
Gagnrýni

Traustur og tilgerðarlaus
2.0 er tilgerðarlaus og vönduð plata frá flinkum tónlistarmanni. Vonandi verður styttri bið í næstu plötu.

Flott frumraun
Hljómsveitin Valdimar bætist í hóp þeirra sem spila lágstemmda tónlist með reggí/djass-ívafi.

Ameríska hrunið afhjúpað
Inside Job er flott mynd um bandaríska efnahagshrunið sem stundum verður þó aðeins of flókin og langdregin.

Frelsari úr föðurkviði
Áhugahópur atvinnuleikara er með mjög áhugaverða sýningu í Hugvísindahúsi Háskólans á Grandagarði 16. Hún var svolítið hæg í byrjun en þess betri þegar líða tók á verkið.

Komdu með mér inn í skuggann
Ljósa er vel stíluð og vel byggð saga með frábærri persónusköpun. Saga sem spannar allan tilfinningaskalann og ómögulegt er að leggja frá sér.

Tilgerðarlegur Phoenix
Frekar leiðinleg mynd sem erfitt er að horfa á vitandi að hann var bara að djóka.

Erpur lætur vaða
Erpur Eyvindarson sýnir að hann kann enn að taka stórt upp í sig.

Rokk sem stenst tímans tönn
Glæsileg yfirlitsútgáfa sem allir íslenskir rokkhundar ættu að eiga í safninu.

Fiðrildi leikur á mandólín
Listilega samansettur texti og myndir sem sveima lengi í huga lesandans. Bók sem gripið verður til aftur og aftur.

Gleði og grátur í Gnarrenburg
Fyndin mynd og vel gerð. Framhaldsmynd er óumflýjanleg.

Háskólaskáldsaga úr samtímanum
Tregðulögmálið er því miður misheppnuð tilraun til að skrifa íslenska háskólaskáldsögu. Sagan tekur sjálfa sig allt of hátíðlega og nær aldrei að varpa nýju ljósi á viðfangsefni sín.

Fínn þverskurður
Johann G in English er tvískipt safn þar sem flutningur Jóhanns sjálfs stendur upp úr. Ábreiðudiskurinn er hins vegar ekki nógu spennandi eins og slíkum diskum hættir oft til að verða.

Keyrsla og læti
Niðurstaða: Kraftmikil og á köflum stórskemmtileg rokkplata.

Ávallt gleður glámurinn
Woody Allen tókst vel til þetta skiptið. You Will Meet a Tall Dark Stranger er fyndin og heiðarleg. Ekki frábær, en betri en síðasta. Ég bíð spenntur eftir næstu.

Kynlíf, dóp og rokk og ról
Frábær heimildarmynd um hina mögnuðu hljómsveit Mínus. Hefði þó mátt velja sér stefnu og fara alla leið í þá átt.

Brokkgengur pólitískur þriller
Í Áttablaðarósinni er ágætur efniviður og margt er þar vel gert en heildarmyndin líður fyrir gallaða frásagnartækni og sögumann sem svindlar á lesendum sínum.

Rómantískt og heimilislegt
Fyrsta plata hinnar efnilegu Útidúrs er bæði rómantísk og heimilisleg.

Útskryppi utan alfaraleiðar
Fantavel byggð breið skáldsaga sem minnir á þjóðfélagsbreytingaskáldsögur fyrri tíma. Arnaldur eins og hann gerist bestur, jafnvel betri.

Svona á að gera það
Hugljúf og fyndin sýning sem bregður upp eftirminnilegum myndum og gefur öllum sem sáu eitthvað til að spekúlera í.

Meinfyndinn Machete
Þrælskemmtileg hasarmynd af gamla skólanum, en missir dampinn eilítið í restina.

Þrír saman, enn meira gaman
Gylfi Ægisson, Rúnar Þór og Megas voru léttir og hressir og fóru á kostum í Austurbæ á fimmudagskvöldið.

Dúndur diskóeyja hjá Braga
Diskóeyjan er stuðplata og eiga Bragi Valdimar og Memfís-mafían eiga allan heiður skilinn fyrir hana.

Engin flugeldasýning
Sálin hans Jóns míns er ein fremsta hljómsveit íslenskrar dægurlagasögu. Um það verður ekki deilt. Sveitin hefur gert frábæra hluti. En hún hefur líka slegið sínar feilnótur. Eins og allir myndu gera á jafn farsælum ferli. Upp og niður stigann, fyrsta hljóðversplata Sálarinnar í fimm ár, fellur því miður í síðarnefnda flokkinn.

Allt smellur hjá Bjartmari
Bjartmar stígur aftur inn í sviðsljósið með sína bestu plötu í yfir 20 ár.

Biturt gjald draumanna
Mögnuð og listilega stíluð skáldsaga sem vekur spurningar og lifir lengi í huga lesandans.

Bókin um Bigga
Hér er vináttu og fræðum fléttað listilega saman. Þröstur Helgason varpar skýru ljósi á list Birgis Andréssonar í íslensku og alþjóðlegu samhengi og dregur upp innilega mynd af þeim einstaka manni sem hann hafði að geyma.

Heillandi hatur
Það er óvenjulegt að sækja heim sýningu þar sem helstu hughrifin eru hatur, áhorfandinn virðist jafnvel óvelkominn, ítrekanir um að snerta ekki listaverkin fá óhugnanlegan undirtón. Þetta kemur á óvart og markar listamanninum sérstöðu.

Allt sem prýða má einn krimma
Árni spinnur trúverðuga en margslungna fléttu um leið og hann varpar ljósi á samtíma okkar á óvæntan og hrollvekjandi hátt.

Litríkur kokkteill
Kimbabwe er skemmtilegasta plata ársins hingað til.

Hugljúf Dísa og kvakandi froskar
Dísa ljósálfur er sýning sem allir krakkar frá fjögurra ára ættu að sjá.