Fastir pennar

Kaupskipin verði áfram skráð hér

Við erum eyþjóð og eigum nær allt okkar undir sjóflutningum með helstu aðdrætti til landsins. Þess vegna brennur þetta mál heitar á okkur en meginlandsþjóðum, sem eiga margra kosta völ við flutninga á helstu nauðsynjum fyrir íbúa landa sinna...

Fastir pennar

Handboltaangistin

Handboltamennirnir standa á einhvern hátt miklu nær hjarta okkar en moldríku fótboltamennirnir sem maður sér á Sýn. Þeir eru einhvern veginn miklu raunverulegri. Við munum aldrei komast á heimsmeistaramót í fótbolta. Það er fyrir fólk úr stórum borgum.

Fastir pennar

Víst hefur skattbyrðin þyngst

Skattbyrðin hér heima hefur snarþyngzt eins og Stefán Ólafsson prófessor lýsti í Morgunblaðinu um daginn. Hún nemur nú 47% af landsframleiðslu borið saman við 40% 1988 og er komin upp fyrir meðallag Evrópusambandsríkjanna (45%). Það er því ekki lengur boðlegt að afsaka laka almannaþjónustu á Íslandi með lágum sköttum.

Fastir pennar

Stórt skúbb fyrir Reykjavík

Einhver mesti snillingurinn í arkitektúr og skipulagsfræðum verður Reykjavíkurborg til ráðgjafar um uppbyggingu í Vatnsmýri. Það er að sönnu mjög spennandi. Á sama tíma á að fara að reisa hið ógurlega hátæknisjúkrahús og Hringbrautarvitleysan heldur áfram með nýrri bensínstöð...

Fastir pennar

Heilagur réttur að finnast ekkert heilagt

Málið snýst nefnilega ekki lengur um birtingu teikninga í dönsku dagblaði heldur samstöðu um það frelsi til orðs og æðis sem er megineinkenni lýðræðisins. En það blása ekki aðeins naprir vindar um það frelsi að austan heldur einnig að vestan, frá landi hinna hugrökku og frjálsu, þar sem stríð gegn hryðjuverkum hefur á rétt ríflega fjórum árum leitt til algjörra umskipta í afstöðu stjórnmálamanna til mannréttinda og einkalífs.

Fastir pennar

Sjálfstæðismenn í hjarta sínu

Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins – detta mér allar dauðar lýs úr höfði! Ég spurði í gær hvort þessi ákvörðun snerist um pólitík eða blaðamennsku – hallast nú fremur að því fyrrnefnda. Þorsteinn var óskýr minning í blaðamennsku þegar ég var að hefja störf...

Fastir pennar

Sagan öll í fréttatilkynningu

Nú er algengt að sjá menn leiða líkur að því að eftir ríflega fimmtán ár, þegar leikskólabörn samtímans fara í háskóla, verði meirihluti allrar framleiðslu heimsins í Asíu.

Fastir pennar

Mikil áhrif á stjórnmálin

Stjórnvöld standa nú frammi fyrir freistandi tilboðum frá erlendum álfyrirtækjum. Allar líkur eru á því að þeim verði tekið og góðærið sem hér hefur ríkt þannig framlengt um nokkur ár. Við munum innan tíðar sjá stækkun álbræðslunnar í Straumsvík og kannski nýtt álver á Norðurlandi. Það verður örugglega hart tekist á um stóriðju- og virkjanamálin á vettvangi stjórnmálanna.

Fastir pennar

Hættum griðkaupum

Breskir listamenn og grínarar, með Rowan Atkinson í fararbroddi, mótmæla nýjum lögum sem miðast við að banna andróður gegn trúarbrögðum. Samkvæmt lögunum hefði Salman Rushdie ekki getað gefið út Söngva Satans, Atkinson hefði ekki getað sýnt grínatrið...

Fastir pennar

Hamas tekur völdin í Palestínu

Það er ljóst að Hamas-samtökunum er mikill vandi á höndum. Það er ekki nóg að fara með sigur af hólmi í kosningunum því fylgir líka mikil ábyrgð, og spurningin er hvort forystumenn þeirra og samtökin í heild séu fær um að axla hana.

Fastir pennar

Skattar og skyldur

Kostnaður við rekstur háskólasjúkrahússins er nú töluvert hærri en hann þyrfti að vera vegna þess óhagræðis sem er af því að reka starfsemina á svo mörgum stöðum sem raun ber vitni.

Fastir pennar

Birtum fleiri skopmyndir

Einu viðbrögðin við mótmælum í múslimalöndum gegn teikningunum af Múhammeð spámanni sem birtust í Jótlandspóstinum er að birta fleiri myndir. Út um allt, í blöðum og á vefnum. Hræddir pólitíkusar og bisnessmenn vilja...

Fastir pennar

Sjálfstæðisflokkur flýgur hátt – Samfylking í vanda

Í skoðanakönnunum fyrir síðustu þingkosningar mældist Samfykingin oft á tíðum með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn. Í kosningunum skildu einungis tvö prósentustig, Samfylkingin fékk meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík norður. Samkvæmt nýrri könnun er munurinn tuttugu prósentustig...

Fastir pennar

Nú er að hamra járnið

Páll Valsson skar upp herör um daginn til varnar íslenskunni sem lifandi máli; og heill og heiður honum. Undirtektir voru ýmislegar svo sem vænta mátti, en það sem þó skipti mestu var að menntamálaráðherra fagnaði þessum umræðum og virtist jafnvel deila þessum áhyggjum, samkvæmt viðtali við Moggann. Það eru tíðindi og brýnt að halda við þessum áhuga ráðherrans, því margt er undir Þorgerði Katrínu komið í þessu máli.

Fastir pennar

Upplýsingar óskast um góðverk

Það hefur verið sagt um fjölmiðla að þeir geri ekki annað en að spegla það samfélag sem þeir eru hluti af. Þetta er vissulega rétt, en þar með er ekki sagt að fjölmiðlar geti skotið sér undan ábyrgð á því hvernig mynd þeir bregða upp af umhverfi sínu; hvort áherslan sé úr hófi á hið neikvæða og skelfilega í lífinu frekar en hið góða og jákvæða.

Fastir pennar

Reynsla og þekking er dýrmæt

Fram hefur komið í fjölmiðlum að einn reyndasti stjórnmálamaður Íslendinga, Jón Baldvin Hannibalsson, útiloki ekki endurkomu í stjórnmálin, ef aðstæður bjóði upp á það. Hvar í flokki sem menn standa ættu þeir að fagna þessu. Athyglisvert er að umræður um þetta í þjóðfélaginu fara hins vegar fram í hálfkæringi. Það er frekar hent gaman að því frekar en að það sé rætt í alvöru að fólk sem er komið vel yfir miðjan aldur byrji stjórnmálaþátttöku eða snúi þangað aftur. Þetta er dapurlegt og verður að breytast.

Fastir pennar

Baby Mozart, Stroheim og Szabó

Hér er fjallað um Mið-Evrópumenn. Fyrstan skal frægan telja Austurríkismanninn Mozart, en líka landa hans Erich von Stroheim sem gerði hina furðulegu mynd Greed og svo ungverska kvikmyndaleikstjórann Iztván Szabó sem kyssti á hendur allra kvenna...

Fastir pennar

Hin nýju vísindi stjórnunar

Vísindi stjórnunar felast í því að afneita tilvist átaka og ólíkra hagsmuna. Stjórnandinn á að komast að "réttri" niðurstöðu án þess að velta vöngum yfir því fyrir hvern niðurstaðan sé rétt. Stjórnun felst í því að finna lausnir, ekki vangaveltum um eðli tilverunnar.

Fastir pennar

Málið sett í nefnd

Ríkisvaldið hefur löngum haft það orð á sér að vilji það svæfa mál þá sé það sett í nefnd. Sé eitthvað hæft í þeim orðum hefur tekist býsna vel til.

Fastir pennar

Nokkur atriði um tunguna

Í mér hefur alltaf blundað málfeigðarsinni, stundum vildi ég vera alveg laus við þetta tungumál sem er talað af nokkur hundruð þúsund hræðum á afskekktu og sjálfbirgingslegu eyland, íbúatölu smáborgar...

Fastir pennar

How do you like Iceland?

Við heyrum daglegar fréttir af öllum íslensku atvinnumönnunum í knattspyrnu, sem ekki eru lengur tveir heldur tugir. Að vísu snúast fréttirnar mest um það hvort þeir hafa spilað þann daginn eða verið á bekknum, en það er engu að síður merkilegt.

Fastir pennar

Umtalsvert afrek

Á sama hátt verður aðalkeppnin í þingkosningunum á næsta ári á milli Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar. Í þeirri viðureign ættu forystumenn flokkanna að gæta þess að ganga ekki of langt í ádeilum hverjir á aðra eins og gerst hefur áður.

Fastir pennar

Miðborgin og næturlífið

Þótt verslun í miðbænum hafi verið að sækja aftur í sig veðrið eru það þó barirnir og kaffihúsin sem hafa haldið lífi í miðborginni með því að færa þangað fólk.

Fastir pennar

Indverska eða kínverska?

Einkaskólar af þessu tagi spretta upp eins og gorkúlur um allt Indland, og foreldrarnir taka þeim fagnandi, því að þeir hafa fengið sig fullsadda af ríkisskólum, sem eiga að heita ókeypis og kenna börnunum ekkert að gagni.

Fastir pennar

RÚV áfram í ríkiseign

Ríkisútvarpið þarf fyrst og fremst að standa vörð um menninguna og menningararfinn, veita góða fréttaþjónustu og sinna ýmsum öðrum verkefnum sem til falla á hverjum tíma. Aðrir ljósvakamiðlar eru fullfærir um að sinna mörgum þeim verkefnum sem Ríkisútvarpið hefur sinnt á undanförnum árum og með sterkum ljósvakamiðlum í eigu ríkisins og á einkamarkaði skapast samkeppni sem nauðsynleg er í fjölmiðlarekstri.

Fastir pennar

Er sannlíkið sagna best?

Undanfarinn áratug höfum við séð íslenska valdhafa í stöðugri baráttu um yfirráð yfir fjölmiðlum. Þeir hafa reynt að treysta tök sín á ríkisfjölmiðlunum og varla líður sá dagur að þeir kvarti ekki hástöfum yfir efnistökum fjölmiðla og einstakra fjölmiðlamanna vegna frétta af stefnumálum og aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Öll gagnrýni er vægast sagt tekin illa upp og þeir sem þá iðju stunda stimplaðir illviljaðir, óvinveittir og hlutdrægir.

Fastir pennar

Þrjótur úr Bond-mynd

Rupert Murdoch er hrollvekjandi maður. Í raun ætti hann að leika illmennið í næstu James Bond mynd. Hún gæti þá endað með því að Bond lokaði óþverrablaðinu The Sun með tilheyrandi sprengingum og pomsarapomsi – tæki kannski Fox News með í leiðinni...

Fastir pennar

Örlög tungunnar í okkar höndum

Íslenska verður hvergi töluð eftir 100 ár, ef fram fer sem horfir var haft eftir Páli Valssyni, útgáfustjóra hjá Eddu, á ráðstefnu um íslenskt mál í Norræna húsinu á sunnudaginn. Ráðstefnan og þær áhyggjur sem þar komu fram um íslenska tungu hefur orðið tilefni mikilla umræðna manna á meðal og í fjölmiðlum. Menn spyrja: Getur verið að íslensk tunga sé dauðadæmd?

Fastir pennar

Allt of mikið af öllu

Nú eiga margir nóg og ýmsir miklu meira en nóg, jafnvel alltof mikið. Þá ályktun má að minnsta kosti draga af neyslu í þessu samfélagi. Peningar fljóta um allt, velta desember mánaðar uppfyllti væntingar kaupmanna, sem voru örugglega talsverðar í ljósi veltu desember mánaða undanfarin ár. Samt virðist fólk ekki láta sig vanta á útsölurnar, sem voru komnar í fullan gang á þriðja í jólum ef marka mátti auglýsingar.

Fastir pennar

Engin moðsuða í Garðabæ

Því er það fagnaðarefni að fram komi listi með svo afdráttarlausum sérkennum. Þetta er algerlega prjállaus listi og verður það vonandi áfram svo að kjósendur fái nú einu sinni skýrar línur - hér er flokkur sem kemur nákvæmlega til dyranna eins og hann er klæddur: í jakkaföt með bindi; listi þar sem er engin kona, engin ung manneskja, engin gömul manneskja, engin fötluð manneskja, með öðrum orðum ekkert skrýtið fólk sem truflar bara ákvörðunartökuna með þvaðri um hluti sem koma málum ekkert við; bara miðaldra karlmenn, hið eðlilega kyn.

Fastir pennar