Handbolti

Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný
Eftir fjögurra leikja taphrinu virðist Íslendingalið Magdeburg vera að komast á flug á ný og hefur nú unnið tvo leiki í röð eftir öruggan sigur gegn Bietigheim-Metterzimmern í þýsku deildinni í handbolta í dag.

Arnar Birkir fór á kostum í sigri
Arnar Birkir Hálfdánsson átti sannkallaðan stórleik er Amo HK vann fimm marka sigur gegn Skovde í sænska handboltanum í dag, 34-29.

Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM
Færeyska kvennalandsliðið í handbolta er með á Evrópumótinu í handbolta í fyrsta sinn og í dag náði liðið í sín fyrstu stóru úrslit á stórmóti.

Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit
Haukar eru komnir í 32 úrslit í Evrópubikarnum í handbolta eftir að hafa haft betur í tveimur leikjum á móti Kur út í Aserbaísjan um helgina.

Fullt af möguleikum í þessu
Andrea Jacobsen er spennt fyrir komandi leikjum hjá íslenska kvennalandsliðinu í handbolta á EM í Innsbruck. Liðið mætir Úkraínu í kvöld.

Stelpur sem geta lúðrað á markið
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, segir stórtap Úkraínu fyrir Þýskalandi í fyrsta leik á EM ekki gefa til kynna að leikur Íslands við þær úkraínsku í dag verði auðveldur.

„Ég fór ekkert alltof seint að sofa“
„Þetta var bara svekkjandi. Við spiluðum mjög góðan leik og leiðinlegt að fá ekki stig út úr þessu,“ segir skyttan Thea Imani Sturludóttir um leik Íslands við Holland á EM. Úkraína bíður í dag.

„Ég þarf smá útrás“
„Ég var ofboðslega svekkt af því að þetta var þarna, við hefðum getað þetta og allt það. Á sama tíma rosalega stolt af okkar frammistöðu, með hvaða hugarfari við komum inn í þennan leik og hvað við sýndum hvað í okkur býr,“ segir landsliðskonan Þórey Rósa Stefánsdóttir um leik Íslands við Holland á EM í Innsbruck í gær.

Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal
Íslendingaliðin Porto og Benfica unnu örugga sigra í portúgalsgka handboltanum í kvöld.

Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð
Íslenski landsliðsmaðurinn Janus Daði Smárason og félagar hans í Pick Szeged unnu öruggan tíu marka sigur er liðið heimsótti NEKA í ungversku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 26-36.

Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús
Norska kvennalandsliðið í handbolta vann öruggan 14 marka sigur er liðið mætti Austurríki á Evrópumótinu í handbolta í kvöld, 38-24.

Öruggur sigur ÍBV gegn Val
ÍBV vann öruggan sjö marka sigur er liðið tók á móti Val í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 34-27.

„Ætla að gefa þessum kosningum frí“
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, hefur engan tíma til að spá í Alþingiskosningar dagsins. Eftir leik við Holland í gær er sá næsti við Úkraínu á morgun.

Steinlágu á móti neðsta liðinu
Guðmundur Bragi Ástþórsson og félagar í Bjerringbro-Silkeborg urðu í dag fyrsta liðið til að tapa fyrir botnliði Grindsted í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum
Haukar eru í fínum málum eftir fimm marka sigur á aserska liðinu Kur í fyrri leik sínum í 32 liða úrslitum Evrópubikarsins í handbolta.

Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg
Íslenska landsliðskonan Dana Björg Guðmundsdóttir er fljót á fæti og hún getur nú bakkað það upp með tölum frá Evrópumótinu í handbolta.

Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg
Íslenskum landsliðsmönnum fjölgar hjá Magdeburg næsta sumar því Elvar Örn Jónsson hefur gengið frá samningi við þetta mikla Íslendingafélag.

Eyjamenn minnast Kolbeins í dag með því að drekka Kollabjórinn
Í dag hefði Eyjamaðurinn Kolbeinn Aron Ingibjargarson orðið 35 ára gamall. Eyjamenn minnast hans sérstaklega á heimaleik sínum við Valsmenn í Olís deild karla í handbolta.

Þórir leyfði leikmanni að fara heim til að sinna fjölskyldumálum
Reynsluboltinn Katrine Lunde er farinn aftur heim til Noregs af EM í handbolta. Hún fékk sérstakt leyfi hjá Þóri Hergeirssyni, þjálfara norska kvennalandsliðsins.

Skot Elínar Klöru mældist á meira en 101 kílómetra hraða
Elín Klara Þorkelsdóttir náði fastasta skoti íslenska kvennalandsliðsins í handbolta á EM í gær þegar hún skoraði eitt marka sinna í 27-25 tapi á móti Hollendingum.

Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð
Það vantaði svo lítið upp á. Maður þurfti að anda aðeins og stilla sig af áður en sest var að skrifum eftir þennan leik stelpnanna okkar við Hollendinga. Djöfull vorum við nálægt þessu.

„Við vorum bara klaufar“
Einar Jónsson, þjálfari Fram, var niðurlútur í leikslok en lærisveinar hans töpuðu á dramatískan hátt á móti FH. Fram tapaði með minnsta mun eftir að hafa leitt leikinn þokkalega þægilega framan af og voru lokatölur 30-29, FH í vil, í Úlfarsárdal í kvöld.

Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig
HK-ingar lentu 27-19 undir gegn Stjörnunni en náðu einhvern veginn að skora átta síðustu mörkin og tryggja sér jafntefli, 27-27, í Olís-deild karla í handbolta í kvöld.

Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Úkraínu í næsta leik sínum á Evrópumótinu, eftir frábæra frammistöðu gegn Hollendingum í Innsbruck í kvöld.

Uppgjörið: Fram - FH 29-30 | Dramatík í Úlfarsárdal
Fram tók á móti FH í 12. umferð Olís-deild karla í handbolta í kvöld og réðust úrslitin á síðustu andartökum leiksins. Leikurinn endaði 30-29 fyrir FH en Framarar voru með yfirhöndina framan af og leiddu um tíma með fimm mörkum í síðari hálfleik.

Arnar og Elvar á toppnum
Melsungen, lið landsliðsmannanna Arnars Freys Arnarssonar og Elvars Arnar Jónssonar, er nú eitt á toppi þýsku 1. deildarinnar í handbolta.

Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“
„Þetta er súrsætt. Súrt að við náðum ekki að fá stig út úr þessu því við vorum alveg á sama stigi og þær, en við erum glöð að vera á þeim stað sem við sýndum í dag,“ segir Elín Jóna Þorsteinsdóttir. Hún var mögnuð í marki Íslands í dag gegn Hollandi, á EM í handbolta.

„Í seinni hálfleik voru aðeins of margir tapaðir boltar“
„Mjög svekkjandi, að hafa ekki náð að klára leikinn,“ sagði Elín Klara Þorkelsdóttir, leikmaður íslenska landsliðsins í handbolta, eftir 27-25 tap gegn Hollandi í fyrsta leik Evrópumótsins.

„Maður er hálf meyr“
„Vá, þetta er rosamikil blanda af svekkelsi en er á sama tíma gríðarlega stolt af liðinu fyrir þessa frammistöðu,“ segir Steinunn Björnsdóttir, annar fyrirliða kvennalandsliðs Íslands í handbolta, eftir naumt tveggja marka tap fyrir Hollandi í fyrsta leik liðsins á EM.

„Kannski svolítið galið þegar maður bakkar aðeins aftur í tímann“
„Tilfinningarnar eru blendnar,“ segir Arnar Pétursson, svekktur en afar stoltur af sínu liði eftir hörkuleik gegn Hollendingum í fyrsta leik á EM kvenna í handbolta.