Enski boltinn

Mourinho vonast eftir bónus og medalíu fyrir að „vinna“ deildina með United
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Fenerbahce, mætir sínu gamla félagi í Evrópudeildinni á morgun þegar Manchester United spilar við tyrkneska liðið. Mourinho var að sjálfsögðu spurður út í sitt gamla félag á blaðamannafundi fyrir leikinn.

Slot skýrir stöðu Chiesa: „Ég vorkenni honum“
Arne Slot sat fyrir svörum á blaðamannafundi í aðdraganda leiks liðs hans Liverpool við RB Leipzig í Meistaradeild Evrópu í kvöld og skýrði út stöðu Ítalans Federico Chiesa hjá liðinu. Chiesa hefur verið inn og út úr hóp hjá enska liðinu frá skiptum hans til Bítlaborgarinnar í sumar.

Áfall fyrir stórleikinn við Liverpool: „Ekki frábærar fréttir“
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir það vissulega „ekki frábærar fréttir“ að ítalski varnarmaðurinn Riccardo Calafiori hafi meiðst í hné í leiknum við Shaktar Donetsk í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld.

Fimm leikja bann fyrir að hrækja er dómararnir gengu framhjá
Evangelos Marinakis, hinn skrautlegi eigandi Nottingham Forest og Olympiacos, hefur verið dæmdur í fimm leikja bann í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta.

Sigurmark Stones stóð réttilega og Saliba átti rauða skilið
Dermot Gallagher dæmdi á sínum fjöldann allan af leikjum í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Í dag er hann dómarasérfræðingur Sky Sports og fer þar yfir stærstu ákvarðanir hverrar umferðar fyrir sig. Það var af nægu að taka um liðna helgi.

Van Dijk byrjaður í viðræðum
Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, segist vera byrjaður að ræða við stjórnendur félagsins um nýjan samning.

Liverpool tyllti sér á toppinn
Liverpool og Chelsea hafa bæði byrjað tímabilið í ensku úrvalsdeildinni vel en Liverpool þó töluvert betur. Sigur liðsins í dag var sá fjórði í röð og situr liðið nú eitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.

Stones tryggði City sigur í uppbótatíma
John Stones var hetja ensku meistaranna í dag. Hann skoraði sigurmark Manchester City á fimmtu mínútu í uppbótartíma þeagr City vann 2-1 útisigur á Wolves. Miðvörðurinn kom sínu liði líka á toppinn í ensku úrvalsdeildinni.

Everton vann og endurkomusigrar hjá Leicester og Villa
Everton, Aston Villa, Leicester og Brighton fögnuðu öll sigri í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Arsenal mistókst að koma sér á toppinn
Arsenal gat tyllt sér tímabundið á topp ensku úrvalsdeildarinnar í dag með sigri á Bournemouth en varð heldur betur ekki kápan úr því klæðinu.

Langþráð og laglegt mark Höjlund tryggði Man. Utd sigurinn
Erik ten Hag náði greinilega að kveikja í sínum mönnum í hállfeik í 2-1 endurkomusigri liðsins á Brentford í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford í dag.

Willum Þór með mikilvægt mark í endurkomusigri
Willum Þór Willumsson skoraði þegar Birmingham City vann 3-1 útisigur á Lincoln City í ensku C-deildinni í dag.

Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs
Tottenham lenti undir í fyrri hálfleik en svaraði því með fjórum mörkum og öruggum 4-1 sigri á West Ham í ensku úrvalsdeildinni í hádegisleiknum í dag.

Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins
Fyrrum fyrirliði kvennaliðs Fulham hefur komið fram með ásakanir á hendur látnum fyrrum eiganda félagsins.

Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn
Knattspyrnustjórinn reyndi Steve Bruce verður ekki með liði sínu Blackpool á morgun eftir að hafa misst afabarn sitt, aðeins fjögurra mánaða gamalt.

„Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, sakar fjölmiðlamenn um að spinna lygar um framtíð hans í starfi. Allir hjá United séu á sömu blaðsíðu.

Mainoo frá í nokkrar vikur
Manchester United verður án miðjumannsins Kobbies Mainoo næstu vikurnar. Hann er meiddur aftan í læri.

Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal
Eddie Howe og Sean Dyche segjast hvorugur hafa fengið símtal frá enska knattspyrnusambandinu vegna landsliðsþjálfarastarfs Englands. Sambandið kveðst hafa rætt við tíu aðila áður en það réði Thomas Tuchel til starfa.

Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi
Tvö félög úr enska kvennafótboltanum fá að prófa það að leyfa fólki að drekka áfengi á sama tíma og það horfir á fótboltaleiki úr áhorfendastúkunni.

Pogba segir að danssagan sé lygi
Paul Pogba segir ekkert til í sögu Waynes Rooney um að þeir Jesse Lingard hafi dansað inni í búningsklefa Manchester United eftir tap.

Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans
David Beckham viðurkennir að honum sárni að fólk líti frekar á hann sem stjörnu en fótboltamann.

Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni
Enska úrvalsdeildin í fótbolta hefst á ný um helgina eftir landsleikjahlé en búnar eru sjö umferðir af tímabilinu.

Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar
Stuðningsmenn Liverpool þurfa væntanlega að horfa á eftir einum vinsælasta leikmanni liðsins eftir þetta tímabil.

Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað
Enska götublaðið The Sun hefur greint frá því að Annie Kilner hafi sótt um skilnað frá Kyle Walker, leikmanni Englandsmeistara Manchester City og enska landsliðsins eftir þrálátt framhjáhald hans.

Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“
Gary Neville, sparkspekingur og fyrrum landsliðsmaður Englands, segist fyrir ákveðnum vonbrigðum að Thomas Tuchel hafi verið ráðinn þjálfari enska landsliðsins. Hann sé þó góður kostur í starfið.

Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki
Forráðamenn Manchester United hafa bannað Sir Alex Ferguson, sigursælasta knattspyrnustjóra í sögu félagsins, og öðrum í fótboltastjórn þess að fara inn í búningsklefann á Old Trafford eftir leiki.

Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum
Enska knattspyrnusambandið hefur nú staðfest það að Þjóðverjinn Thomas Tuchel taki við sem nýr landsliðsþjálfari þegar Þjóðadeildinni lýkur.

Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“
Eigendur Manchester United hafa ákveðið að endurnýja ekki samning við Sir Alex Ferguson um að starfa sem sendiherra félagsins. Eric Cantona er æfur yfir þessu og segir félagið sýna stjóranum sigursæla vanvirðingu.

Tuchel tekur við enska landsliðinu
Þjóðverjinn Thomas Tuchel verður næsti þjálfari enska karlalandsliðsins í fótbolta.

Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun
Jonas Eidevall er hættur sem knattspyrnustjóri Arsenal eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Hann hafði stýrt liðinu í þrjú ár.