Handbolti

Svo gott sem úr leik eftir tap í framlengingu
Daníel Freyr Andrésson og félagar í Guif eru í slæmum málum eftir tap gegn Sävehof í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Lokatölur 31-28 Sävehof í vil í framlengdum leik og toppliðið þar með 2-0 yfir í einvíginu.

Oddur tryggði Balingen-Weilstetten sigur gegn lærisveinum Guðmundar
Oddur Gretarsson fór hamförum er Balingen-Weilstetten vann eins marks sigur á Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 25-24.

Ísland í riðli með Svíþjóð og Serbíu
Ísland þarf að slá við Svíþjóð eða Serbíu til að komast á EM kvenna í handbolta end regið var í riðla fyrir undankeppnina í dag.

Aron Kristjáns fer á Ólympíuleikana
Aron Kristjánsson, þjálfari toppliðs Hauka í Olís-deild karla í handbolta, verður einn þeirra íslensku þjálfara sem fara á Ólympíuleikana í Tókýó í sumar.

„Basti elskar líka að koma öllum á óvart“
Sebastian Alexandersson, þjálfari Fram, stýrði liðinu til sigurs í sjöunda sinn á tímabilinu í Olís deildinni í síðustu umferð en Seinni bylgjan ræddi nýjungar hans í leiknum.

Sunna með sprungu í sköflungi en stefnir á að vera klár fyrir HM-umspilið
Landsliðskonan Sunna Jónsdóttir mun ekki spila með ÍBV í Olís-deild kvenna í handbolta á næstunni eftir að hafa meiðst illa með íslenska landsliðinu á dögunum.

Elvar á flugi í Frakklandi | Grétar Ari tapaði naumlega
Elvar Ásgeirsson og Grétar Ari Guðjónsson léku með liðum sínum í frönsku B-deildinni í handbolta í kvöld. Nancy vann botnlið Angers 28-24 á meðan Nice tapaði með eins marks mun gegn Cherbourg, 32-31.

Ómar Ingi frábær í öruggum sigri Magdeburg
Magdeburg vann átta marka útisigur á Eurofram Pelister frá Norður-Makedóníu í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar, lokatölur 24-32. Fyrr í kvöld höfðu Íslendingalið GOG og Rhein-Neckar Löwen einnig unnið sína leiki.

Íslendingaliðin öll í fínum málum eftir fyrri leik sextán liða úrslitanna
Alls voru þrjú Íslendingalið í eldlínunni í leikjum kvöldsins í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handbolta. GOG vann CSKA Moskvu 33-31, Rhein-Neckar Löwen vann Nexe 27-25 á útivelli og Kadetten gerði jafntefli við Montpellier á útivelli.

Búin að gráta mikið en get leitað í marga reynslubanka
„Ég er afskaplega sorgmædd yfir þessu,“ segir Steinunn Björnsdóttir, handboltakona ársins 2020. Allt bendir til þess að hún hafi slitið krossband í hné í leiknum gegn Norður-Makedóníu í Skopje síðasta föstudag.

Valdi úrvalslið heldri borgara fyrir Seinni bylgjuna
Theódór Ingi Pálmason, sérfræðingur Seinni bylgjunnar, setti saman draumalið sitt í þætti gærkvöldsins. Að þessu sinni var kominn tími á að skoða eldri leikmenn í Olís deild karla.

„Rosalega þungt högg sem hann fær þarna á hnakkann“
Gróttumaðurinn Daníel Örn Griffin var fluttur úr Mosfellbænum í sjúkrabíl eftir að hafa fengið slæmt höfuðhögg í leik Aftureldingar og Gróttu.

Vilja að dómurinn í draugamarksmálinu verði ógildur og nýir dómarar taki það fyrir
KA/Þór hefur óskað eftir því að dómur áfrýjunardómstóls HSÍ vegna leiks liðsins gegn Stjörnunni í Olís-deild kvenna verði ógildur. KA/Þór furðar sig jafnframt á vinnubrögðum áfrýjunardómstólsins og skrifstofu HSÍ. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá KA/Þór.

„Finnst verst að ég fæ líklega aldrei að sjá þann sem skrifaði þetta undir fjögur augu“
Alfreð Gíslason, þjálfari þýska handboltalandsliðsins, viðurkennir að sér hafi brugðið að fá hótunarbréf í pósti. Hann efast um að hann muni nokkurn tímann hitta bréfritara, augliti til auglitis.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Fram 23-29 | Fram í engum vandræðum með botnliðið
Fram vann sannfærandi sigur á botnliði ÍR. Fram komst yfir snemma leiks og litu aldrei um öxl eftir það og unnu 6 marka sigur 23 - 29.

Lárus Helgi: Ég viðurkenni það þjálfaraskiptin komu á óvart
ÍR tapaði sínum fimmtánda leik í röð þegar Fram mætti í heimsókn í Austurbergið. Fram komst yfir snemma leik og litu aldrei um öxl eftir þann og unnu á endanum sex marka sigur 23-29.

„Sagði honum að ég hefði bullandi trú á honum“
„Frábær leikur hjá okkur,“ voru fyrstu viðbrögð Patreks Jóhannessonar, þjálfara Stjörnunnar, eftir fimm marka sigurinn á KA fyrir norðan í dag.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Stjarnan 27-32 | Stjarnan sótti tvö stig norður
Stjarnan er komið upp fyrir KA í Olís deildinni eftir fimm marka sigur fyrir norðan í dag, 32-27, en leikurinn var mikilvægur í baráttunni um úrslitakeppnissæti.

Sjáðu magnaða þrefalda vörslu Rasimas í lýsingu Rikka G
Vilius Rasimas, markvörður Selfoss, sýndi mögnuð tilþrif í leiknum gegn FH í Kaplakrika í Olís-deild karla í gær.

Þjálfari FH bankaði í Ágúst og vildi vita hvort hann væri viðstaddur: „Já, ég er hérna!“
Skemmtileg uppákoma varð í leikhléi FH í leiknum gegn Selfossi í Olís-deild karla í gær þegar þjálfari liðsins, Sigursteinn Arndal, vildi vita hvort línumaðurinn Ágúst Birgisson væri ekki örugglega vakandi.

Ísland mætir Slóveníu í HM-umspilinu
Ísland mun mæta Slóveníu í tveimur umspilsleikjum um sæti á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta. Dregið var í umspilið í dag.

Gísli fór úr axlarlið og tímabilið búið
Gísli Þorgeir Kristjánsson fór úr axlarlið í leik Magdeburg og Füchse Berlin í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Hann þarf að fara í aðgerð og spilar ekki meira á þessu tímabili.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Selfoss 28-27 | FH hafði betur með minnsta mun
FH vann nauman sigur á Selfossi í Olís deild karla í kvöld. Skildu liðin að með einu marki 28-27.

Sigursteinn Arndal: Við létum hann líta full vel út
Sigursteinn Arndal var sáttur með sigur sinna manna á Selfossi í Olís-deild karla í kvöld.

Umfjöllun: Valur - Haukar 28-32 | Haukar sýndu mátt sinn
Haukartóku skref í átt að deildarmeistaratitlinum í handbolta karla með sigri á Val í kvöld, 32-28. Frábær seinni hálfleikur skilaði Haukum á endanum öruggum sigri.

Umfjöllun: Ísland - Litháen 33-23 | Ísland komið í umspil um sæti á HM eftir frábæran sigur
Íslenska kvennalandsliðið vann öruggan tíu marka sigur á Litháen í dag og tryggði sér þar með sæti í umspili um sæti á HM í handbolta. Lokatölur 33-23 Íslandi í vil sem hafði einnig verið tíu mörkum yfir í hálfleik.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Grótta 30-27 | Afturelding vann þriggja marka sigur á Gróttu
Afturelding vann þriggja marka sigur á Gróttu er liðin mættust í Olís-deild karla í dag. Lokatölur leiksins 30-27.

Gunnar: Þetta var góður sóknarleikur, kannski einfaldur en góður
Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, var sáttur með leik sinni manna er þeir unnu þriggja marka sigur á Gróttu í dag, 27-30.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV-Þór Ak. 35-27 | Akureyringar engin fyrirstaða fyrir Eyjamenn
ÍBV unnu góðan 8 marka sigur á Þór Akureyri, 35-27 og halda því uppteknum hætti frá sigrinum á Val í síðustu umferð.

Kristján Örn skoraði tvö í tveggja marka tapi
Íslenski handboltamaðurinn Kristján Örn Kristjánsson og félagar hans í PAUC AIX náðu ekki í stig í franska handboltanum í dag.