Enski boltinn

Bruce eftir dómgæsluna á Anfield: „Hræðilegur dómur“
Steve Bruce, stjóri Newcastle, var ekki sáttur með dómgæsluna á Anfield í dag er Newcastle gerði 1-1 jafntefli við ríkjandi Englandsmeistara í Liverpool.

Sniðganga samfélagsmiðla um næstu helgi
Enskur fótbolti hefur tekið þá ákvörðun að sniðganga samfélagsmiðla um næstu helgi til að mótmæla áreiti á leikmenn sem á sér stað á miðlunum.

Fallnir Sheffield-menn afgreiddu Brighton
Sheffield United vann 1-0 sigur á Brighton í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn var liður í 33. umferðinni.

Salah í sögubækurnar
Mohamed Salah, framherji Liverpool, skrifaði í sögubækur liðsins með marki sínu í 1-1 jafnteflinu gegn Newcastle.

Mikilvægur sigur Chelsea í Meistaradeildarbaráttunni
Chelsea vann ansi öflugan 1-0 sigur á West Ham á útivelli er liðin mættust í 33. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Watford upp í úrvalsdeildina eftir stutt stopp
Watford tryggði sér í dag sæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta að ári með 1-0 sigri á Millwall, félagi Jóns Daða Böðvarssonar. Watford fer því upp eftir aðeins eina leiktíð í Championship-deildinni.

Ósáttir stuðningsmenn United fjölmenna fyrir utan Old Trafford
Stuðningsmenn Manchester United fara að fordæmi fylgjenda annarra stórliða á Englandi og lýsa andstöðu sinni við stjórn félagsins vegna ofurdeildarinnar. Þeir kalla eftir sölu Glazer-fjölskyldunnar á félaginu.

Ekki frammistaða sem verðskuldar Meistaradeildarsæti
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var að vonum ósáttur eftir 1-1 jafntefli liðs hans gegn Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Um er að ræða annan leikinn í röð þar sem Liverpool fær á sig jöfnunarmark undir lok leiks.

Ævintýralegar lokamínútur á Anfield
Joe Willock tryggði Newcastle stig með marki í uppbótartíma gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 1-1 urðu úrslit leiksins eftir dramatískan lokakafla.

„Harma mjög“ aðkomu að Ofurdeildinni
Roman Abramovich, eigandi Chelsea, sendi ásamt stjórn félagsins út yfirlýsingu í gærkvöld þar sem aðkoma liðsins að stofnun ofurdeildarinnar er hörmuð. Félagið hefur, líkt og önnur ensk lið sem áttu hlut að máli, sætt mikilli gagnrýni.

90% stuðningsmanna Tottenham vilja stjórnina burt
Stuðningsmannafélag Tottenham Hotspur í Lundúnum sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöld þar sem kallað er eftir því að stjórn félagsins segi af sér vegna hluts félagsins í stofnun ofurdeildarinnar. 90% meðlima kusu með ákalli afsagnar.

Kane og De Bruyne í kapphlaupi við tímann
Bæði Kevin De Bruyne og Sergio Agüero gætu verið með Manchester City er liðið mætir Tottenham Hotspur í úrslitaleik enska deildabikarsins á morgun. Þá vonast Tottenham-menn til að fyrirliði liðsins Harry Kane verði með.

Gylfi Þór með hærri einkunn en allir leikmenn Arsenal
Gylfi Þór Sigurðsson átti fínan leik er Everton vann Arsenal 1-0 á Emirates-vellinum í gær. Bernd Leno stal fyrirsögnunum með klaufalegu sjálfsmarki sínu en Gylfi Þór var nálægt því að brjóta ísinn.

Eigandi Spotify til í að skoða kaup á Arsenal
Eigandi og stofnandi tónlistarveitunnar Spotify er tilbúinn í að fjárfesta í enska knattspyrnufélaginu Arsenal.

Hörð mótmæli fyrir utan Emirates-völlinn í kvöld
Þó frammistaða Arsenal í 0-1 tapinu gegn Everton í kvöld hafi ekki verið upp á marga fiska voru leikmenn og forráðamenn félagsins eflaust sáttir með að reitt stuðningsfólk liðsins fékk ekki að vera í stúkunni.

Íþróttamannsleg framkoma Gylfa Þórs að leik loknum
Everton vann 1-0 útisigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Bernd Leno gerði sig sekan um skelfileg mistök sem tryggðu Everton stigin þrjú. Gylfi Þór Sigurðsson fór beint upp að markverðinum að leik loknum.

Slysalegt sjálfsmark Leno tryggði Everton sigur
Everton vann 1-0 útisigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld þökk sé einkar skrautlegu sjálfsmarki þýska markvarðarins Bernd Leno. Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn í liði Everton.

Konaté á leið til Liverpool
Svo virðist sem Ibrahima Konaté, miðvörður RB Leipzig, sé við það að ganga til liðs við Englandsmeistara Liverpool. Hann mun skrifa undir fimm ára samning við félagið.

Klopp ekki fengið afsökunarbeiðni frá Henry
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur ekki fengið persónulega afsökunarbeiðni frá John W. Henry, eiganda félagsins, vegna tilraunar til stofnunnar Ofurdeildarinnar fyrr í vikunni. Klopp segir það óþarft.

Grenjar af hlátri yfir því að Woodward hafi hætt vegna andstöðu við ofurdeildina
Enskir fjölmiðlar greindu í gær frá því að Ed Woodward hafi ákveðið að hætta sem stjórnarformaður Manchester United þar sem hann hafi ekki getað stutt áform eigenda félagsins um að taka þátt í ofurdeildinni. Ekki eru allir tilbúnir að kaupa þessa skýringu.

Mikilvægur sigur hjá Leicester en WBA er í vondum málum
Leicester City vann West Bromwich Albion 3-0 í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lærisveinar Sam Allardyce hefðu þurft á sigri að halda en liðið er svo gott sem fallið.

Reiðir stuðningsmenn Manchester United mættu á æfingasvæði félagsins
Hópur stuðningsmanna Manchester United mætti á æfingasvæðið félagsins í morgun til að láta í ljós skoðun sína á eigendum félagsins sem og áætlanir þeirra að vera með í svokallaðri ofurdeild.

Þrjú mörk, tvö rauð spjöld og City skrefi nær titlinum
Manchester City steig stórt skref í átt að enska meistaratitlinum með 2-1 sigri á Aston Villa á útivelli í kvöld.

Dramatískur sigur í fyrsta leiknum eftir brottrekstur Mourinho
Tottenham vann dramatískan 2-1 sigur á Southampton í kvöld en þetta var fyrsti leikur félagsins eftir að Jose Mourinho var rekinn.

Maðurinn með völdin hjá Gylfa og félögum fær nýjan samning
Everton hefur framlengt samning sinn við yfirmann knattspyrnumála hjá félaginu, Marcel Brands, um þrjú ár.

Telja að áhorf muni rúmlega þrefaldast með auðveldara aðgengi
Ný rannsókn sýnir að áhorf á kvennaknattspyrnu gæti aukist um að allt að 350 prósent með auknu aðgengi og sýnileika.

Sarri orðaður við stjórastöðuna hjá Tottenham
Samkvæmt enska götublaðinu Daily Mail hefur Tottenham Hotspur heyrt í Maurizio Sarri, fyrrum þjálfara Chelsea, Juventus og Napoli. Gæti hann tekið við Lundúnaliðinu í sumar.

Neville: Woodward sá sæng sína upp reidda hjá Man. Utd.
Gary Neville segir að Ed Woodward hafi vart verið stætt áfram í starfi hjá Manchester United eftir að félagið dró sig út úr ofurdeildinni svokölluðu.

Conor segist vera að íhuga að kaupa Man. Utd.
Írski bardagakappinn Conor McGregor spurði fylgjendur sína á Twitter í gær hvort hann ætti ekki bara að kaupa Manchester United.

Eigandi Liverpool biðst afsökunar: „Ég brást ykkur“
John W. Henry, eigandi Liverpool, hefur beðið stuðningsmenn félagsins afsökunar á aðkomu félagsins að ofurdeildinni.