Fréttir

Gular við­varanir aftur á kreik

Gular veðurviðvaranir tóku gildi klukkan sjö nú í morgun í þremur landshlutum: Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum og á Suðausturlandi. Þær verða í gildi til hádegis.

Veður

Hinir treystu sér ekki en Ís­lendingarnir flugu

Íslendingar skipa stóran sess í flugsögu Grænlands. Íslenskir flugmenn gátu sér þar snemma gott orð. Talað var um að þeir treystu sér oftar til að fljúga í krefjandi landslagi og misjöfnu veðri en aðrir flugmenn.

Innlent

Leggja niður 4. bekk vegna pláss­leysis og kynjahalla

Barnaskólinn í Hafnarfirði, Hjallastefnuskólinn, hefur ákveðið að leggja niður 4. bekk skólans frá og með næsta skólaári og mun því aðeins vera fyrir börn í fyrsta til þriðja bekk. Foreldrar hafa verið boðaðir til fundar vegna málsins á mánudag. Hafnarfirði var tilkynnt um breytinguna fyrir mánuði síðan.

Innlent

Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akur­eyri

Glæsisnekkju rússneska skattsvikarans Oleg Tinkov var meinuð hafnarkoma á Akureyri fyrr í dag á grundvelli þvingunaraðgerða varðandi Rússland sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja. Landhelgisgæslan greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

Innlent

Robert Mueller er látinn

Robert S. Mueller, sem stýrði bandarísku alríkislögreglunni í tólf ár og starfaði sem sérstakur saksóknari hjá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna, er látinn. Hann varð 81 árs.

Erlent

Veittu ferða­mönnum í vanda að­stoð við Héðinsfjarðargöng

Þrátt fyrir hina djúpu lægð sem gekk yfir landið í gær og í nótt þá fengu björgunarsveitir landsins ekki ýkja mörg útköll. Þrátt fyrir að vindurinn gangi hratt niður fram eftir degi og gul veðurviðvörun á bak á burt þá er von á öðrum veðurhvelli seint í kvöld. Veðurstofan varar við óveðri á Norðausturlandi, Austurlandi og Austfjörðum en gul viðvörun tekur gildi þar á miðnætti.

Innlent

Dapur­legt að fylgjast með hægri­flokkum sem sam­einast á jaðrinum

Forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar segir dapurlegt að fylgjast með þróun hægriflokka á Alþingi sem séu að renna saman í einn jaðarflokk. Hún sagði að þrátt fyrir áskoranir í efnahagsmálum hefði ríkisstjórnin náð mikilvægum áföngum. Flokkurinn væri með skýr markmið í samstarfi ríkis og sveitarfélaga sem þau ætla að ráðast í, hljóti þau traust kjósenda.

Innlent

Slysið í Fóður­blöndunni, mögu­leg af­skipti af þjóðar­at­kvæða­greiðslu og enn meira ó­veður

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að rannsókn á sprengingunni sem varð í húsnæði Fóðurblöndunnar í Reykjavík í gærmorgun gæti tekið vikur og jafnvel mánuði en taka þarf skýrslur af fjölda vitna. Einn lést af sárum sínum eftir sprenginguna og annar liggur á sjúkrahúsi með áverka. Nánar í hádegisfréttum.

Innlent

Í­hugar að draga úr hernaði í Íran

Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Bandaríkjaher nálægt því að ná markmiðum sínum í Íran, og segist huga að því að draga úr hernaði þar sem hófst í lok síðasta mánaðar.

Erlent

Við­varanir að falla úr gildi en meira ó­veður í nánd

Djúp lægð á Grænlandssundi hefur valdið suðvestan hvassviðri eða stormi á landinu með dimmum éljum. Lægðin er farin að grynnast og vindinn lægir svo um munar með deginum, en áfram má þó búast við éljum. Það er frost um mestallt land, á bilinu 0 til 5 stig.

Veður

Skekkja hækki ið­gjöld og kosti sam­fé­lagið milljarða

Skekkja í íslenskum skaðabótalögum hækkar iðgjöld viðskiptavina tryggingafélaga og kostar samfélagið milljarða króna á ári. VÍS kallar nú eftir endurskoðun laganna, einfaldara matsferli og miðlægu kerfi í bótamálum vegna líkamstjóna, einkum í umferðarslysum.

Innlent

Sleppt úr haldi eftir hóp­árásina á Höfða­torgi

Fjórum karlmönnum sem handteknir voru í tengslum við alvarlega hópárás í bílakjallara undir Höfðatorgi í Reykjavík hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Einn er enn í gæsluvarðhaldi en ekki var farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum. 

Innlent

Frí­höfnin gjör­sam­lega gal­tóm

Öllu flugi til og frá landinu var aflýst í dag vegna óveðursins sem gengið hefur yfir landið. Tíu þúsund farþegar sem áttu bókað flug með Icelandair voru á meðal þeirra sem sátu fastir.

Innlent

Skammt stórra högga á milli

Gular veðurviðvaranir eru í gildi fyrir flesta landshluta fram til morguns og vegir um Holtavörðuheiði, Öxnadalsheiði og Steingrímsfjarðarheiði meðal þeirra sem eru lokaðir. Veðurfræðingur segir skammt stórra högga á milli og landsmenn þurfi að venjast vetrarríki á næstunni.

Veður

„Auð­vitað mikið á­fall“

Karlmaður á fertugsaldri lést eftir öfluga sprengingu í húsnæði Fóðurblöndunnar og annar er alvarlega slasaður. Mennirnir voru að sinna viðhaldsvinnu við tóman tank þegar sprengingin varð. Framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar segir um áfall að ræða. 

Innlent

Sprengingin hjá Fóður­blöndunni og á­hyggjur af stríðinu í Íran

Karlmaður lést þegar sprenging varð í húsnæði Fóðurblöndunnar í morgun. Annar liggur á sjúkrahúsi alvarlega slasaður. Mennirnir voru að vinna við viðhald þegar sprengingin varð. Við förum ítarlega yfir málið í fréttatímanum klukkan hálf sjö og ræðum við framkvæmdastjóra Fóðurblöndunnar.

Innlent

Gert að rann­saka tvö mál betur en gefa ekkert upp

Embætti Héraðssaksóknara gefur ekkert upp um stöðuna á rannsókn mála tveggja barna á leikskólanum Múlaborg, sem Ríkissaksóknari gerði embættinu að taka til meðferðar á ný. Starfsmaður á leikskólanum hefur verið ákærður fyrir að nauðga einu barni tvívegis.

Innlent