Erlent „
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 334 ›
„Þetta í raun staðfestir það sem að flestir bjuggust við“ Bandaríkjamenn með tengsl við Donald Trump Bandaríkjaforseta eru grunaðir um að stunda njósnir og áróðursherferðir á Grænlandi. Alþjóðastjórnmálafræðingur segir fréttirnar ekki koma á óvart. Markmiðið sé að grafa undan sambandi Grænlands og Danmerkur með það að leiðarljósi að auka stuðning við áform forsetans um að eignast Grænland. Erlent 27.8.2025 13:02
Tilraunaskotið heppnaðist loksins Tíunda tilraunaskot starfsmanna SpaceX með Starship geimfarið heppnaðist í nótt. Var það eftir nokkurra daga tafir og misheppnaðar fyrri tilraunir. Að þessu sinni líkti geimskipið sjálft eftir lendingu á Indlandshafi og Super Heavy eldflaugin sem bar geimskipið á loft líkti eftir lendingu á Mexíkóflóa. Erlent 27.8.2025 11:37
Biður grænlenskar konur afsökunar vegna „lykkjumálsins“ Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur fyrir hönd danska ríkisins beðið grænlenskar konur, sem fengu lykkjur settar upp í sig á síðustu öld, opinberlega afsökunar. Erlent 27.8.2025 11:37
Raðsundlaugarkúkari gengur laus í Oulu Borgaryfirvöldum í finnsku borginni Oulu er nóg boðið vegna þess að ítrekað hefur verið kúkað í almenningssundlaug í borginni í sumar. Þau hafa kært athæfið til lögreglu en á meðan gengur raðkúkarinn laus. Erlent 27.8.2025 11:11
Stefna Open AI vegna sjálfsvígs sonarins Foreldrar sextán ára pilts í Kaliforníu í Bandaríkjunum hafa stefnt gervigreindarfyrirtækinu Open AI vegna sjálfsvígs sonar síns. Foreldrarnir saka gervigreind fyrirtækisins, ChatGPT, um að hafa hvatt hann til að svipta sig lífi. Erlent 27.8.2025 11:08
Frakkar skila höfuðkúpu konungsins Toera Stjórnvöld í Frakklandi hafa skilað hauskúpu konungsins Toera til Madagaskar. Toera var myrtur og afhöfðaður af frönskum hermönnum árið 1897. Erlent 27.8.2025 09:36
Fundu steinaldarbyggð í Árósaflóa sem fór undir sjó eftir ísöld Steinverkfæri, örvaroddar og dýrabein eru á meðal þess sem kafarar hafa fundið í leifum steinaldarbyggðar á botni Árósaflóa í Danmörku í sumar. Byggðin fór á kaf þegar sjávarstaða hækkaði hratt eftir síðustu ísöld. Erlent 27.8.2025 09:17
Lögfesta bann gegn símanotkun í skólum Þingmenn í Suður-Kóreu hafa samþykkt að banna notkun farsíma og annarra snjalltækja í skólum landsins. Þá er stefnt að því að skólar kenni börnum og unglingum ábyrga snjalltækjanotkun. Erlent 27.8.2025 07:59
Kallar bandarískan erindreka á teppið vegna Grænlandsmála Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, hefur ákveðið að kalla bandarískan erindreka í Danmörku á teppið í kjölfar umfjöllunar danska ríkissjónvarpsins um tilraunir manna með tengsl við Donald Trump Bandaríkjaforseta til að hafa áhrif á Grænlandi. Erlent 27.8.2025 07:45
Er við góða líkamlega heilsu en heilinn að „bregðast honum“ Bruce Willis er við góða líkamlega heilsu en heilinn er að „bregðast honum“ og hann er hættur að geta tjáð sig með orðum. Þetta segir eiginkona leikarans, Emma Heming Willis, í nýju viðtali við fjölmiðlakonuna Diane Sawyer. Erlent 27.8.2025 06:59
50 prósenta tollar á indverskar vörur taka gildi í Bandaríkjunum Tollar Donald Trump Bandaríkjaforseta á vörur frá Indlandi hafa tekið gildi en þeir nema 50 prósentum. Upphaflega stóð til að þeir yrðu 25 prósent en þeir voru hækkaðir vegna kaupa Indverja á olíu og vopnum frá Rússlandi. Erlent 27.8.2025 06:38
Málverk stolið af nasistum fannst í argentínskri fasteignaauglýsingu Málverk sem nasistar stálu af listaverkasala af gyðingsættum í Hollandi fannst áttatíu árum síðar á ljósmynd í fasteignaauglýsingu í Argentínu. Verkið hafði þá ferðast á milli landa og er nú talið vera í eigu dætra embættismanns nasista. Erlent 26.8.2025 22:11
Gríðarstór sandstormur olli usla í Arizona Risastór sandstormur gekk yfir Arizona í Bandaríkjunum í gær og olli talsverðum usla í Phoenix. Flugum var aflýst og þúsundir í borginni eru enn án rafmagns. Erlent 26.8.2025 21:51
Ungstirni ryður sér til rúms Mynd sem VLT-sjónaukinn náði af reikistjörnu á frumstigum sínum er sú fyrsta sem sýnir slíka plánetu mynda belti í gas- og rykskífunni sem fóstraði hana. Uppgötvunin hjálpar stjörnufræðingum að skilja betur hvernig reikistjörnur verða til. Erlent 26.8.2025 15:23
Árásir á olíuvinnslu í Rússlandi bíta Ítrekaðar árásir Úkraínumanna á olíuvinnslustöðvar í Rússlandi á undanförnum vikum, hafa dregið verulega úr framleiðslugetu Rússa á eldsneyti. Fregnir berast af löngum biðröðum við bensínstöðvar í Rússlandi en sala á olíu og olíuvörum er ein allra mikilvægasta tekjulind rússneska ríkisins og er hún notuð til að fjármagna stríðsrekstur Rússa í Úkraínu. Erlent 26.8.2025 13:01
Flúði þungvopnaður eftir að hafa myrt tvo lögregluþjóna Gífurlega umfangsmikil lögregluaðgerð á sér nú stað í Ástralíu, þar sem þungvopnaður maður skaut tvo lögregluþjóna til bana og særði þann þriðja. Maðurinn flúði af vettvangi og er hans nú leitað. Hann er sagður vopnaður nokkrum byssum. Erlent 26.8.2025 10:44
Stefna búi Epsteins og vilja afmælisbókina Stjórnsýslu- og eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur stefnt dánarbúi barnaníðingsins Jeffreys Epstein. Formaður nefndarinnar, James Comer, vill þannig koma höndum yfir „öll skjöl eða gögn“ sem gætu á nokkurn hátt tengst mögulegum lista yfir skjólstæðinga Epsteins eða aðra sem komu að barnaníði eða mansali með honum. Erlent 26.8.2025 10:10
Ástralir vísa sendiherra Íran úr landi og loka sendiráðinu í Tehran Stjórnvöld í Ástralíu hafa ákveðið að vísa sendiherra Íran í Canberra úr landi og loka sendiráði sínu í Tehran, eftir að öryggisyfirvöld komust að þeirri niðurstöðu að stjórnvöld í Íran hefðu staðið að baki að minnsta kosti tveimur árásum á samfélag gyðinga í landinu. Erlent 26.8.2025 08:23
Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að hann ætlaði að reka Lisu Cook, einn stjórnarmanna Seðlabanka Bandaríkjanna. Sérfræðingar efast um að ákvörðun Trump standist lög og Cook hyggst bera málið undir dómstóla. Erlent 26.8.2025 07:34
Örlög Bayrou ráðast 8. september Útlit er fyrir að François Bayrou, forsætisráðherra Frakklands, muni ekki standa af sér vantrauststillögu sem þingmenn munu greiða atkvæði um þann 8. september næstkomandi. Erlent 26.8.2025 06:56
Vörpuðu sprengjum á sjúkrahús með 15 mínútna millibili Ísraelsher varpaði sprengjum á sjúkrahús í Khan Younis-borg á sunnanverðu Gasasvæðinu í dag og skömmu síðar vörpuðu þeir annarri eftir að heilbrigðisstarfsfólk hafði flykkst að til að hlúa að þeim særðu. Tuttugu hið minnsta voru drepin og þar á meðal voru fimm blaðamenn. Erlent 25.8.2025 19:17
Vilja nú senda El Salvador fangann til Úganda Kilmar Abrego Garcia, sem var ranglega sendur frá Bandaríkjunum í alræmt fangelsi í El Salvador fyrr á árinu, hefur verið handsamaður á nýjan leik og stendur nú frammi fyrir því að vera sendur til Úganda. Erlent 25.8.2025 14:22
Habeck hættir á þingi Þýski þingmaðurinn Robert Habeck hefur tilkynnt að hann ætli að segja af sér þingmennsku. Habeck er þingmaður Græningja og var efnahags- og orkumálaráðherra í ríkisstjórn Olaf Scholz, auk þess að vera varakanslari á árunum 2021 til 2025. Erlent 25.8.2025 14:17
Hótar að senda herinn til Baltimore Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hótaði því um helgina að senda hermenn til borgarinnar Baltimore og er einnig unnið að því að senda hermenn mögulega til Chicago. Hann sagði borgina stjórnlaust glæpabæli en það var eftir að Wes Moore, ríkisstjóri Maryland, bauð honum í heimsókn til Baltimore og sagði þá geta gengið um götur borgarinnar og rætt saman. Erlent 25.8.2025 13:44
El Mayo sagður ætla að játa sekt Ismael Zambada, sem var um árabil einn valdamesti fíkniefnabarónn Mexíkó er talinn ætla að játa sekt í bandarískum alríkisdómstól í dag. Zambada, sem gengur undir nafninu „El Mayo“ og var háttsettur leiðtogi í Sinaloa-samtökunum svokölluðu en tvær vikur eru síðan alríkissaksóknarar sögðust ekki ætla að sækja eftir dauðadómi gegn Zambada. Erlent 25.8.2025 10:06
Tíunda skotið klikkaði Bandaríska geimferðafyrirtækið SpaceX, sem er í eigu Elon Musk, stefndi að tíunda tilraunaflugi Starship geimfarsins í nótt. Af henni varð ekki. Erlent 25.8.2025 08:20
Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Eyal Zamir, yfirmaður herafla Ísraels, er sagður þrýsta á um það að stjórnvöld gangi að samningum við Hamas um lausn þeirra gísla sem enn eru í haldi á Gasa. Erlent 25.8.2025 07:57
Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Útgefandi ævisögu Virginiu Giuffre, sem hún lauk við áður en hún svipti sig lífi fyrr á árinu, segir bókina innihalda persónulegar og átakanlegar lýsingar á samskiptum Giuffre við Jeffrey Epstein, Ghislaine Maxwell og Andrés Bretaprins. Erlent 25.8.2025 07:17
Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Friedrich Merz Þýskalandskanslari segir að velferðarkerfi Þýskalands sé ekki fjárhagslega sjálfbært lengur. Á fundi Kristilegra demókrata á laugardaginn sagði hann að árangur ríkisstjórnarinnar hvað ríkisfjármálin varðar hafi ekki verið nógu góður hingað til, og kallaði eftir auknu aðhaldi í rekstri ríkisins og hertri útlendingalöggjöf. Erlent 24.8.2025 21:05
Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Sextíu og fjórir eru sagðir hafa verið drepnir og yfir þrjú hundruð særðir í árásum Ísraela á Gasa síðastliðinn sólarhring. Herflugvélar og skriðdrekar hafa verið nýttir til stórtækra árása á Gasaborg sem Ísraelar hyggjast sölsa undir sig með valdi. Erlent 24.8.2025 18:46