Fastir pennar
Höfuðborg hins bjarta norðurs
Fór menningarreisu norður í lognsældina í Eyjafirði um helgina

Bílabúskapur
Þess er eflaust skammt að bíða að fyrsti Íslendingurinn láti grafa sig í bílnum sínum, en eins og kunnugt er tíðkaðist það til forna að höfðingjar létu grafa sig með eftirlætis hestinum sínum.

Er tími uppbyggingar liðinn?
Miðborgin er komin í nefnd, Aðgerðahóp um miðborg Reykjavíkur. Það er ekkert nýtt að staða miðborgarinnar sé komin í nefnd. Þar hefur hún átt lögheimili í að minnsta kosti rúman áratug. Það er misgott hvað kemur svo frá þessum nefndum og rýnihópum.

Herbergið fyrir barnið
Samkvæmt fréttum eru 37 þúsund fermetrar af íbúðarhúsnæði til sölu á Austurlandi. Kaupendur fást ekki og verð fer að lækka aftur eftir þá þenslu sem varð þar um fárra missera skeið.

Nelson Obama
Á regnköldum febrúardegi 1988 tók ég jarðlestina upp í Harlem. Jesse Jackson hélt framboðsfund fyrir utan eina háhýsið í hverfi svartra, á 125. stræti.

Hverjir sofa?
Flutningabílstjórar og eigendur eyðslufrekustu tómstundabíla hafa skipulagt mótmæli að frönskum sið síðustu daga. Enginn hefur komist hjá að taka eftir því.

Árangur er ekki sjálfgefinn
Það verður seint hægt að saka Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, fyrir áhugaleysi á löggæslustörfum í landinu þau ár sem hann hefur setið í ráðuneytinu.

Engan bölmóð!
Stundum er því haldið fram, að Íslendingar séu fram úr hófi eyðslusamir. En ég held, að eyðslusemi okkar sé skynsamlegri en virðast kann í fyrstu...
Einkaþotan
Svolítið er hún séríslensk umræðan um einkaþotu

Saksóknari setur lögreglu tímamörk
Ríkissaksóknari hefur sett lögreglu tímamörk um rannsókn nauðgunarmála. Þessi fyrirmæli ríkislögreglustjóra koma því miður ekki til af góðu. Rannsóknartími nauðgunarmála er óheyrilega langur og hefur lengst ár frá ári milli áranna 1998 og 2006.

Rjúkandi ráð
Sumir halda, að gengisfall krónunnar frá áramótum muni ganga til baka, kannski alla leið.

Samstaða um lykilatriði: Orð með þyngd
Ræða forsætisráðherra á ársfundi Seðlabankans er að líkindum sú mikilvægasta sem flutt hefur verið á þeim vettvangi frá upphafi vega. Það var hún ekki vegna upphrópana. Þunginn í henni var sannast sagna í öfugu hlutfalli við látleysi orðanna.
Slegið á hendur tollgæslunnar
Varla er ég einn landsmanna sem hristi hausinn yfir nýjustu
Framtíð til bráðabirgða
Undarlegt, en þó fremur fyndið, að lesa ummæli Gísla Marteins

Eftirlitslaust eftirlit
Heimildir lögreglunnar til að hafa eftirlit með fólki án vitneskju þess eru rúmar samkvæmt íslenskum lögum. Reyndar eru lagaákvæðin svo opin að þau virðast fremur vera sniðin að hagsmunum lögreglunnar en borgaranna.

Flugvöllurinn festur í sessi
Þá er það ljóst. Flugvöllurinn verður áfram í Vatnsmýri.

Olíuþegnarnir
Ég tek ofan fyrir trukkabílstjórum landsins. Þeir hafa afsannað

Evrópuumræðan
Ólöf Nordal alþingismaður opnaði greinaflokk um Evrópumálefni hér í Fréttablaðinu í liðinni viku með þörfum ábendingum um aðferðafræði þessarar mikilvægu umræðu.

Valdið er laust
Krónan hrundi fyrir páska og daginn eftir skipaði kaupmaður í Kringlunni búðarkrökkum sínum að hækka allar vörur um tvö þúsund kall. Siðlaust og ólöglegt en gert án aðfinnslu.
Ó, borg mín, borg
Ójá, víst er miðborgin ljót. Forljót og fer versnandi.

Brennum borgina
Enn herðist hnúturinn um háls skipulagsyfirvalda í Reykjavík. Þau eru bandingi á palli með snöru um hálsinn sem játar kjökrandi að hann hafi ekkert gert og geti ekkert gert.

Fallandi gengi
Ekki er hægt að segja annað en að landsmenn hafi tekið hraustlega við sér eftir að fréttir bárust af mikilli gengisfellingu nú á dögunum.
Opinber laun
Skemmtilegur samkvæmisleikur sem blasir við landsmönnum í fjölmiðlum
Alvöru þjónusta
Það er svo sem ekki alvanalegt að hrósa fólki og fyrirtækjum

Í bráð og lengd
Vaxtahækkun Seðlabankans og ráðstöfunum hans til þess að auka lausafé á fjármálamarkaðnum var yfirleitt mætt á fremur jákvæðan hátt. Samtímis höfðu hræringar á erlendum fjármálamörkuðum jákvæð áhrif bæði á gengi hlutabréfa og krónunnar.

Þegar gengið fellur
Nálægar þjóðir nefna það skiptahlutfall sem við köllum gengi. Bæði orðin lýsa því, hversu mikið af innlendri mynt þarf til að greiða fyrir erlendan gjaldeyri, til dæmis hversu margar krónur fyrir einn dollara eða eina evru.

Löggæsla er ekki átaksverkefni
Í Fréttablaðinu í gær var sagt frá því að brotum gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkur hefði snarfækkað frá því að þau voru flest síðastliðið haust. Meðal brota af þessu tagi er til dæmis þegar fólk kastar af sér vatni á almannafæri.

Rykið dustað
Í þeirri nútímavæðingu mannlífsins sem hefur verið í fullum gangi nú um nokkurt skeið, hafa ýmis grundvallaratriði orðið útundan, og eitt af þeim er bóklestur.

Nýir brennuvargar?
Leikritið „Biedermann og brennuvargarnir“ eftir svissneska rithöfundinn Max Frisch var frumsýnt í Zürich vorið 1958.

ESB er NATÓ okkar tíma
Erfiðlega tekst að halda krónunni í því horfi að allir séu sáttir. Ýmist er hún of sterk fyrir útflutningsfyrirtækin og ferðaþjónustuna, eða of veik fyrir neytendur og þá sem skulda í erlendri mynt, jafnt fyrirtæki og einstaklinga.