Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Agnar Már Másson skrifar 10. apríl 2026 19:46 Starfsemin er sögð haldast óbreytt. Nokkuð hefur gustað um Sólheima í fjölmiðlum undanfarið ár eftir að breytingar urðu í framkvæmdastjórn í febrúar 2025. Sautján manns hafa sagt upp störfum síðan þá, samkvæmt Heimildinni. Vísir/Atli Stjórn Sólheima í Grímsnesi hefur sagt upp þjónustusamningi við sveitarfélög á Suðurlandi þar sem ekki tókst að semja um aukin rekstrarframlög. Samningurinn tryggði búsetu- og atvinnuþjónustu fyrir fatlað fólk í landshlutanum en nú tekur gildi tólf mánaða uppsagnarfrestur. Engar breytingar verða á starfseminni á meðan samningaviðræður halda áfram. „
Þetta hefur hvorki áhrif á starfsmenn né þjónustuþega,“ segir Sigurjón Örn Þórsson, stjórnarformaður Sólheima, sem staðfestir fregnirnar í samtali við Vísi. Undanfarin ár hafa Sólheimar annast þjónustu við fatlað fólk í sveitarfélögum á Suðurlandi samkvæmt þjónustusamningi við Bergrisann bs., sem er byggðasamlag sem rekið er af þrettán sveitarfélögum á Suðurlandi og heldur utan þjónustu við fatlað fólk í landshlutanum. Sigurjón Örn Þórsson, stjórnarformaður Sólheima.Magnús Hlynur Hreiðarsson Aftur á móti var starfsfólk Sólheima upplýst um það með tölvupósti í dag að stjórnin hefði sagt upp þjónustusamningnum.Í póstskeytinu til starfsmanna kom fram að ekki væru lengur skilyrði til að halda þjónustusamningnum áfram óbreyttum og að nú tæki við tólf mánaða uppsagnarfrestur. Sigurjón stjórnarformaður segir að starfsemi Sólheima verði óbreytt á meðan er úr málinu. „Það er í raun og veru allt óbreytt.“ Hann útskýrir að Sólheimar hafi ekki verið ánægðir með sín kjör í samningum og að félagið hafi óskað eftir aukinni fjárveitingu, til viðbótar því sem samið var um við Bergrisann við gerð samningsins í apríl 2024. Býst við því að málið leysist Bragi Bjarnason, bæjarstjóri í Árborg, segist í samtali við Vísi hafa fulla trú á því að málið leysist. Báðir aðilar vilji finna lausn. „Stjórn Bergrisans barst uppsögn á samningnum frá stjórn Sólheima og í framhaldinu hafa verið viðræður milli starfsmanna um að finna lausnir á samningnum og það er sameiginlegur skilningur milli aðila þarna að vilja tryggja áframhaldandi góða þjónustu á Sólheimum,“ segir Bragi. Sautján sagt upp störfum síðasta árið Nokkuð hefur gustað um Sólheima undanfarið ár. Samkvæmt umfjöllun Heimildarinnar frá því í febrúar höfðu hið minnsta sautján starfsmenn sagt upp störfum síðasta árið, eða frá því í febrúar 2025 þegar framkvæmdastjórinn Kristinn Ólafsson var látinn taka pokann sinn. Tugir starfsmanna undirrituðu yfirlýsingu þar sem þeir mótmæltu breytingunum. Svo í september kváðu starfsmenn sér hljóðs í fjölmiðlum og lýstu eitruðu andrúmslofti á vinnustaðnum í kjölfar breytinganna. Aftur á móti lýstu fimm forstöðumenn á stofnuninni stuðningi við nýju stjórnendurna. Sólheimar ses. er að langmestu leyti rekið með opinberu fé og fjárframlög hins opinbera til félagsins námu 734 milljónum króna árið 2024 samkvæmt ársreikningi. Það ár tapaði félagið 15 milljónum króna en félagið hafði fram að því skilað ársreikningi réttu megin við núllið frá 2018.
Sólheimar í Grímsnesi Málefni fatlaðs fólks Grímsnes- og Grafningshreppur Tengdar fréttir „Fólk hefur hætt eða nánast verið bolað úr starfi síðan hún tók við“ Starfsmaður á Sólheimum segir kvíða og óvissu ríkja hjá starfsmönnum stofnunarinnar og að samskipti við framkvæmdastjóra séu erfið. Þá sé ekki hlustað á raddir starfsfólks sem hafi jafnvel hætt eða verið bolað úr starfi sem komi niður á þjónustu við íbúa. 17. september 2025 12:07 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Sjá meira
„Fólk hefur hætt eða nánast verið bolað úr starfi síðan hún tók við“ Starfsmaður á Sólheimum segir kvíða og óvissu ríkja hjá starfsmönnum stofnunarinnar og að samskipti við framkvæmdastjóra séu erfið. Þá sé ekki hlustað á raddir starfsfólks sem hafi jafnvel hætt eða verið bolað úr starfi sem komi niður á þjónustu við íbúa. 17. september 2025 12:07