Golf

Asískir kvenkylfingar vinna öll stórmótin

Jiyai Shin frá Suður-Kóreu sigraði með yfirburðum á opna breska meistaramótinu í golfi í kvennaflokki en mótinu lauk í gær. Shin lék lokahringinn á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari, á Royal Liverpool vellinum við erfiðar aðstæður og sigraði hún með 9 högga mun. Inbee Park frá Suður-Kóreu varð önnur og Paula Creamer frá Bandaríkjunum varð þriðja.

Golf

Bjóst ekki við því að vinna

Ragnar Már Garðarsson fékk frábærar móttökur þegar hann kom til landsins í gær sem nýrkrýndur meistari á einu sterkasta unglingagolfmóti heimsins.

Golf

Óvíst hvort Birgir Leifur kemst í gegnum niðurskurðinn

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, hefur lokið leik í dag á öðrum keppnisdegi á Áskorendamótaröðinni á móti sem fram fer í Kasakstan. Birgir lék á 71 höggi í dag eða 1 höggi undir pari og en hann lék á pari vallar í gær eða 72 höggum.

Golf

Andrew Bretaprins afhenti Ragnari bikarinn

Ragnar Már Garðarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar vann í dag Duke of York golfmótið sem fór fram á Royal Troon vellinum í Skotlandi. Ragnar Már hafði betur gegn Englendingnum Max Orrin og Katja Pogacar frá Slóveníu í bráðabana um sigurinn en þeir léku öll á 225 höggum eða níu höggum yfir pari.

Golf

Ragnar Már sigraði á Duke of York mótinu eftir bráðabana

Ragnar Már Garðarsson, kylfingur úr GKG, sigraði í dag á Duke of York mótinu sem fram fór á hinum þekkta Royal Troon vellinum í Skotlandi. Mótið er gríðarlega sterkt alþjóðlegt móti fyrir unga áhugakylfinga og hafði Ragnar betur á þriðju holu í bráðabana gegn þeim Max Orrin frá Englandi og Katja Pogacar frá Slóveníu, en á þessu móti keppa stúlkur og drengir í sameiginlegum flokki. Kylfingur.is greinir frá.

Golf

Birgir Leifur lék á pari vallar í Kasakstan

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék á pari vallar á fyrsta keppnisdegi á Áskorendamótaröð Evrópu í dag. Að þessu sinni er keppt í Kasakstan en Birgir er í 86.-101 sæti en alls eru 141 keppendur á mótinu. Birgir fékk skolla (+1) á 3., og 4. braut en hann náði þeim höggum til baka með fuglum (-1) á 9. gg 10. braut. Bandaríski kylfingurinn Peter Uhlein er efstur á -9 en hann lék á 63 höggum í dag.

Golf

Anna og Ragnar valin efnilegust í golfinu

Lokahóf Golfsambands Íslands fór fram á laugardagskvöld í höfuðstöðum Eimskipafélags Íslands. Þar voru kylfingum á Eimskipsmótaröðinni, Arion-banka unglingamótaröðinni og Áskorendamótaröðinni veittir stigameistaratitlar og viðurkenningar fyrir árangurinn á mótaröðunum í sumar.

Golf

Enn einn sigurinn hjá McIllroy

Kylfingurinn Rory McIllroy er sjóðheitur þessa dagana og búinn að vinna þrjú af síðustu fjórum mótum sem hann hefur tekið þátt í.

Golf

KPMG bikarinn: Höfuðborgarúrvalið með gott forskot eftir fyrstu umferð

Fyrstu umferð í KPMG bikarnum í golfi er lokið en þar eigast við úrvalslið frá golfklúbbum á höfuðborgarsvæðinu og úrvalslið landsbyggðarinnar. Í morgun var keppnisfyrirkomulagið betri bolti. Höfuðborgarúrvalið er með 4,5 vinninga eftir fyrstu umferðina gegn 1,5 vinningi landsbyggðarinnar.

Golf

Íslenska Ryder-keppnin

Í dag hefst liðakeppnin KPMG-bikarinn sem er íslenska útgáfan af hinni frægu Ryder-keppni sem er á milli Bandaríkjanna og Evrópu. Á Íslandi keppir landsbyggðin við Reykjavíkurúrvalið. Þetta er í fjórða skiptið sem þessi keppni fer fram og að þessu sinni verður leikið á Leirdalsvelli í Kópavogi. Hefst keppni klukkan 8.00. Landsbyggðin hefur unnið tvisvar en Reykjavíkurúrvalið einu sinni.

Golf

Tinna: Missti sjálfstraustið | bjartsýn eftir sigurinn á Símamótinu

Tinna Jóhannsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili, sigraði á Símamótinu sem lauk í gær á Grafarholtsvelli í Reykjavík. Þetta var fyrsti sigur Tinnu á Eimskipsmótaröðinni í sumar en hún hefur ekki náð sér almennilega á strik í keppnisgolfinu í sumar. Tinna vonast til þess að erfiðleikarnir séu nú að baki en hún mun á næstu mánuðum einbeita sér fyrir úrtökumótið fyrir Evrópumótaröð kvenna.

Golf

Einar Haukur er sáttur við sumarið | stórt próf bíður hans í Svíþjóð

"Þetta var kannski gott fyrir mig að fara þrívegis í bráðabana um sigurinn,“ sagði Einar Haukur Óskarsson afrekskylfingur úr Keili eftir sigurinn á Símamótinu í Grafarholti í gær. Þetta er fyrsti sigur Einars á Eimskipsmótaröðinni í sumar en hann hefur einu sinni áður sigrað á Eimskipsmótaröðinni. Einar Haukur stefnir á að komast í atvinnumennsku í haust en hann endaði í fjórða sæti stigalista Eimskipsmótaraðarinnar.

Golf

190 metra upphafshögg beint ofan í

Gunnar Páll Þórisson úr GKG fór holu í höggi á 6. holunni á lokahringnum á Símamótinu í golfi en leikið er í Grafarholti í dag. Greint er frá þessu á vefsíðunni Kylfingur.is.

Golf

Signý: Heiður að vinna stigameistaratitilinn

"Það er heiður að vinna stigameistaratitilinn og sýnir að ég var stöðug í keppnisgolfinu í sumar,“ sagði Signý Arnórsdóttir úr Keili eftir að hún tryggði sér stigameistaratitilinn á Eimskipsmótaröðinn í golfi í dag á Grafarholtsvelli. Signý endaði í þriðja sæti á Símamótinu sem lauk í dag en hún varð Íslandsmeistari í holukeppni á þessu tímabili.

Golf

Hlynur Geir: Stefndi á að vera stigameistari | ætlar að draga úr keppnisgolfinu

"Ég er mjög sáttur við þetta tímabil,“ sagði Hlynur Geir Hjartarson úr Golfklúbbi Selfoss eftir að hann tryggði sér stigameistaratitilinn á Eimskipsmótaröðinni í golfi í dag. Hlynur endaði í fjórða sæti á síðasta stigamóti ársins, Símamótinu, sem lauk í Grafarholti í dag en þetta er í þriðja sinn sem Hlynur Geir verður stigameistari.

Golf

Tinna hafði sigur í Grafarholtinu

Tinna Jóhannsdóttir úr Keili sigraði kvennaflokki á Símamótinu í golfi en keppt var í Grafarholti. Mótið var það síðasta á Eimskipsmótaröðinni í sumar.

Golf

Kristján og Tinna halda forystunni á Símamótinu

Keilisfólkið Kristján Þór Einarsson og Tinna Jóhannsdóttir eru áfram efst eftir tvo hringi á Síma mótinu í golfi sem fer fram á Grafarholtsvelli og er lokamót sumarsins á Eimskipsmótaröðinni. Bæði voru þau Kristján og Tinna með forustu eftir fyrstu 18 holurnar en alls voru spilaðar 36 holur í dag. Síðasti hringurinn fer síðan fram á morgun.

Golf

Kristján Þór á tveimur höggum undir pari eftir fyrstu 18 holurnar

Keilismaðurinn Kristján Þór Einarsson er með tveggja högga forystu eftir fyrsta hringinn á Síma-mótinu í golfi sem stendur nú yfir á Grafarholtsvelli í Reykjavík en þetta er lokastigamótið á Eimskipsmótaröðinni. Leiknar verða 54 holur í mótinu, þar af 36 holur í dag, laugardag. Strákarnir eru því á leiðinni út aftur á eftir.

Golf

Tinna með eitt högg í forskot eftir fyrsta hringinn

Tinna Jóhannsdóttir úr Keili er með eitt högg í forkost eftir fyrsta hringinn á Síma-mótinu í golfi sem stendur nú yfir á Grafarholtsvelli í Reykjavík en þetta er lokastigamótið á Eimskipsmótaröðinni. Leiknar verða 54 holur í mótinu, þar af 36 holur í dag, laugardag. Stelpurnar eru því á leiðinni út aftur á eftir.

Golf

Barist um stigameistaratitilinn

Lokastigamótið á Eimskipsmótaröðinni í golfi, Síma-mótið, hófst í morgun á Grafarholtsvelli í Reykjavík. Leiknar verða 54 holur í mótinu, þar af 36 holur í dag, laugardag. Góð þátttaka er í mótinu og ellefu af alls tuttugu efstu á stigalistanum í karlaflokki eru á meðal keppenda.

Golf

Afrekskylfingar berjast um stigameistaratitla á Síma-mótinu

Lokastigamótið á Eimskipsmótaröðinni í golfi, Síma-mótið, fer fram á Grafarholtsvelli í Reykjavík um helgina og hefst keppni á laugardaginn. Leiknar verða 54 holur í mótinu, þar af 36 holur á laugardeginum. Góð þátttaka er í mótinu og 11 af alls 20 efstu á stigalistanum í karlaflokki eru á meðal keppenda. Hámarksfjöldi keppenda er 84 kylfingar og hefur myndast biðlisti inn í mótið hjá körlunum.

Golf

Úlfar búinn að velja þá sex kylfinga sem fara á HM í Tyrklandi

Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari í golfi hefur valið samkvæmt afreksstefnu Golfsambandsins sex kylfinga til að leika fyrir Íslands hönd á HM karla og kvenna. Heimsmeistaramótið verður haldið verður í Tyrklandi í haust en leikið verður á Gloria Golf Resort (Old og New course) í Antalya í Tyrklandi.

Golf