Erlent
322 323 324 325 326 327 328 329 330 … 334 ›
Sextán látin eftir sprengingu í púðurverksmiðju Sextán eru látin eftir sprengingu í verksmiðju í Ryazan héraði, sunnan við Moskvu, höfuðborg Rússlands, í morgun. Erlent 22.10.2021 10:23
Drottningin varði nótt á sjúkrahúsi Elísabet II Bretadrottning varði aðfaranótt gærdagsins á sjúkrahúsi í London en hún er komin aftur til Windsor-kastala. Erlent 22.10.2021 07:52
Einn vinsælasti rappari Svíþjóðar skotinn til bana Sænski rapparinn Einár var skotinn til bana í Hammarby sjöstad í Stokkhólmi í gærkvöldi. Sænskir fjölmiðlar greina frá því að heimildarmenn segi Einár hafa ítrekað verið hótað. Morðið er talið tengjast átökum glæpagengja í sænsku höfuðborginni. Erlent 22.10.2021 07:07
Biden segir Bandaríkin munu verja Taívan fyrir innrás Joe Biden Bandaríkjaforseti segir ljóst að Bandaríkjamenn muni verja eyjuna Taívan, ef Kínverjar gera innrás. Þetta kom fram í svörum hans á borgarafundi sem CNN sjónvarpsstöðin stóð fyrir. Erlent 22.10.2021 06:38
Alec Baldwin varð konu að bana við tökur á nýrri mynd Leikarinn Alec Baldwin er sagður hafa orðið konu að bana við tökur á kvikmynd í Nýju-Mexíkó. Samkvæmt erlendum miðlum hleypti Baldwin af skotvopni sem var einn af leikmunum myndarinnar, með þeim afleiðingum að kona dó og maður særðist. Erlent 22.10.2021 06:27
Þingmenn vilja ákæra Bannon Meirihluti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings greiddi í kvöld atkvæði með því að ákæra Steve Bannon, fyrrverandi aðstoðarmann Donalds Trump, fyrrverandi forseta, fyrir að sýna þinginu vanvirðingu. Bannon hefur neitað að mæta á fund þingnefndar sem rannsakar árásina á þinghúsið þann 6. janúar og svara spurningum þingmanna. Erlent 21.10.2021 23:48
Jarðskjálfti 5,9 að stærð á Nýja-Sjálandi Jarðskjálfti sem mældist 5,9 að stærð reið yfir á Norðureyju Nýja-Sjálands nú fyrir stuttu. Upptök skjálftans voru á miðri eyjunni en hann er sagður hafa fundist víðast hvar í landinu, þar á meðal á Suðureyjunni. Erlent 21.10.2021 23:03
Brian Laundrie sá sem fannst látinn í gær Líkamsleifar sem fundust á náttúruverndarsvæðinu Myakkahatchee Creek í Flórída í gær eru sagðar tilheyra Brian Laundrie, sem Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, hefur leitað í rúman mánuð í tengslum við morðið á kærustu hans, Gabrielle Petito. Erlent 21.10.2021 22:09
Hótaði að myrða trúboðana Leiðtogi glæpagengis sem rændi sautján trúboðum og fjölskyldumeðlimum þeirra á Haítí fyrr í mánuðinum, birti í dag myndband þar sem hann hótaði að myrða fólkið. Það myndi hann gera ef ekki yrði gengið að kröfum hans. Erlent 21.10.2021 21:51
Telja að veiran hafi banað á annað hundrað þúsund heilbrigðisstarfsmönnum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, telur að kórónuveiran gæti hafa dregið allt frá 80 þúsund til 180 þúsund heilbrigðisstarfsmenn til bana frá upphafi faraldursins. Erlent 21.10.2021 18:23
Berlusconi sýknaður af mútuákæru í víðfrægu kynlífsmáli Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, hefur verið sýknaður af ákæru um að hafa mútað vitni í dómsmáli árið 2013 þar sem hann var ákærður fyrir að hafa haft samræði við ólögráða stúlku. Erlent 21.10.2021 17:23
Ákærður fyrir morðið á þingmanninum Ali Harbi Ali, 25 ára gamall breti af sómölskum uppruna, hefur nú verið ákærður fyrir morðið á breska þingmanninum Sir David Amess í síðustu viku. Saksóknarar hafa gefið það út að þeir muni sækja málið á þeim grundvelli að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Erlent 21.10.2021 15:15
Þunglyndislyf gæti nýst gegn sjúkdómi sem leiðir til blindu Ný rannsókn vísindamanna við læknadeild Háskólans í Virginíu bendir til að þunglyndislyfið fluoxetine geti reynst áhrifaríkt til að koma í veg fyrir aldursbundna augnbotnahrörnun. Lyfið er þekkt í Bandaríkjunum undir heitinu Prozac. Erlent 21.10.2021 14:25
Hjúkrunarfræðingur fundinn sekur um að hafa myrt fjóra sjúklinga Bandarískur hjúkrunarfræðingur hefur verið fundinn sekur um að hafa myrt fjóra sjúklinga með því að sprauta súrefni í æðar þeirra. Sjúklingarnir höfðu allir gengist undir hjartaaðgerð. Erlent 21.10.2021 12:05
Trump ætlar að opna eigin samfélagsmiðil Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að hann hyggist opna nýjan samfélagsmiðil, sem eigi að standa gegn „ofríki stórra tæknifyrirtækja“. Erlent 21.10.2021 08:23
Gagnaleki varpar ljósi á tvöfeldni ríkja í loftslagsmálum Mikill fjöldi skjala sem lekið var til breska ríkisútvarpsins varpar ljósi á það hvernig ríkari þjóðir heimsins hafa reynt að setja þrýsting á Sameinuðu Þjóðirnar í loftslagsmálum. Erlent 21.10.2021 06:54
Kosningafrumvarp Demókrata stöðvað í þriðja sinn Öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins gerðu í kvöld þriðju tilraunina til að greiða atkvæði um kosningafrumvarp þeirra og í þriðja sinn komu Repúblikanar í veg fyrir umræðu og atkvæðagreiðslu um frumvarpið. Erlent 20.10.2021 23:25
Vinnustöðum í Rússlandi verði lokað í viku vegna veirunnar Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur samþykkt tillögu rússnesku ríkisstjórnarinnar um að loka öllum vinnustöðum landsins fyrstu vikuna í nóvember til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirusmita í landinu. Erlent 20.10.2021 23:05
Fundu líkamsleifar og bakpoka Laundrie á sama stað Líkamsleifar hafa fundist á sama stað og bakpoki Brians Laundrie, unnusta Gabrielle Petito, sem hefur verið leitað í meira en mánuð. Lögreglan hefur leitað Laundrie svo vikum skipti í tengslum við morðið á Petito. Erlent 20.10.2021 20:02
Staðfestu að víkingar voru í Ameríku fyrir sléttum þúsund árum Alþjóðlegt teymi vísindamanna hefur staðfest að víkingar frá Grænlandi numu land á Nýfundnalandi fyrir nákvæmlega þúsund árum síðan. Lengi hefur verið vitað að víkingar fundu Norður-Ameríku en ekki nákvæmlega hvenær. Erlent 20.10.2021 18:11
Minnst 150 hafa farist í aurskriðum á Indlandi og Nepal Meira en 150 hafa farist undanfarna daga vegna mikilla flóða og aurskriða sem hafa fallið víða í norðurhluta Indlands og Nepal. Hamfarirnar hafa valdið því að vegir og hús hafa horfið undir vatni og aur. Erlent 20.10.2021 17:31
Parkland-fjöldamorðinginn játar sekt Nikolas Cruz játaði í dag fyrir dómi að hafa myrt sautján manns og sært jafnmarga í miðskóla í Parkland í Flórída árið 2018. Hann baðst um leið afsökunar á gjörðum sínum. Erlent 20.10.2021 16:02
Navalní hlýtur Sakharov-verðlaunin Rússneski andófsmaðurinn Aleksei Navalní hlaut í dag hin árlegu Sakharov-verðlaun Evrópuþingsins fyrir framlag sitt til umbóta í rússneskum stjórnmálum. Erlent 20.10.2021 15:21
Rússar íhuga að loka öllu í viku vegna Covid-bylgju Aldrei hafa fleiri Rússar látist af völdum Covid-19 á einum degi heldur en í gær, en samkvæmt opinberum tölum létust 1.028 manns. Alls hafa 226.353 látist af völdum Covid-19 í Rússlandi frá upphafi faraldursins, sem er það langmesta meðal Evrópuríkja og í fimmta sæti á heimsvísu, á eftir Bandaríkjunum, Brasilíu, Indlandi og Mexíkó. Erlent 20.10.2021 13:19
Elísabet fer að ráðum lækna og hættir við heimsókn til Norður-Írlands Elísabet Englandsdrottning hefur ákveðið að fara að ráðum lækna og hætta við fyrirhugaða heimsókn til Norður-Írlands. Mun hún nota næstu daga til að hvílast, samkvæmt yfirlýsingu frá Buckingham-höll. Erlent 20.10.2021 12:51
Eldgos hafið í Japan Eldgos hófst í Aso-fjalli á japönsku eyjunni Kyushu í morgun. Öskusúla stígur nú upp frá fjallinu og gjall hefur boristhátt í kílómeter frá gígnum. Erlent 20.10.2021 11:36
Tilkynnti um fjögurra vikna útgöngubann og bað bólusetta afsökunar Forsætisráðherra Lettlands tilkynnti á mánudag um fjögurra vikna útgöngubann vegna mikillar fjölgunar kórónuveirusmita í landinu síðustu daga. Á sama tíma bað hann bólusetta landsmenn afsökunar á að þurfa að grípa til þessara aðgerða, en bólusetningarhlutfall í Lettlandi er eitt það lægsta í ríkjum ESB. Erlent 20.10.2021 10:53
Fyrirhuguð framleiðsluaukning jarðefnaeldsneytis ósamrýmanleg loftslagsmarkmiðum Áætlanir ríkisstjórna heimsins gera ráð fyrir aukningu á framleiðslu jarðefnaeldsneytis næsta áratuginn. Þessi staðreynd er algerlega ósamræmanleg því samkomulagi flestra ríkja að reynt verði að sporna við hlýnun jarðarkringlunnnar. Erlent 20.10.2021 10:23
Svínsnýra grætt á fótlegg sjúklings starfar eðlilega og framleiðir þvag Skurðlæknum í New York hefur tekist að græða nýra úr erfðabreyttu svíni á mann. Fylgst var með sjúklingnum í 54 klukkustundir og virtist nýrað starfa eðlilega og framleiddi meðal annars þvag og úrgangsefnið kreatínín. Erlent 20.10.2021 08:57
Fyrsti íbúi eyjanna til að greinast með Covid-19 Maður greindist með Covid-19 á sjúkrahúsinu í Longyearbyen á Svalbarða í gær og er um að ræða fyrsta smitaða íbúa eyjanna frá upphafi faraldursins. Erlent 20.10.2021 08:47