Innlent

Enginn vindmyllugarður án bættra vega
Mikil innviðauppbygging þarf að fara fram ef áætlanir um uppbyggingu vindorkuvers í Dalabyggð eiga að ganga eftir. Verkið mun kosta minnst 40 milljarða og talið er að það muni taka minnst fimmtán ár fyrir verkið til að borga sig.

Orsök veikindanna enn á huldu
Tugir hafa veikst af iðrasýkingu vegna mögulegrar E.coli- mengunar á Rjúpnavöllum á Rangárvöllum. Nokkrir hafa þurft að leggjast inn. Settur sóttvarnarlæknir segir enn ekki búið staðfesta að uppruni veikindanna sé mengað neysluvatn

Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum
Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson hefur verið dæmdur til að greiða 420 þúsund krónur í sekt fyrir að aka án ökuleyfis og undir áhrifum. Þetta er í annað sinn sem Gísli Pálmi er gripinn við akstur undir áhrifum á hálfu ári.

Kynhlutlaus klósett orðin að lögum
Reglugerð ráðherra, um að merkja beri salerni eftir aðstöðu fremur en kynjum, hefur tekið gildi. Um stórt skref er að ræða að sögn varaforseta Trans Ísland.

Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum
Hann var glæsilegur fagurbrúni refurinn sem sást á hlaupum yfir nýlegt hraun við Sundhnúkagígaröðina í gær. Hann var með nýveidda bráð í kjaftinum.

Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum
Í hádegisfréttum verður fjallað um áform um vindorkugarð í Dölunum en fjölmennur fundur um málið var haldinn í Búðardal í gærkvöldi.

Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku
Fyrr í sumar lenti Gústaf Björnsson í því að óprúttinn aðili með tösku með merkjum fyrirtækisins Wolt stal af honum gaskúti. Atvikið náðist á dyramyndavél en þar sést hvernig sendillinn læðist að grillinu við inngang hússins, laumar gaskútnum ofan í sendlapokann merktan Wolt og hraðar sér síðan í bílinn þar sem félagi hans bíður hans.

Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund
Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir sveitarfélögin á áhrifasvæði fyrirhugaðs vindmyllugarðs í Búrfellslundi verða fyrir umtalsverðu fjárhagslegu tjóni af framkvæmdunum og segir ákvörðun munu verða tekna um hvort kæra eigi útgáfu Orkustofnunar á virkjanaleyfi á næstu sveitarstjórnarfundum.

Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar
Heilsugæslan skipuleggur nú sýnatökur vegna mögulegar mengunar af völdum e. coli í neysluvatni á Rjúpnavöllum á Rangárvöllum. Í tilkynningu frá sóttvarnalækni segir að e. coli hafi verið staðfest, í litlu magni, í vatnssýnum frá Rangárvöllum.

Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn
Embætti ríkislögreglustjóra greiddi 47 milljónir króna fyrir 175 hjálma sem keyptir voru fyrir sérsveitina og aðra lögreglumenn fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins í fyrra.

Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum
Heildarakstur í þjóðvegakerfinu á Íslandi nærri tvöfaldaðist á tímabilinu 2002 til 2023. Heildarakstur í þjóðvegakerfinu utan héraðsvega árið 2023 er áætlaður um 3.181 milljón ekinna kílómetra en var árið 2002 áætlaður um 1.781 milljón ekinna kílómetra.

„Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“
Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, gagnrýnir áform um vindorkuver við Búrfell og segir mikilvægt að áætlanir um vindorkuver fari ekki fram úr regluverkinu.

Þakklát fyrir þrjósku hundsins
Margrét Víkingsdóttir var sofandi í íbúð sinni við Amtmannsstíg 6 þegar eldur kviknaði á neðri hæðinni. Hún slapp vel frá eldsvoðanum en sér á eftir nágranna sínum á sjötugsaldri sem lést í brunanum. Hún varð fyrst vör við eldinn eftir að hundurinn hennar vakti hana í morgunsárið.

Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi
Eigendur Fjölskyldulands gætu þurft að loka náist ekki að snúa erfiðum rekstri við. Eigandinn segir þjónustuna afar mikilvæga, ekki síst fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að ná að aðlagast íslensku samfélagi.

„Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“
Kvikumagnið undir Svartsengi er orðið meira en fyrir síðasta eldgos og gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast. Töluvert hefur verið um skjálfta á svæðinu í dag og telja þeir nú hátt í hundrað á sólarhring. Náttúruvársérfræðingur segir að gos gæti í raun byrjað hvenær sem er en líka teygst fram í september.

Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn
Lögreglufulltrúi segir Sverri Þór Gunnarsson, betur þekktan sem Svedda tönn, hafa rætt um fíkniefnaviðskipti við notanda sem lögregla telur ljóst að sé Pétur Jökull Jónasson. Pétur Jökull sætir ákæru fyrir aðild að stóra kókaínmálinu sem kom upp sumarið 2022. Lögreglufulltrúinn kafaði ofan í samskipti Sverris Þórs á Signal.

Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins
Vindorka verður að líkindum þriðja stoðin í orkukerfi landsins. Þetta er mat forstjóra Landsvirkjunar sem kallar eftir skilvirkara regluverki. Orkustofnun veitti Landsvirkjun í gær virkjunarleyfi fyrir fyrsta vindorkuveri landsins sem á að rísa við Búrfell.

Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg
Karlmaður á sjötugsaldri sem var í íbúðarhúsnæði við Amtmannsstíg í miðborg Reykjavíkur þegar eldur kviknaði í morgun hefur verið úrskurðaður látinn. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Milla hætt hjá Willum
Milla Ósk Magnúsdóttir hefur látið af störfum sem aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra. Hún hafði verið aðstoðarmaður ráðherra frá árinu 2021.

Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur
Kostnaður við húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur nam tæplega fimm milljörðum króna árið 2023 og áætlaður kostnaður fyrir þetta ár er tæplega 4,7 milljarðar.

Lögreglan leitar að stolnum Volvo
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir svörtum Volvo XC90 með skráningarnúmerið MH048. Honum var stolið úr Sóltúni í Reykjavík í gær.

Svipaður hlátur á öllum upptökunum
Sérfræðingur í raddbeitingu við Háskólann í Árósum segir ýmislegt benda til þess að rödd Péturs Jökuls Jónassonar sé sú sem heyrist á upptöku sem er meðal helstu sönnunargagna lögreglu í stóra kókaínmálinu. Þetta kom fram við aðalmeðferð á þætti Péturs Jökuls Jónassonar í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats
Viðskiptaráð hefur sent mennta- og barnamálaráðuneytinu upplýsingabeiðni um niðurstöður námsmats í grunnskólum. Í beiðninni er óskað eftir PISA-einkunnum, niðurstöðum samræmdra könnunarprófa og skólaeinkunnum sundurgreindum eftir grunnskólum.

Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni
Framkvæmdastjóri Landverndar segir að leyfi Orkustofnunar til vindorkuvers sé mikið áhyggjuefni. Nú þurfi að þrýsta á stjórnvöld að móta framtíðarstefnu í vindorkumálum áður en lengra er haldið.

Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína
Lögreglufulltrúar sem rannsökuðu stóra kókaínmálið lýstu því fyrir dómi í morgun að sakborningar hefðu endurtekið skipt út símum og breytt um notendanöfn í þeim tilgangi að hylja slóð sína við innflutninginn. Þeir komust á sporið í málinu við rannsókn á saltdreifaramálinu svokallaða vegna tengingar milli aðila í því máli og stóra kókaínmálinu.

Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram
Náttúruvársérfræðingur segir litlar líkur á að gos hefjist innan bæjarmarka Grindavíkur. Starfsmenn Veðurstofunnar eru nú í biðstöðu og bíða eftir kvikuhlaupi eða eldgosi sem gæti hafist hvenær sem er.

Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar
Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar. Meðal umsækjenda eru settur forstjóri Náttúrufræðistofnunar, líftæknir og forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Snæfellsnesi. Hæfnisnefnd fer yfir umsóknirnar.

Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur
Í hádegisfréttum fjöllum við um bruna sem kom upp á Amtmannsstíg í morgun þar sem einn var fluttur á slysadeild.

Mikill og dökkur reykur í íbúðinni
Einn var fluttur á slysadeild eftir bruna í íbúðarhúsnæði við Amtmannsstíg í morgun. Aðstoðarvarðstjóri segir mikinn og þykkan reyk hafa verið í íbúðinni þegar viðkomandi fannst.

Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg
Einn var fluttur á slysadeild vegna bruna í húsi á Amtmannsstíg 6. Allt tiltækt lið slökkviliðs er á vettvangi en búið er að slökkva eldinn. Slökkvilið vinnur nú að því að reykræsta.