Fréttir
275 276 277 278 279 280 281 282 283 … 334 ›
Setja á herskyldu til að snúa vörn í sókn Herforingjastjórn Mjanmar stefnir að því að koma á herskyldu í landinu. Hernum hefur gengið illa gegn uppreisnarhópum sem hafa sótt fram víða um landið á undanförnum mánuðum. Erlent 14.2.2024 15:51
Nýr samskiptastjóri Sigríðar: „Kom, sá og sigraði – eins og ég mun gera“ Sigríður Hrund Pétursdóttir, frambjóðandi til embættis Forseta Íslands, hefur ráðið Hörpu Björgu Hjálmtýsdóttur sem samskiptastjóra. Innlent 14.2.2024 15:37
Fær sínu framgengt í stóra aparólumálinu á Ísafirði Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur lagt fram ný hönnunargögn vegna leikvallar á Eyrartúni. Í nýjum drögum er umdeild aparóla fjær íbúðarhúsum, þvert gegn afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar sveitarfélagsins. Íbúi við hliðina á túninu hafði kært málið til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Innlent 14.2.2024 15:30
Lögregla girðir af svæði í almenningsgarðinum Lögreglan í Dublin hefur nú girt af skóglendi í Santry Demense almenningsgarðinum í Dublin þar sem leit stendur yfir að Jóni Þresti Jónssyni. Það kemur fram á írska miðlinum Independent. Innlent 14.2.2024 14:53
Ekkjan gafst ekki upp og fékk meirihluta dánarbótanna Ekkja flugmanns sem lést í flugslysi á Rangárvöllum sumarið 2019 fær tvo þriðju dánarbóta frá tryggingafélaginu. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Tekist var á um hvort flugmaðurinn hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi sem orsakaði slysið. Innlent 14.2.2024 14:50
Eftirlitsmönnum MAST hótað af starfsmönnum matvælafyrirtækis Matvælastofnun (MAST) hefur kært hótun gagnvart eftirlitsmönnum stofnunarinnar til lögreglu. Innlent 14.2.2024 14:34
Hettusótt í útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu Í byrjun febrúar greindist hettusótt á höfuðborgarsvæðinu og hefur nú einstaklingur með tengingu við fyrsta tilfellið einnig greinst með hettusótt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá landlæknisembættinu. Innlent 14.2.2024 14:27
Tókst að ákæra Mayorkas í annarri tilraun Repúblikönum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings tókst í gær að ákæra Alejandro N. Mayorkas, yfirmann heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna, fyrir meint embættisbrot. Þetta var í annað sinn sem þeir greiddu atkvæði um ákæru og var hún samþykkt með einu atkvæði. Erlent 14.2.2024 14:13
Vill verða formaður FEB Sigurður Ágúst Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri DAS, hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns í Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB). Aðalfundur félagsins sem fram fer hinn 21. febrúar. Innlent 14.2.2024 14:05
Þungir dómar í Saltdreifaramálinu staðfestir Hæstiréttur hefur staðfest átta og tíu ára fangelsisdóma yfir tveimur mönnum í saltdreifaramálinu svokallaða. Innlent 14.2.2024 14:03
Vill ekki að Ísland skeri sig úr í hælisleitendamálum Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir núverandi hælisleitendakerfi ósanngjarnt. Hún vill ekki gera lítið úr áhyggjum fólks í breyttum heimi með auknum fjölda innflytjenda og hælisleitenda á Íslandi. Ísland þurfi að ganga í sama takti og Norðurlöndin en með mannúð að sjónarmiði. Hún segir velferðarsamfélag þurfa landamæri og hefur skilning á lögum dómsmálaráðherra um búsetuúrræði. Innlent 14.2.2024 14:00
Land rís aðeins hraðar en fyrir gos Land heldur áfram að rísa við Svartsengi á Reykjanesi. Að sögn Benedikts Ófeigssonar, fagstjóra aflögunarmælinga hjá Veðurstofunni, hafa verið litlar breytingar á landrisinu síðustu daga, en nú gæti farið að hægjast á því. Innlent 14.2.2024 13:26
Dagur svarar fyrir sig varðandi dýrari Fossvogsbrú Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, segir eðlilegt að hækkun á kostnaðaráætlun Fossvogsbrúar sé sett í samhengi við samgönguverkefni víða um land af hendi ríkisins. Innlent 14.2.2024 13:12
Mátti reka flugumferðarstjóra sem var kærður fyrir nauðgun Isavia ANS, dótturfélag Isavia, hefur verið sýknað af öllum kröfum fyrrverandi flugumferðarstjóra og kennara, sem sagt var upp störfum eftir að nemandi kærði hann og samstarfsmann fyrir nauðgun. Flugumferðarstjórinn vildi meina að uppsögnin hafi verið ólögmæt. Innlent 14.2.2024 12:15
Geta lagt hald á eigur fólks sem gagnrýnir innrásina Vladimír Pútín, forseti Rússlands, skrifaði í morgun undir ný lög sem snúa að refsingu fólks sem dæmt er fyrir að segja „ósatt“ um rússneska herinn, vanvirða hann eða fyrir mótmæli eða aðgerðir sem sagðar eru ógna öryggi ríkisins. Auk þess að sekta fólk og dæma í fangelsi, getur ríkið nú lagt hald á eignir fólks. Erlent 14.2.2024 12:07
„Þetta er ástand sem mun örugglega taka nokkra daga að ná tökum á“ Loka hefur þurft fyrir heita vatnið á ný í nokkrum hverfum á Suðurnesjum vegna bilanna í dreifikerfinu. Forstjóri HS veitna segir viðgerðir ganga vel. Stórnotendur á Suðurnesjum eru beðnir um að spara vatn og ekki verður hægt að fara í sund á næstu dögum. Innlent 14.2.2024 12:06
Kafarar og hundar koma að í leitinni í almenningsgarðinum Lögreglan hefur hafið leit á ný að Jóni Þresti Jónssyni í Santry Demense almenningsgarðinum í Dublin. Leit hófst í gær en vegna stærðar garðsins er talið líklegt að það þurfi í það minnsta tvo daga í leitina. Innlent 14.2.2024 11:54
Seðlabankastjóri staðfesti sjálfstæðan samningsrétt á vinnumarkaði Formaður VR segir seðlabankastjóra hafa staðfest að krafa breiðfylkingarinnar um forsenduákvæði varðandi þróun vaxta skerði ekki sjálfstæði Seðlabankans, enda hafi slík ákvæði verið í samningum áður. Samninganefnd VR fékk umboð trúnaðarráðs í gærkvöldi til að boða til verkfallsaðgerða. Innlent 14.2.2024 11:46
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um stöðuna á heita vatninu á Suðurnesjum en í morgun þurfti að loka fyrir hitann í nokkrum götum í Suðurnesjabæ og í Reykjanesbæ. Innlent 14.2.2024 11:35
Fólk hefur gengið örna sinna í garði Bjarna Jón Gunnarsson fyrrverandi dómsmálaráðherra og Brynjar Níelsson aðstoðarmaður hans voru gestir í hlaðvarpinu Chess after dark og þar upplýsti Jón um að Bjarni Benediktsson mætti sæta ótrúlegasta aðkasti í starfi. Innlent 14.2.2024 11:12
Demókrati nældi í þingsæti Santos Demókratinn Tom Suozzi bar sigur úr býtum í baráttu um þingsæti í New York og minnkaði þar með meirihluti Repúblikana í fulltrúadeildinni enn meira. Áður hafði George Santos setið í þingsætinu en honum var vikið af þingi í byrjun desember. Erlent 14.2.2024 11:08
Liggja undir feldi með tilboð ráðherra Stjórnir bæði Háskólans í Reykjavík (HR) og Háskólans á Bifröst funda á næstu dögum um hvort taka eigi tilboði Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur háskólaráðherra um að fá óskert fjárframlög frá ríkinu gegn afnámi skólagjalda. Innlent 14.2.2024 10:45
Rákust á stóra torfu og fara í loðnumælingar Fiskiskip á kolmunnaveiðum rakst á talsvert stóra uppsjávarfiskstorfu við aukaleit undan suðausturströnd landsins í gær. Hafrannsóknarstofnun mun hefja formlegar loðnumælingar í dag. Sviðsstjóri hjá Hafró segir um jákvæðar fréttir að ræða fyrir mögulega loðnuvertíð. Innlent 14.2.2024 10:31
Yfir 700 hjúkrunarfræðingar grunaðir um svindl Rannsókn stendur yfir á Bretlandseyjum þar sem grunur leikur á að yfir 700 hjúkrunarfræðingar hafi greitt milligönguaðila fyrir að taka próf í Nígeríu, til að tryggja sér leyfi til að starfa á Bretlandi. Erlent 14.2.2024 10:30
Sökktu enn einu herskipinu með drónum Leyniþjónusta úkraínska hersins (GUR) birti í morgun myndband af sjálfsprengidrónaárás á rússneska herskipið Sesar Kúnikov. Skipið virðist hafa sokkið eftir árásina en þetta er fjórða skipið af þessari gerð sem Úkraínumenn hafa sökkt eða grandað. Erlent 14.2.2024 09:56
Vilja leggja niður RÚV ohf. Níu af sextán þingmönnum Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram frumvarp um breytingar á lögum sem snerta fjölmiðla, þar á meðal. Ríkisútvarpið. Leggja þeir til að RÚV ohf. verði lagt niður og til verði ríkisstofnun á fjárlögum með sjálfstæða stjórn. Það sé ekkert samræmi fólgið í því að RÚV auki tekjur sínar í hlutfalli við aukna fólksfjölgun vegna útvarpsgjaldsins. Beinir styrkir til einkarekinna fjölmiðla verði einnig felldir niður. Innlent 14.2.2024 09:43
Átu yfir sig og höfðu með sér nesti að áti loknu Gráðugir Íslendingar á Spáni sprengdu sig á sprengidaginn og gott betur, afátu helming gestanna og það sem þeir ekki gátu troðið í belginn á sér tóku þeir með í nesti. Innlent 14.2.2024 09:16
Bað LGBTQ+ samfélagið afsökunar á áralöngum ofsóknum Þáttastjórnandi hjá ríkismiðlinum TVP í Póllandi hefur beðist afsökunar á afstöðu og framkomu miðilsins í garð LGBTQ+ fólks síðustu ár. Ráðist var í umfangsmiklar breytingar á stjórn TVP þegar Donald Tusk varð forsætisráðherra í desember síðastliðnum. Erlent 14.2.2024 09:03
Trúnaðarráð VR veitir heimild til aðgerða Trúnaðarráð VR mun hafa veitt samninganefnd VR heimild til aðgerða eftir fund ráðsins í gærkvöldi. Innlent 14.2.2024 07:44
Aðeins 52 prósent mættu í brjóstaskimun árið 2022 Verulega hefur dregið úr þátttöku kvenna í legháls- og brjóstaskimunum á Íslandi og árið 2022 mættu aðeins 52 prósent þeirra sem fengu boð í brjóstaskimun. Innlent 14.2.2024 07:36