Innlent

Hluti af þriðja vinningi lenti á Ís­landi

Þátttakandi á Íslandi deildi þriðja vinningi í EuroJackpot kvöldsins með fjórtán öðrum og fékk tæpar tíu milljónir króna í sinn hlut. Enginn var með fyrsta vinning í EuroJackpot í kvöld.

Innlent

Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu

Síðustu ár hafa reglulega borist fréttir af því að fyrirhugað sé að koma á beinu flugi milli Kína og Íslands en nú er útlit fyrir að fréttirnar verði loks að veruleika. „Stutt er í að dagsetning fyrsta flugsins verði kynnt og sala miða hefjist,“ segir Kínverska sendiráðið á Íslandi í svari við fyrirspurn fréttastofu.

Innlent

Túlka verði niður­stöðurnar af var­færni

Formenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Læknafélags Íslands gefa lítið fyrir könnun sem heilbrigðisráðuneytið lét framkvæma. Niðurstöðurnar sýna að heilbrigðisstarfsfólk styður almennt dánaraðstoð en segja formennirnir að túlka verði þær af varfærni.

Innlent

Rann­saka kyn­ferðis­brot og líkams­á­rás á Lands­móti

Tilkynnt var um eina líkamsárás og eitt kynferðisbrot á Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal í nótt. Að öðru leyti var nóttin ágæt, að sögn lögreglu á svæðinu. Hvassviðri er á Norðurlandi vestra og gul viðvörun tekur gildi í fyrramálið. Varað er við því að fólk sé á ferðinni á ökutækjum eða með eftirvagna. Telma Tómasson fréttamaður er á Hólum og hefur fylgst með gangi mála.

Innlent

Gefur engin fyrir­heit um lækkun áfengisgjalda

Áfengisgjöld verða til skoðunar við gerð næstu fjárlaga, að sögn fjármálaráðherra. Veitingamenn segja gjöldin íþyngjandi og benda á að ríkið innheimti tvöfalt meira með þeim en veiðigjöldum. Ráðherra segir hins vegar að erfið áfengissala geti sýnt að gjöldin þjóni tilgangi sínum.

Innlent

Kyn­ferðis­brot á Hólum og gular við­varanir

Tilkynnt var um eina líkamsárás og eitt kynferðisbrot á Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal í nótt. Að örðu leyti var nóttin ágæt, að sögn lögreglu á svæðinu. Hvassvirði er á norðurlandi vestra og gul viðvörun tekur gildi í fyrramálið.

Innlent

Hvað er best að gera þegar maður er bitinn?

Um þessar mundir velta margir fyrir sér hvernig best sé að forðast flugnabit, og hvað sé best að gera þegar maður er bitinn. Ragna Hlín Þorleifsdóttir, doktor í húðsjúkdómalækningum, gaf hlustendum ráð í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Innlent

Hryðjuverkamálið, Lands­mót hesta­manna og neyt­endur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum

Endalok hins svokallaða hryðjuverkamáls verða til umræðu í kvöldfréttum. Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja ekki sýknudómi Landsréttar til Hæstaréttar. Sveinn Andri Sveinsson, verjandi í málinu, segir von á svimandi hárri skaðabótakröfu frá mönnunum sem sakaðir voru um að leggja á ráðin um hryðjuverk. Landsréttur taldi ummæli þeirra hatursfull og ógeðfelld en ekki sannað að ásetningur hefði búið að baki þeim.

Innlent

„Vina­legt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun

Íslenskur karlmaður sem særðist lífshættulega í Höfðatorgsmálinu segist hafa mætt á vettvang til að ræða við mann sem hann segir hafa rænt fólk víða um bæinn. Einn þriggja ákærðu fyrir tilraun til manndráps heldur því fram að hluturinn sem hann sást halda á hafi verið afrískur tannbursti en ekki hnífur, eins og lögregla telur.

Innlent

„Svimandi“ bóta­kröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri

Verjandi Sindra Snæs Birgissonar, sem var ákærður fyrir skipulagningu hryðjuverka ásamt Ísidóri Nathanssyni, segir þá eiga „svimandi“ bótakröfur á íslenska ríkið vegna aðfarar þess að þeim. Líf þeirra hafi verið í kyrrstöðu frá því að þeir voru handteknir fyrir rétt tæpum fjórum árum.

Innlent

Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir hand­töku

Ríkissaksóknari telur ekki efni til að óska eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar vegna sýknudóms Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Því er einu umtalaðasta sakamáli samtímans lokið, rétt tæpum fjórum árum eftir að þeir Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson voru handteknir vegna gruns um skipulagningu hryðjuverka.

Innlent

„Sannar­lega á­huga­verð gjöf“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir skammbyssuna sem hún fékk að gjöf frá Tyrklandsforseta vera sannarlega „áhugaverða gjöf“. Gripurinn verður gerður óvirkur í Noregi.

Innlent

Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast

Afbrotafræðingur segir mögulegt að aðstoða og endurhæfa unga síbrotamenn. Mikilvægt sé að nota þann tíma sem þeir afplána til að veita þeim viðeigandi þjónustu. Veita þurfi þeim sem svara ekki meðferð þyngri dóma til að vernda almenning.

Innlent

„Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“

Spáð er allt að tuttugu og sex gráðum og bjartviðri á Austurlandi um helgina og landinn virðist streyma þangað í von um nokkra sólardaga. Fáir flugmiðar eru óseldir frá Reykjavíkurflugvelli til Egilsstaða um helgina og tjaldsvæðin fyrir austan eru að fyllast. 

Innlent

Flýtir af­greiðslu um allt að mánuð

Kröfunni um auglýsingu starfsleyfis og fjögurra vikna umsagnatíma áður en leyfi er veitt eða því breytt hefur verið létt af öllum flokkum atvinnustarfsemi sem heilbrigðisnefnd gefur út starfsleyfi fyrir. Þannig hefur afgreiðslu starfsleyfa verið flýtt um allt að fjórar vikur.

Innlent

„Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“

Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, blæs á sögusagnir þess efnis að hún hafi farið í áfengismeðferð í byrjun sumars. Hún viðurkennir í samtali við Vísi að hún hafi sjálf heyrt kjaftasögur þess efnis, en að hún hafi aldrei farið á Vog enda skáli hún í sínum kokteil hvenær sem henni detti það í hug.

Innlent