Handbolti

Gísli Þorgeir: Fannst við sýna fagmennsku og virðingu
„Fimmtán marka sigur, topp stemmning og frábærir áhorfendur. Við getum eiginega ekki beðið um meira,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson eftir sigur Íslands á Ísrael en Gísli átti mjög góðan leik fyrir íslenska liðið.

Guðmundur: Þurfum að viðhalda stöðugleikanum
„Frammistaðan var frábær, ég vil byrja á því að þakka stuðningsmönnum og áhorfendum fyrir stórkostlegan stuðning. Enn og aftur er uppselt og það verður gaman þegar við fáum þjóðarhöllina og sjáum sex þúsund áhorfendur á leik. Það vonandi styttist í það,“ sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari Íslands eftir góðan sigur á Ísrael í kvöld.

Björgvin Páll: Æðislegt að fá fullt hús
„Við erum sérstaklega ánægðir með það hvernig við komum inn í leikinn, hvernig við byrjuðum hann,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson markvörður íslenska landsliðsins eftir öruggan fimmtán marka sigur á Ísrael í kvöld.

Umfjöllun: Ísland - Ísrael 36-21 | Öruggt fyrsta skref í átt að Evrópumótinu
Ísland vann öruggan fimmtán marka sigur á Ísrael í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik í kvöld. Ísland leiddi 16-10 í hálfleik en í síðari hálfleik jók íslenska liðið muninn jafnt og þétt og sýndu mátt sinn og megin.

Tékkar ekki í neinum vandræðum með Eista
Tékkar unnu öruggan átta marka sigur á Eistlandi í undankeppni EM 2024 í handbolta, 31-23. Bæði lið eru með Íslandi í riðli þrjú í undankeppninni.

„Þær eru bara að fara að keppa við Val um titilinn“
Stjarnan er til alls líkleg í Olís-deild kvenna í handbolta í vetur samkvæmt sérfræðingum Seinni bylgjunnar. Liðið er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki.

Aron enn að jafna sig og verður ekki með landsliðinu í kvöld
Aron Pálmarsson verður ekki með íslenska karlalandsliðinu í handbolta sem mætir Ísrael í undankeppni EM 2024 að Ásvöllum í kvöld. Hann er því einn af þremur lykilmönnum sem missa af leiknum.

Bjarki Már: Okkur fannst líka gaman í janúar
Vinstri hornamaðurinn Bjarki Már Elísson hefur fært sig um set og spilar nú með stórliði Telekom Veszprém í Ungverjalandi en þessi öflugi hornamaður hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár.

Guðmundur um spár um verðlaunasæti hjá Íslandi: Gott að þeir hafi trú á liðinu
Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur í kvöld undankeppni EM í Þýskalandi þegar Ísraelsmenn koma í heimsókn á Ásvelli. Strákarnir okkar mæta Ísrael og Eistlandi í þessum glugga. Gaupi hitti Guðmund Guðmundsson landsliðsþjálfara og ræddi við hann um þessa fyrstu leiki undankeppninnar.

Valur byrjar Evrópudeildina á heimavelli og fyrsti útileikurinn verður á Benidorm
Leikjadagskrá riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handbolta var birt fyrr í dag þar sem Íslandsmeistarar Vals verða í eldlínunni í B-riðli. Liðið hefur leik á heimavelli gegn ungverska liðinu Ferencváros þann 25. október næstkomandi.

Hefði viljað sjá Lovísu þrauka lengur í Danmörku
Einar Jónsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar, mun ekki hoppa hæð sína í loft upp ef Lovísa Thompson fer aftur í Val. Honum fannst hún gefast full fljótt upp á atvinnumennskunni.

Útskýrðu grammið: Þegar Ásgeir hitti Drake og Logi passaði hús Arons Pálmars
Seinni bylgjan biður upp á fullt af skemmtilegum nýjungum í vetur og ein af þeim er að fá sérfræðinga sína til að rifja upp góða og gamla tíma á samfélagsmiðlum.

Kross 5. umferðar: Með sólgleraugu í saumaklúbbi og Þorsteinn Gauti 7/4
Fimmta umferð Olís-deildar karla í handbolta fór fram í síðustu viku. Hverjir áttu góðan dag og hverjir slæman? Hverjir þurfa að hafa áhyggjur og hvað sagði tölfræðin? Vísir fer yfir umferðina á léttum og gagnrýnum nótum.

„Mér finnst allt spennandi við Fram þessa dagana“
„Þeir dreifðu álaginu, mikið. Þeir eru með breidd og þetta er lið sem öll liðin í deildinni þurfa að taka alvarlega,“ sagði Stefán Árni Pálsson, þáttastjórnandi Seinni bylgjunnar um lið Fram sem gerði sér lítið fyrir og lagði Íslandsmeistara Vals í Olís deild karla á dögunum.

Broti Úlfs vísað til aganefndar
Framkvæmdastjóri HSÍ hefur vísað broti Úlfs Gunnars Kjartanssonar í leik KA og ÍR til aganefndar sambandsins.

Donni inn fyrir Ómar Inga
Kristján Örn Kristjánsson hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikina gegn Ísrael og Eistlandi í undankeppni EM síðar í þessum mánuði.

Þórir segir eðlilegt að lykilkona hans setji handboltann einu sinni í annað sætið
Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta, verður án lykilmanns í titilvörninni á Evrópumótinu í handbolta í næsta mánuði en í gær var það gert opinbert að Veronica Kristiansen verður ekki með norska landsliðinu að þessu sinni.

„Þoli ekki svona ofbeldi í íþróttum“
Logi Geirsson vill að ÍR-ingurinn Úlfur Gunnar Kjartansson fái langt bann fyrir að kýla Allan Norðberg, leikmann KA, í leik liðanna í Olís-deild karla.

Valskonur áfram í Evrópubikarnum eftir frækinn sigur í Slóvakíu
Valskonur gerðu sér lítið fyrir og skelltu Dunajská Streda í síðari leik liðanna í Evrópubikarkeppninni í handbolta í kvöld.

Gísli hafði betur í öðrum af tveimur Íslendingaslögum í þýsku úrvalsdeildinni
Það voru tveir Íslendingaslagir á dagskrá í þýska handboltanum í dag. Annar endaði með jafntefli á milli Gummersbach og Leipzig á meðan að Magdeburg vann fjögurra marka sigur á Melsungen.

Andri Snær: Frábær reynsla fyrir ungu stelpurnar
Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA/Þórs, er ánægður með að lið hans hafi tekið þátt í Evrópubikar kvenna þrátt fyrir 11 marka tap gegn makedónsku meisturunum í Gjorche Petrov í KA-heimilinu í kvöld.

Umfjöllun: KA/Þór - Gorche Petrov 23-34 | Norðankonur fengu slæman skell seinni rimmu liðanna
Norður-Makedónsku meistararnir í Gjorche Petrov unnu öruggan 11 marka sigur á KA/Þór í seinni leik liðanna í Evrópubikar kvenna í KA-heimilinu í kvöld. Liðin gerðu jafntefli í gær en gestirnir voru miklu betri í dag og náðu góðu forskoti strax í fyrri hálfleik. Lokatölur 34-23 og KA/Þór þar af leiðandi úr leik.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Afturelding 26-27 | Mosfellingar áfram á sigurbraut
Afturelding vann sinn annan sigur í röð í Olís deild karla í handbolta þegar liðið fór á Ásvelli í kvöld og bar sigurorð af Haukum í fimmtu umferð deildarinnar. Lokatölur í leiknum urðu 27-26 gestunum úr Mosfellsbænum í vil.

Þriggja marka tap Vals í fyrri leiknum í Slóvakíu
Valur laut í lægra haldi á móti Dunajská Streda, 29-26, þegar liðin áttust við í fyrri leik sínum í fyrstu umferð Evrópubikars kvenna í handbolta í Slóvakíu í kvöld.

Eyþór Lárusson: Við munum læra af þessu
Eyþór Lárusson, þjálfari Selfoss, var að vonum svekktur eftir tap gegn Haukum á Ásvöllum fyrr í dag. Fyrir leikinn voru Haukar enn án stiga. Það var hart barist strax frá fyrstu mínútu en Haukar höfðu þó yfirhöndina allan leikinn. Lokatölur 39-33.

ÍBV vann öruggan sigur á HK
Eyjakonur áttu ekki í vandræðum með HK í Olís-deild kvenna í dag. ÍBV vann 13 marka útisigur, 18-31.

Umfjöllun og viðtal: Haukar - Selfoss 39-33 | Öruggur sigur Hauka í fyrsta heimaleik tímabilsins
Haukar unnu öruggan sex marka sigur á nýliðum Selfoss í 3. umferð Olís deildar kvenna fyrr í dag. Um var að ræða fyrsta heimaleik Hauka á tímabilinu en fyrir leik var liðið án stiga. Haukar voru með yfirhöndina allan leikinn en Selfoss gafst þó aldrei upp. Lokatölur á Ásvelli 39-33.

Umfjöllun: Fram - Valur 37-34 | Framarar fyrstir til að leggja Val
Eftir tap gegn Valsmönnum fyrir aðeins fimm dögum síðan urðu Framarar í kvöld fyrsta liðið á tímabilinu til að vinna sigur gegn Valsmönnum er liðin mættust í 5. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld, 37-34.

Umfjöllun: Gjorche Petrov - KA/Þór 20-20 | Allt í járnum eftir fyrri leikinn
KA/Þór mætti Makedónsku meisturunum í Gjorche Petrov í fyrri leik liðanna í Evrópubikar kvenna í KA-heimilinu í kvöld. Leiknum lauk með dramatísku jafntefli, 20-20.

Þorsteinn Gauti: Frábært að ná að vinna Val
Þorsteinn Gauti Hjálmarsson, vinstri skytta Fram, átti stóran þátt í 37 – 34 sigri þeirra á Val í Úlfarsárdal í kvöld. Hann skoraði 10 mörk og var valinn maður leiksins í leikslok. Eðlilega var hann gríðarlega sáttur í viðtali eftir leik.