
Veiði

Risalax úr Aðaldalnum og fleiri stórir hængar
Haustveiðin getur verið algjört ævintýri og það eru margir veiðimenn sem gera sérstaklega út á að fara seint á tímabilinu til þess að freista þess að ná í stóran hæng á fluguna.

Vaxandi veiði á sjóbirting í Eyjafjarðará
Það þarf ekki að fara mörg ár aftur í tímann þegar það þótti fréttnæmt að fá sjóbirting í Eyjafjarðará en það hefur heldur betur breyst.

Þáttur tvö af Veiðinni með Gunnari Bender
Veiðiþættirnir hans Gunnar Benders eru loksins komnir á Vísi og veiðimenn fagna því alltaf þegar það er hægt að horfa á þætti um veiði í lok tímabilsins

Fimm laxveiðiár komnar yfir 1.000 laxa
Nýjar veiðitölur úr laxveiðiánum sýna að rigningin sem var orðin ansi kærkomin hefur komið ánum sem voru orðnar ansi vatnslitar í betra vatn og veiðin lyftist upp samhliða því.

102 sm lax úr Ytri Rangá
Það er greinilegt að stóru hængarnir eru farnir að pirra sig all hressilega á flugum veiðimanna en það er orðið næstum því daglegt brauð að sjá hænga yfir 90 sm á samfélagsmiðlum.

Sá stærsti úr Elliðaánum í sumar
Elliðaárnar eru sífellt að skila veiðimönnum stærri löxum og í sumar hafa nokkrir yfir 90 sm gengið í ánna og loksins einn af þeim sem veiðist.

Veiðin að glæðast eftir rigningar
Loksins rigndi vel um helgina á vestur og suðurlandi en þar hafði verið meira og minna úrkomulaust síðan í byrjun júlí.

Veiðin með Gunnari Bender: „Það er búið að vera hundleiðinlegt veður í Reykjavík“
Þættirnir Veiðin með Gunnari Bender hefja göngu sína á Vísi í dag en samtals verða þættirnir átta talsins og koma út alla laugardagsmorgna á Vísi.

Eldislaxar veiðast í mörgum ám
Það er sorglegt að segja frá því að eldislax hefur veiðst ansi víða síðustu daga og það er augljóst að þetta er bara byrjunin.

Vikutölurnar endurspegla ástandið í laxveiðiánum
Vikulegar tölur úr laxveiðiánum sýna mjög greinilega hvað árnar á vestur og suðurlandi eiga erfitt vegna vatnsleysis þessa dagana.

Gæsaveiðin fer ágætlega af stað
Þrátt fyrir allt umtal um sölubann á grágæsaafurðum hafa skyttur um allt land fjölmennt á gæs en veiði hófst 20. ágúst á grágæs og heiðagæs.

Veiddi 34 punda lax við Tannastaði
„Þetta er lang, langstærsti lax, sem ég hef fengið en ég veiddi hann á flugu, sem heitir „Black chost" við Tannastaði undir Ingólfsfjalli í gær. Hann hefur verið 32 til 34 pund en ég sleppti honum strax,” segir Grímur Arnarson, veiðimaður búsettur á Selfossi.

Selja veiðileyfi til styrktar félagi krabbameinssjúkra barna
Veiðifélagið Kolskeggur sem meðal annars er með Eystri Rangá á sínum snærum ætlar að láta allan ágóða af veiðileyfasölu dagsins 13. október renna til styrktar félagi krabbameinssjúkra barna.

Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum
Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum sýna alveg svart á hvítu hvað þurrkasvæðin á landinu eru að koma illa út og árnar á þeim svæðum að komast vatnsmagn sem er á mörkunum við að vera veiðanlegt.

Ennþá ágæt veiði í Veiðivötnum
Það er töluvert um almennt spjall og fyrirspurnir milli veiðimanna á vefnum og þar er yfirleitt verið að spyrja með einhverjum stað til að skjótast á í dagstúr svona áður en tímabilið er búið.

Loksins spáð rigningu sem gæti lífgað uppá veiðina
Veiðimenn á suður og vesturlandi hafa ekki átt dagana sæla í vatnlitlum ám og endalausri blíðu en núna spáir loksins rigningu.

Of hraðar skiptingar í Elliðaánum
Elliðaárnar eru líklega vinsælasta veiðiáin í sumar og laxgengdin í hana með eindæmum góð en 2.159 fiskar eru gengnir upp í hana.

Ytri Rangá stingur af
Nýjar veiðitölur úr laxveiðiánum sýna að það er hart í ári í mörgum ánum ýmist vegna vegna vatnsleysis eða laxleysis.

20.193 fiskar veiðst í Veiðivötnum
Veiðin í Veiðivötnum er búin að vera mjög góð í sumar og þrátt fyrir að vel sé liðið á veiðitímann eru flestir ennþá að eiga góða veiðidaga við vötnin.

Nýjar vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum
Nýjar vikulegar tölur úr laxveiðiánum bera með sér vatnsleysi og í raun þá staðreynd að sumarið er undir meðallagi í flestum ánum.

Úrkomuleysið farið að hafa mikil áhrif
Margar laxveiðiárnar á vesturlandi eru orðnar ansi vatnslitlar og það á eftir að hafa áhrif á veiðitölur vikunnar sem beðið er eftir.

Ytri Rangá komin yfir 1.000 laxa
Það er alltaf ákveðin tímamót á hverju sumri þegar fyrsta laxveiðiáin fer yfir 1.000 laxa og þetta sumarið er það Ytri Rangá sem rýfur múrinn.

Flott veiði á Arnarvatnsheiði
Hálendisveiðin hefur verið afar góð þetta sumarið og veiðimenn sækja sífellt fleiri inná heiðarvötnin oftar en ekki í ljósi mikilla hækkana á laxveiðileyfum.

101 sm lax úr Ytri Rangá
Stærsti lax úr Ytri Rangá það sem af er sumri veiddist fyrir tveimur dögum í ánni og mældist þessi hörku fiskur 101 sm.

59 laxar úr Eystri Rangá í gær
Það er vel þekkt með hafbeitarárnar og systurnar Eystri og Ytri Rangá að þær geta verið seinar í gang en það virðist loksins vera að lifna yfir veiði þar á bæ.

Lifnar yfir Hólsá og Eystri Rangá
Eystri Rangá er stundum sein í gang og það virðist ætla vera bragurinn á henni þetta árið en sem betur fer er veiðin öll að koma til.

30 laxa dagur í Jöklu
Það er alls ekki rólegt á öllum vígstöðvum í laxveiðinni en þeir sem hafa verið við bakkann á Jöklu síðustu daga eru heldur betur kátir.

Lúsugur lax 82 km frá sjó
Því er oft velt upp þegar rætt er um gönguhraða laxa upp árnar hversu langt hann getur farið á ákveðnum tíma og við teljum að sá fljótasti sé fundinn.

Vikulegar tölur úr laxveiðiánum
Vikulegar tölur úr laxveiðiánum eru ekki beint til að hrópa húrra fyrir en engin laxveiðiánna er komin yfir 1.000 laxa sem verður að teljast afleitt.

Góðir dagar inn á milli í Langá
Á dögum vatnsleysis í ánum á vestur og suðurlandi eru tvær ár sem þurfa líklega ekki að kvarta undan of litlu vatni en það eru Grímsá og Langá.