Íslenski boltinn

Umfjöllun og viðtöl: FH - Fylkir 1-0 | Fyrsti sigur FH í deildinni síðan 17. maí
FH unnu sinn fyrsta sigur síðan 17. maí. FH ingar fengu hvert dauðafærið á fætur öðru í fyrri hálfleik sem Aron Snær Friðriksson varði. Steven Lennon gerði fyrsta mark leiksins eftir tæplega 78 mínútna leik og mátti sjá að miklu fargi hafi verið létt af leikmönnum FH eftir að hafa farið illa með ansi mörg dauðafæri.

Umfjöllun og viðtöl: KA - HK 2-0 | KA vann í fyrsta leik sínum á Akureyri
KA-menn lögðu HK-inga að velli í 13.umferð Pepsi Max deildarinnar á Akureyri í dag.

Blikar þegar með fleiri mörk en helmingur liðanna í fyrra en mæta KR-grýlunni
Ef að Breiðablik ætlar að sækja að Val í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta þarf liðið að kveða KR-grýluna í kútinn í kvöld. KR getur komist í 2. sæti með sigri.

Heimir: Höfðum engan áhuga á að spila fótbolta og hvað þá að berjast
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, var ómyrkur í máli eftir tap Íslandsmeistaranna á Akranesi í dag.

Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Valur 2-1 | Botnliðið vann toppliðið á Akranesi
ÍA vann Val, 2-1, þegar botn- og topplið Pepsi Max-deildar karla áttust við á Akranesi í dag. Þetta var fyrsti sigur Skagamanna síðan 21. maí og gríðarlega mikilvægur fyrir þá.

Dramatískur sigur í fyrsta leik Jóns Þórs
Jón Þór Hauksson vann 2-1 sigur á Þrótti í sínum fyrsta leik sem þjálfari Vestra í Lengjudeild karla.

Sókndjarft lið fyrri umferðarinnar, Agla sú besta og vonleysislykt í Árbænum
Pepsi Max Mörkin gerðu upp fyrstu níu umferðirnar í Pespi Max deild kvenna í þætti sínum á fimmtudagskvöldið en þar var meðal annars valin besti leikmaðurinn.

Fjórtán prósent koma frá Breiðabliki
Knattspyrnuunnandinn Leifur Grímsson hefur undanfarin sumur birt skemmtilega tölfræði úr Pepsi Max deildinni.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Valur 4-3 | Lygilegur uppbótartími og Breiðablik í úrslit
Breiðablik mætir Þrótti í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna eftir ótrúlega dramatík í Kópavogi.

Ásta Eir: Það má segja að um galdra hafi verið að ræða í sigurmarkinu
Breiðablik sló út Val í ótrúlegum leik og eru komnar í úrslit Mjólkurbikarsins þar sem þær mæta Þrótti. Ásta Eir Árnadóttir fyrirliði Breiðabliks var í skýjunum með ótrúlegar lokamínútur leiksins.

Morten aftur í FH
Morten Beck Andersen er kominn aftur í FH eftir að hafa verið lánaður til ÍA fyrr í sumar.

„Eins og draumur að rætast“
„Þetta er bara geggjað, þetta er eins og draumur að rætast,“ sagði Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði kvennaliðs Þróttar, eftir 4-0 sigur síns liðs gegn FH í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í kvöld.

Grindavík mistókst að klifra upp töfluna
Grindavík og Þór gerðu 2-2 jafntefli í 12. umferð Lengjudeildar karla í dag er liðin mættust í Grindavík.

Umfjöllun og viðtöl: Þróttur R. - FH 4-0 | Þróttur í bikarúrslit í fyrsta skipti í sögunni
Þróttur tryggðu sér sæti í úrslitum Mjólkurbikars kvenna með 4-0 sigri á FH í Laugardal í kvöld. Leikurinn var sá fyrsti í sögu Þróttar í undanúrslitum en bæði lið gátu með sigri komið sér í sinn fyrsta úrslitaleik.

Tímabilinu lokið hjá Hrannari: „Einn mesti sársauki sem ég hef fundið“
Hrannar Björn Steingrímsson, leikmaður KA, hefur sett sér það markmið að vera klár í slaginn þegar nýtt Íslandsmót í fótbolta hefst næsta vor. Hann er með slitið krossband í hné.

Svekkelsið frá því í fyrra rekur FH áfram
Tuttugu ár eru síðan FH var síðast í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í fótbolta. Þróttur Reykjavík stendur í vegi fyrir þeim en leiki Hafnfirðingar sama leik og á síðustu leiktíð bíður þeirra úrslitaleikur á Laugardalsvelli gegn Val eða Breiðabliki.

Kórdrengir nálgast toppbaráttuna og Grótta og Afturelding fjarlægjast botnbaráttuna
Þrem leikjum var að ljúka í Lengjudeild karla. Kórdrengir sóttu þrjú stig á Selfoss með 1-0 sigri, Grótta vann sterkan 2-1 sigur gegn Fjölni á heimavelli og Afturelding átti ekki í vandræðum með Víking frá Ólafsvík þegar þeir unnu 6-1.

KR með fimm stiga forskot á toppnum
KR styrkti stöðu sína á toppi Lengjudeildar kvenna með 3-2 heimasigri á Augnablik í kvöld. KR-ingar snéru taflinu við eftir að hafa lent undir gegn botnliðinu.

Allt jafnt í toppslag Lengjudeildarinnar
Fram tók á móti ÍBV í toppslag Lengjudeildar karla í kvöld. Liðin sitja enn í fyrsta og öðru sæti deildarinnar eftir 1-1 jafntefli.

Helgi Valur kannast ekki við að hafa sagst ætla að hætta
Fyrr í mánuðinum birtist grein þar sem fullyrt var að Helgi Valur Daníelsson myndi leggja skóna á hilluna eftir yfirstandandi tímabil. Helgi, sem varð fertugur í vikunni, segist þó ekki kannast við það að hafa látið þau ummæli út úr sér.

Unnusta stjörnuleikmanns NFL-deildarinnar til liðs við Þrótt
Þróttur Reykjavík hefur sótt liðsstyrk til Bandaríkjanna. Dani Rhodes er 23 ára gamall framherji sem kemur frá Chicago Red Stars. Trúlofaðist hún nýverið T. J. Watt, leikmanns Pittsburgh Steelers í NFL-deildinni í Bandaríkjunum.

Fylgir þessu mikil ábyrgð og pressa
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Álfhildur Rósa Kjartansdóttir verið fyrirliði Þróttar Reykjavíkur síðan 2019. Á morgun, föstudag, mun hún gera nokkuð sem enginn fyrirliði kvennaliðs Þróttar Reykjavíkur hefur gert áður: leiða lið sitt út í undanúrslitaleik bikarkeppninnar.

Jón Þór tekinn við Vestra
Jón Þór Hauksson hefur verið ráðinn þjálfari Vestra í Lengjudeild karla. Hann hefur skrifað undir samning við félagið út tímabilið.

Óvænt úrslit í Lengjudeild kvenna
Það voru óvænt úrslit í Lengjudeild kvenna er þrír leikir fóru fram í tíundu umferð deildarinnar fóru fram.

Óli Jóh krækir í nafna sinn
FH hefur samið við varnarmanninn Ólaf Guðmundsson en hann kemur til félagsins frá Breiðabliki. FH staðfesti félagaskiptin í kvöld.

Fékk þrjú stig á fertugsafmælinu
Fylkismaðurinn Helgi Valur Daníelsson varð fertugur í gær og fagnaði stórafmælinu með góðum sigri á KA-mönnum.

Tindastóll sækir reynslumikla leikmenn út fyrir landsteinana
Tindastóll hefur sótt tvær landsliðskonur frá Rúmeníu og Moldóvu fyrir komandi átök í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu. Stólarnir sitja á botni deildarinnar með 8 stig, aðeins stigi frá öruggu sæti.

Þórður í klandri í Kórnum: „Ætlar að gera einhverjar krúsídúllur“
Þórður Ingason, markvörður Víkinga, kom sér í klípu er hann var að dútla með knöttinn í leik Víkings og HK í Pepsi Max deild karla. Var það til umræðu í Stúkunni að leik loknum.

Öll mörkin úr mánaðarlangri 12. umferð: Skæri Orra klipptu Brkovic niður
Þrjú mörk voru skoruð þegar tólftu umferð Pepsi Max-deildar karla í fótbolta lauk í gærkvöld með tveimur leikjum. Mörkin þrjú voru öll skoruð í Árbæ þar sem Fylkir vann KA 2-1. Öll mörkin úr umferðinni má nú sjá á Vísi.

Lof og last 12. umferðar: Sindri Kristinn, Arnþór Ingi, Orrarnir tveir í Árbæ og liðum að fatast flugið
Tólftu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk loks í gærkvöld. Hún hófst þann 16. júní en vegna landsleikja og Evrópuleikja færðist hún til svo henni lauk loks þann 13. júlí. Mikið gekk á í umferðinni og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last.