Enski boltinn

Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland
Það er vitað að þekktir einstaklingar hafa áhrif á sölutölur sjáist þeir nota eða neyta tiltekinnar vöru. Í Noregi er knattspyrnumaðurinn Erling Haaland eflaust ofarlega á lista yfir þá sem hafa hvað mest áhrif hvað þetta varðar.

Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, kvartaði sáran yfir leikjaálagi á blaðamannafundi liðsins í dag og þá sérstaklega yfir hádegisleikjunum sem hann þolir ekki.

Ten Hag vildi fá Kane í sumar: „Þú veist að hann skorar þrjátíu mörk“
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Harry Kane hafi verið fyrsti kostur liðsins í framherjastöðuna síðasta sumar.

Fékk hrós frá Klopp: Vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt
Ung listakona málaði mynd þar sem viðfangsefnið var Jürgen Klopp og magnaður tími hans sem knattspyrnustjóri Liverpool. Hún fékk síðan að hitta þýska stjórann og sýna honum myndina.

Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle
Sandro Tonali játaði sekt sína í fimmtíu brotum á veðmálareglum enska knattspyrnusambandsins eftir að hann gekk til liðs við Newcastle síðasta haust.

Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út
Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti fjara óðum út. Liðið tapaði 2-0 gegn Chelsea á Stamford Bridge í kvöld.

„Þið eruð lið fullt af feitabollum“
Pep Guardiola var harðorður við leikmenn Manchester City á fyrsta fundi sínum eftir að hann tók við starfinu árið 2016 ef marka má þáverandi leikmann liðsins.

Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman
Breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe, sem á vænan hlut í enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United, hefur komið því í gegn að starfsfólki félagsins verði meinað að vinna að heiman í störfum sínum fyrir félagið.

Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag
Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, hélt því nýverið fram að lið hans væri eitt það skemmtilegasta, og þróttmesta, áhorfs í ensku úrvalsdeild karla. Stenst sú staðhæfing ef tölfræði síðustu 10 leikja er skoðuð?

Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum
Issy Hobson varð um helgina yngsti markaskorarinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar hjá konunum.

„Mo Salah sá sem að gekk of langt“
Mohamed Salah fór yfir strikið þegar hann reifst við knattspyrnustjóra sinn hjá Liverpool, Jürgen Klopp, á hliðarlínunni á laugardag í 2-2 jafnteflisleiknum við West Ham í ensku úrvalsdeildinni.

Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á
Sextán af 20 liðum ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu hafa samþykkt tillögu þess efnis að sett verði eyðsluþak á lið deildarinnar. Manchester City og United ásamt Aston Villa voru á móti tillögunni á meðan Chelsea sat hjá.

Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð
Flestir af stærstu fjölmiðlum Bretlandseyja hafa staðfest að enska knattspyrnufélagið Manchester United sé tilbúið að hlusta á tilboð í nærri alla leikmenn liðsins, þar á meðal Marcus Rashford.

Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram
Brasilíumaðurinn Thiago Silva mun kveðja Chelsea eftir þetta tímabil en samningur hans rennur úr í sumar og verður ekki endurnýjaður.

Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“
Mikel Arteta var mjög stoltur af leikmönnum sínum eftir að Arsenal lagði Tottenham Hotspur í því sem var hann 100. sigur í ensku úrvalsdeildinni. Sigurinn lyfti Arsenal á topp deildarinnar.

„Ekki boðlegt á þessu getustigi“
„Við gáfum þeim of auðvelt aðgengi að markinu okkar í fyrri hálfleik og það er ekki boðlegt á þessu getustigi,“ sagði Ange Postecoglou, þjálfari Tottenham Hotspur, eftir tap sinna manna gegn erkifjendunum í Arsenal þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.

Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum
Kvennalið Manchester City er nú með sex stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Englandsmeistarar Chelsea eru sex stigum á eftir toppliðinu og eiga tvo leiki til góða þegar skammt er til loka tímabilsins.

Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal
Manchester City vann 2-0 útisigur á Nottingham Forest í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeild karla. Man City er því aðeins stigi á eftir Arsenal og með leik til góða þegar Skytturnar eiga aðeins þrjá leiki eftir af tímabilinu.

Bournemouth fór illa með Brighton
Skelfilegt gengi Brighton hélt áfram þegar liðið tapaði fyrir Bournemouth, 3-0, á Vitality leikvanginum í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag
Arsenal náði fjögurra stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með sigri á Tottenham, 2-3, í Norður-Lundúnaslagnum í dag. Skytturnur voru 0-3 yfir í hálfleik en Spurs hleypti mikilli spennu í leikinn í seinni hálfleik.

Segir að VAR skaði ímynd enska boltans
Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að notkun myndbandsdómgæslu (VAR) skaði ímynd enska boltans.

Stendur með Salah og skilur pirring hans
Alan Shearer kom Mohamed Salah, leikmanni Liverpool, til varnar vegna rifrildisins við Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra liðsins, í leiknum gegn West Ham United í gær. Shearer skilur pirring Salahs.

Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni
Manchester United gerði 1-1 jafntefli við Burnley á heimavelli sínum Old Trafford í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í gær, laugardag. Erik ten Hag, þjálfari liðsins, fór ekki beint í frasabókina eftir leik en viðtal hans hefur þó vakið talsverða athygli.

Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa
Aston Villa og Chelsea gerðu 2-2 jafntefli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Tvö mörk voru dæmd af Chelsea í leiknum.

Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin
Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, var heldur súr eftir 2-2 jafntefli sinna manna gegn West Ham United í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta fyrr í dag. Hann ræddi við fjölmiðla um leikinn og mögulegan arftaka sinn, Arne Slot.

Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild
Sheffield United er fallið úr ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Þetta var endanlega staðfest eftir að Sheffield tapaði 5-1 fyrir Newcastle United í dag en á sama tíma settu Norðanmenn met.

Enn ein vonbrigðin fyrir United
Manchester United og Burnley skildu jöfn, 1-1, á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í dag. Jóhann Berg Guðmundsson lék síðustu átján mínúturnar fyrir Burnley.

Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“
Grunnt virðist á því góða milli Mohameds Salah og Jürgens Klopp. Egyptinn var dularfullur í svörum eftir rifrildi þeirra í leiknum gegn West Ham United í dag.

Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, og Mohamed Salah, leikmaður liðsins, virtust rífast á hliðarlínunni í leiknum gegn West Ham United í dag.

Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins
Titilvonir Liverpool eru orðnar afar veikar eftir 2-2 jafntefli við West Ham United í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool var undir í hálfleik, kom til baka en Michail Antonio skoraði jöfnunarmark West Ham þegar þrettán mínútur voru eftir.