Erlent

Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól

Samúel Karl Ólason skrifar
Marco Rubio utanríkisráðherra segist búast við því að bandamenn Bandaríkjanna muni einnig beita sér gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum.
Marco Rubio utanríkisráðherra segist búast við því að bandamenn Bandaríkjanna muni einnig beita sér gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum. AP/Manuel Balce Ceneta

Ríkisstjórn Donalds Trump hefur beitt frekari refsiaðgerðum gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum (ICC). Það var opinberað nokkrum klukkustundum eftir að fyrrverandi dómari við dómstólinn fékk friðarverðlaun Nóbels en Marco Rubio utanríkisráðherra segir aðgerðunum ætlað að lama starfsemi dómstólsins.

Rubio tilkynnti þessar nýju aðgerðir, meðal annars í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum.

„Við munum banna öll viðskipti við þennan óstýriláta dómstól, loka fyrir aðgang hans að fjármagni og lama getu hans til að starfa gegn okkur,“ sagði Rubio í ávarpinu.

„Bandaríkin og bandaríska þjóðin lúta ekki lögsögu þessa gervi-sakamáladómstóls.“

Rubio sagði að bæði Repúblikanar og Demókratar hefðu lengi haft horn í síðu dómstólsins en það hefði verið Trump sem greip loks til aðgerða gegn honum.

Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn var stofnaður árið 2002 til að rannsaka stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu og rétta yfir aðilum sem brjóta af sér. 125 ríki hafa skrifað undir Rómarsamþykktina um stofnun hans.

„Annaðhvort mun Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hætta hótunum sínum, eða við munum binda endi á Alþjóðlega sakamáladómstólinn.“

Bandaríkjamenn hafa verið að þrýsta á bandalagsríki sín í Evrópu um að segja sig frá sakamáladómstólnum og ítrekaði Rubio það í ávarpinu hér að ofan.

Hvatti hann önnur ríki til að taka þátt í aðgerðunum. Hann sagði að Bandaríkjamenn byggjust við því að bandamenn þeirra stæðu með þeim í þessu.

Sjá einnig: Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól

„Við væntum þess að bandamenn okkar, sem margir hverjir eru aðilar að Alþjóðlega sakamáladómstólnum og reiða sig á bandaríska hermenn til varna sinna, hemji þennan fráhverfa dómstól,“ sagði hann.

„Geri þeir það ekki munu Bandaríkin halda áfram herferð sinni til að taka Alþjóðalega sakamáladómstólinn í sundur, bút fyrir bút, þar til Bandaríkjamönnum verður ekki lengur ógnað.“

Ekki í fyrsta sinn

Navi Pillay fékk friðarverðlaun Nóbels í morgun en hún var á árum áður dómari við ICC. Þá kom hún að því að rannsaka mögulegar ákærur gegn bandarískum hermönnum í Írak og Afganistan.

Sjá einnig: Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels

Trump hefur lengi viljað fá friðarverðlaunin og hefur hann stært sig af því að binda enda á fjölda átaka, sem mörg hver hófust aldrei eða standa enn yfir.

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum hófust þó nokkru áður. Bandaríkjamenn eru ekki aðilar að Rómarsamþykktinni um stofnun dómstólsins og hafa lengi sakað hann um óréttmætar aðgerðir gegn Bandaríkjunum og gegn Ísrael.

Í fyrra opinberaði Rubio refsiaðgerðir gegn tveimur dómurum ICC sem höfðu þá verið að rannsaka ísraelska hermenn. Fyrir það höfðu Bandaríkjamenn þegar beitt fleiri starfsmenn og þar á meðal yfirsaksóknara ICC refsingum en þær hafa mikil áhrif á þá sem fyrir þeim verða.

Allar eigur viðkomandi í bandarískri lögsögu eru frystar og mega bandarísk fyrirtæki ekki eiga í viðskiptum við þá sem hafa verið beittir svona aðgerðum. Þetta hefur haft áhrif á tölvupóst starfsmanna ICC og bankareikninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×