Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Freyja Þórisdóttir skrifar 11. apríl 2026 07:48 Fjöldi ökumanna keyrði langt yfir leyfilegum hámarkshraða í nótt samkvæmt dagbók Lögreglunnar á höfuðborgasvæðinu. Vísir/Anton Brink Lögregla var kölluð til á skemmtistað í umdæmi þrjú, sem þjónustar Kópavog og Breiðholt, vegna líkamsárásar. Í umdæum eitt og tvö voru alls níu handteknir vegna gruns um ölvunarakstur eða akstur undir áhrifum fíkniefna. Sjö ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur.
Þetta er meðal þess helsta sem var skráð í dagbók Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Alls voru áttatíu og fimm mál skráð og gistu tveir í fangageymslu lögreglunnar fram á morgun. Lögregla sinnti útkalli á skemmtistað sem er annað hvort í Kópavogi eða Breiðholti þar sem tilkynnt var um að líkamsárás hefði átt sér stað. Málið er enn í rannsókn. Þá var aðili handtekinn í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann fór ekki eftir fyrirmælum lögreglu eftir að hafa verið til vandræða utan við skemmtistað. Hann var vistaður í fangageymslu vegna ástands. Sjö ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur og voru þeir allir stöðvaðir í umdæmi fjögur en það sinnir verkefnum í Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ. Sá sem hraðast ók var á 142 km/klst þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst. Í umdæmi eitt, sem þjónustar Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes, voru fimm stöðvaðir og handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum en öllum var sleppt eftir sýnatöku. Fjórir til viðbótar voru stöðvaðir og handteknir af sömu ástæðu í umdæmi tvö, sem þjónustar Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes. Þeim var sleppt eftir sýnatöku rétt eins og hinum.
Lögreglumál Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira