Trump samdi við Pútín um dísel Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 9. október 2026 20:39 Trump Bandaríkjaforseti segir díselverð fara á hraðferð niður á næstu dögum. Getty Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa náð samkomulagi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af díselolíu.
Bandaríkjastjórn hefur samhliða þessu slakað tímabundið á höftum á rússneskum orkufyrirtækjum svo olían komist á markað. Trump greindi frá samkomulaginu á samfélagsmiðli sínum Truth Social í kvöld. Þar sagði hann að Rússar myndu þegar í stað setja rúmlega 300 þúsund tonn af díselolíu á bandaríska og alþjóðlega markaði. Mikið magn dísels Því næst ættu 500 þúsund tonn að koma á markað í nóvember og önnur milljón tonna skömmu síðar. Trump sagði jafnframt að Rússar gætu afhent þrjár milljónir tonna til viðbótar á skömmum tíma, eftir því hvernig ástand rússneskra olíuhreinsistöðva þróaðist. „Díselverð fyrir Bandaríkjamenn og raunar allan heiminn mun LÆKKA, Í METTÖLUM OG HRATT,“ skrifaði Trump. Bandaríkjaforseti hefur verið undir vaxandi þrýstingi vegna eldsneytisverðs síðustu vikur. Meðalverð á dísilolíu í Bandaríkjunum er nú rúmir sex dalir á gallonið, um 203 krónur á lítrann, og hefur hækkað verulega frá því að stríðið við Íran hófst í febrúar. Kominn í kosningagír Þingkosningar fara fram í Bandaríkjunum 3. nóvember og verðbólga og hækkandi framfærslukostnaður hafa orðið sífellt fyrirferðarmeiri í kosningabaráttunni. Skömmu eftir tilkynningu Trump gaf bandaríska fjármálaráðuneytið út tímabundið leyfi sem gerir viðskipti með rússneska díselolíu möguleg þrátt fyrir refsiaðgerðir gegn Rússlandi. Samkomulagið mun eflaust fá slæmar móttökur í Úkraínu. Bandaríkjamenn hafaundanfarin ár leitast við að takmarka tekjur Rússa af eldsneytisútflutningi. Trump undirritaði umfangsmikil ný lög um refsiaðgerðir gegn Rússlandi í síðasta mánuði, meðal annars gegn rússneskum bönkum, embættismönnum og svonefndum skuggaflota olíuskipa. Bandaríkjastjórn hefur einnig þrýst á önnur ríki um að losa olíu og eldsneyti úr neyðarbirgðum til að auka framboð á heimsmarkaði.
Bandaríkin Rússland Bensín og olía Donald Trump Vladimír Pútín Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira