
Fréttir

Rósa sækist eftir þriðja sætinu
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði gefur kost á sér í 3. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Rósa sagði í gær í samtali við Vísi vera að íhuga málið alvarlega.

Sigurður Ingi mætir í Samtalið á ólgutímum
Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra mætir í Samtalið með Heimi Má í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14:00. Seinna í dag liggur leið hans á Bessastaði til að taka einnig við innviðaráðuneytinu í minnihluta starfsstjórn.

Starfsstjórn með minnihluta á Alþingi tekur við síðdegis
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar sem mynduð var í apríl verður formlega leyst frá völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag, tveimur dögum eftir að forseti Íslands samþykkti lausn hans og annarra ráðherra þeirrar ríkisstjórnar úr embætti og skipaði alla ráðherrana í starfsstjórn. Ný minnihluta-starfsstjórn tekur við völdum á Bessastöðum síðdegis.

„Kennarar eru ekki eyland í kjarabaráttunni“
Forstöðumaður vinnumarkaðssviðs hjá SA segir að viðbótarhækkanir til kennarastéttarinnar geti raskað kjarasátt í landinu. Kennarar séu ekki eyland, fleiri hópar eigi eftir að klára sína samninga. Þá segir hann að samanburður einkageirans og hins opinbera sé snúinn því margir kostnaðarliðir, umfram laun, hvíli á herðum opinberra vinnuveitenda.

Jón Magnús gefur kost á sér
Jón Magnús Kristjánsson, fyrrverandi yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum, mun óska eftir þriðja til fjórða sæti á lista Samfylkingarinnar í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu.

Þau skipa uppstillingarnefnd Sjálfstæðismanna í Reykjavík
Fimmtán manns tóku sæti í uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á fundi kjördæmaráðs flokksins í gær. Berta Gunnarsdóttir, varaformaður Varðar – fulltrúaráðssins í Reykjavík, er formaður nefndarinnar.

Þingrof í morgun og ríkisráð hittist síðdegis
Í hádegisfréttum verður farið yfir tíðindi dagsins en klukkan hálfellefu hófst þingfundur þar sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tilkynnti formlega um þingrof og kosningar.

„Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum
Tvær B-2 sprengjuflugvélar voru í nótt notaðar til að varpa sprengjum á neðanjarðarbyrgi Húta í Jemen. Sprengjuflugvélarnar búa yfir tækni sem gerir erfitt að sjá þær á ratsjám og eru meðal háþróuðustu herflugvéla heims.

„Loksins er lokið lengsta dauðastríði nokkurrar ríkisstjórnar“
Forsætisráðherra tilkynnti um þingrof og kosningar á þingi í dag. Formaður Miðflokksins sagði dauðastríði ríkisstjórnarinnar loks lokið og formenn annarra stjórnarandstöðuflokka sögðu kosningarnar tækifæri til breytinga. Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði erindi ríkisstjórnarinnar lokið og formaður Vinstri grænna sagði hann óhæfan til að leiða ríkisstjórn.

Áslaug Arna vill halda sæti sínu
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur lýst því yfir að hún vilji leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan
Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna og forsetaefni Demókrataflokksins, var til viðtals á Fox News í gær og sitt sýnist hverjum um hvernig hún stóð sig.

Stefnir á áframhaldandi þingsetu
Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og forseti Alþingis, stefnir á áframhaldandi þingsetu. Hann segist eiga eftir að taka samtalið við félaga sína í Sjálfstæðsflokknum í Reykjavík en að hann muni áfram bjóða fram krafta sína.

Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga
Lögmaður Rex Heuermann, sem ákærður hefur verið fyrir sex morð í Gilgo Beach-málinu svokallaða, vill að lífsýni í málinu verði útilokuð frá réttarhöldunum. Í dómsal í Suffolk-sýslu í New York í gær, lýsti lögmaðurinn tækninni sem notuð var við að bendla Heuermann við morðin við „töfra“.

Lenya vill forystusæti hjá Pírötum í Reykjavík
Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, sækist eftir fyrsta sæti í prófkjöri Pírata í Reykjavíkurkjördæmunum. Það tilkynnti Lenya á Facebook í færslu í gær. Hún hefur síðustu þrjú ár sinnt varaþingmennsku fyrir flokkinn en segir tíma til kominn að hleypa nýju fólki að borðinu.

Varaþingmaður vill þriðja sætið
Ingveldur Anna Sigurðardóttir, lögfræðingur og varaþingmaður, vill þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.

Þingrof og kosningar á dagskrá þingsins
Þingfundur hefst klukkan 10.30 í dag. Á dagskrá fundarins er tilkynning forsætisráðherra um þingrof og alþingiskosningar þann 30. nóvember. Hægt verður að fylgjast með í beinni útsendingu hér að neðan.

Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis
Ítalska þingið samþykkti bann við því að fólk leiti eftir staðgöngumæðrun erlendis í gær. Andstæðingar ríkisstjórnar Giorgiu Meloni forsætisráðherra segja lögunum beint að samkynja pörum.

Ólafur vill leiða listann
Ólafur Adolfsson lyfsali hjá Apóteki Vesturlands og fyrrverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akranesi gefur kost á sér í fyrsta sæti Sjálfstæðisflokksins á Norðvesturlandi. Áður hefur Teitur Björn Einarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins tilkynnt að hann sækist eftir sama sæti.

Lyfjaávísanir um 20 lækna til rannsóknar hjá landlæknisembættinu
Lyfjaávísanir um það bil 20 lækna eru til rannsóknar hjá landlæknisembættinu og hafa viðkomandi annað hvort fengið sent bréf frá embættinu eða eiga von á bréfi, þar sem þeim gefst kostur á andsvörum.

Dálítil rigning sunnan- og vestanlands
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlægri átt í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu og skýjuðu, en átta til þrettán metrum á norðvestanverðu landinu.

Skora á Alþingi að axla ábyrgð og greiða fyrir nýrri Ölfusárbrú
Héraðsnefnd Árnesinga skorar á Alþingi að axla ábyrgð og leysa úr þeim hnökrum sem upp hafa komið vegna fjármögnunar nýrrar brúar yfir Ölfusá.

„Þetta mál er lögregluembættinu til ævarandi skammar“
Lögreglan á Norðurlandi eystra var harðlega gagnrýnd í Pallborði Vísis í gær en gestir voru þau Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Kveiks og Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður Heimildarinnar. Þau voru sakborningar í máli sem varðar meinta byrlun og svo símastuld af Páli skipstjóra Steingrímssonar.

Kjarasamningar opinberra starfsmanna megi ekki raska kjarasátt
„Kennarar eru til fyrirmyndar og ég öfunda þau af því að fá að kenna. Það eru því mikil vonbrigði að samninganefnd kennara og forysta kennarasambandsins grípi nú til skæruverkfalla með tilheyrandi röskun á skólastarfi og óvissu án þess að leggja fram skýrar kröfur í kjarasamningum.“

Ráðist á starfsfólk hótels
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna einstaklings sem var sagður hafa ráðist á starfsfólk hótels í póstnúmerinu 105.

Sunnudagurinn í Valhöll gæti orðið úrslitastund fyrir Þórdísi
Reikna má með fjölmenni í Valhöll á sunnudaginn þegar hart verður barist um sæti á lista flokksins fyrir Alþingiskosningarnar þann 30. nóvember næstkomandi. Formaður og varaformaður bjóða sig fram í tvö efstu sætin en reikna má með að varaformaðurinn fái harða baráttu um annað sætið. Sigur yrði risaskref í átt til formennsku en tap gæti sett frekari frama innan flokksins úr skorðum.

Sendur í leyfi
Úlfur Einarsson forstöðumaður Stuðla hefur verið sendur í ótímabundið leyfi frá störfum sínum á meðferðarheimilinu. Úlfur tjáði sig opinskátt um alvarlega stöðu sem uppi væri á Stuðlum í fréttaskýringarþættinum Kveik í gær.

Aldursforsetinn hvergi af baki dottinn
Tómas A. Tómasson þingmaður Flokks fólksins, sem kenndur er við Hamborgarabúlluna, hyggst gefa kost á sér á lista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar.

Þórunn og Guðmundur Árni munu bítast um oddvitasætið
Þórunn Sveinbjarnardóttir gefur kost á sér í 1. sæti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður flokksins sækist einnig eftir oddvitasætinu.

Uppstillingar á báðum listum í Reykjavík
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík samþykkti í kvöld einróma að haga vali á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmum með uppstillingu.

Hundrað ára Carter búinn að kjósa
Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti sem varð hundrað ára á dögunum, er búinn að kjósa í bandarísku forsetakosningunum. Hann kaus með utankjörstaðaratkvæði, sem var lagt í pósthólf við dómshús í borginni Americus í Georgíuríki.