmætaflutninga á Íslandi í allavega þrjátíu til fjörutíu ár,“ sagði Eyþór Víðisson, öryggis- og löggæslufræðingur. Innlent 27.3.2024 09:57
Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Taíland tók stórt skref í gær þegar neðri deild þingsins þar í landi samþykkti ný lög, sem heimila samkynja hjónabönd. Efri deild þingsins á enn eftir að taka frumvarpið fyrir og samþykki konungsins. Erlent 27.3.2024 08:30
Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Dómarar við Hæstarétt Bandaríkjanna virðast hafa verulegar efasemdir um málflutning samtaka sem vilja að dómstóllinn felli úr gildi ákvarðanir Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna um að heimila notkun mifepristone. Erlent 27.3.2024 08:09
Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Lögreglan í Murrieta, í suðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum, hefur verið skömmuð af danska leikfangafyrirtækinu Lego. Það er fyrir að nota myndir af legohöfðum til að dulbúa sakborninga í ljósmyndum sem embættið birtir á samfélagsmiðlum. Erlent 27.3.2024 07:54
Kalt og bjart í dag en dálítill kaldi Bjart veður verður vestan- og sunnantil í dag en stöku él á norðan- og austanverðu landinu. Frost u allt land en hiti verður rétt yfir frostmarki sunnanlands. Veður 27.3.2024 07:28
Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Oji Holdings, fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu ýmissa pappírsvara, hefur tilkynnt að það hyggist hætta að framleiða bleyjur fyrir ungabörn og auka þess í stað framleiðslu sína á bleyjum fyrir fullorðna. Erlent 27.3.2024 07:14
Þeir sem fóru í ána taldir látnir Lögregluyfirvöld í Maryland í Bandaríkjunum segja einstaklingana sex sem leitað var í gær eftir að Francis Scott Key brúin í Baltimore hrundi í gær séu nú taldir látnir. Erlent 27.3.2024 06:50
Fluttur á Landspítala eftir að hann drakk eitur í stað vatns Maður var fluttur á Landspítala í gærkvöldi eða nótt eftir vinnuslys í póstnúmerinu 105 en hann hafði tekið eiturefni í misgripum fyrir vatn og drukkið. Innlent 27.3.2024 06:21
Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Alexander Bortnikov Yfirmaður Leyniþjónustu Rússlands, FSB, lýsti því yfir í dag að Úkraínumenn hefðu þjálfað íslamska öfgamenn í Mið-Austurlöndum og bæru ábyrgð á árásinni á tónleikahöllina í Crocus um helgina. Þá bendlaði hann Bandaríkjamenn og Breta við árásina. Erlent 26.3.2024 22:31
Kvika undir Öskju heldur áfram að þrýsta sér upp Eldstöðin Askja sýnir merki um að hún sé að búa sig undir gos. Þar varð skjálftahrina í gær og Veðurstofan sendi í dag frá sér tilkynningu um að landris haldi þar áfram. Innlent 26.3.2024 22:22
Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Sendinefnd Ísrael hefur yfirgefið Doha, þar sem friðarviðræður milli Ísraela og Hamas hefur farið fram. Ráðamenn í Ísrael segja friðarviðræðurnar hafa strandað á hörðum kröfum Hamas og kenna ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um tafarlaust vopnahlé á Gasaströndinni um. Erlent 26.3.2024 22:05
„Fólk deyr bara á biðlistum“ Efnt var til minningarstundar í dómkirkjunni síðdegis í dag um þau sem látist hafa úr fíknisjúkdómi. Varaformaður Samtaka aðstandenda og fíknisjúkra segir fólk deyja á biðlistum meðan stjórnvöld setji ekki fjármagn í málaflokkinn og marki sér ekki. Innlent 26.3.2024 21:09
Biðin að lengjast og skilyrðin þrengjast Íslensk kona sem kom frá Egyptalandi í nótt segir að biðin eftir því að koma fólki yfir landamærin frá Gasa virðist vera að lengjast. Henni telst til að um 140 manns hafi hingað til komist yfir landamærin með hjálp Íslendinga og enn séu sjálfboðaliðar staddir úti. Innlent 26.3.2024 21:07