Íslenski boltinn

Fulltrúi vanmetna árgangsins orðinn fyrirliði Breiðabliks
Höskuldur Gunnlaugsson er nýr fyrirliði Breiðabliks sem ætlar sér stóra hluti. Hann segir að Blikar séu búnir að ná tökum á nýjum leikstíl. Höskuldur kemur úr sterkum árgangi í Breiðabliki sem lítið var talað um. Hann hefur nóg fyrir stafni utan fótboltans.

Spekingarnir ekki vissir um að Hilmari Árna líði vel í traffík
Hilmar Árni Halldórsson, leikmaður Stjörnunnar, hefur verið einn besti leikmaður Pepsi Max-deildarinnar undanfarin ár en hann hefur lengst af spilað á vinstri kantinum hjá Stjörnunni.

Pepsi Max-spáin 2020: Flýgur Hrafninn í Kópavoginum?
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Breiðabliki 3. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar.

Tómas Ingi um Aron Bjarnason: „Aldrei verið hrifinn af Aroni sem fótboltaspilara“
Tómas Ingi Tómasson, einn sparkspekingur Pepsi Max-markanna, segir að koma Arons Bjarnasonar í lið Vals muni ekki skipta sköpum í sumar en þetta sagði hann í fjórða og síðasta miðvikudags-upphitunarþætti Pepsi Max-markanna í gær.

Atli Viðar um frestunina í Víkinni: „Sorglegt að þeir geri þetta í dag“
Atli Viðar Björnsson, sparkspekingur Pepsi Max-markanna, segir ákvörðun Víkinga sorglega en þeir ákváðu að fresta leik sínum við Fjölni um einn dag þegar fjórir dagar voru í leikinn.

Fylkismenn fá leikmann frá Aftureldingu
Hinn 18 ára gamli varnarmaður Arnór Gauti Jónsson er genginn í raðir Fylkis nú þegar tímabilið í Pepsi Max-deild karla í fótbolta er að hefjast.

Kristján Gauti með Stjörnunni eftir fjögur ár í dvala?
Kristján Gauti Emilsson, fyrrverandi leikmaður unglingaliðs Liverpool, gæti verið að taka fram fótboltaskóna eftir að hafa ekki spilað fótbolta í fjögur ár.

Víkingar fengu að færa fyrsta leik og geta tekið við 600 manns í viðbót
Leikur Víkings R. og Fjölnis í 1. umferð Pepsi Max-deildar karla í fótbolta hefur verið færður til um einn dag og þar með gætu 1.000 fullorðnir mætt á leikinn í stað 400.

Ekki hægt að kaupa miða á leik Vals og KR á svæðinu á leikdag
Stúkunni á Origo vellinum á Hlíðarenda verður skipt niður í fjögur hólf og hvert þeirra verður með sér inngang á stórleik Vals og KR á laugardagskvöldið.

Spáin fyrir Pepsi Max kvenna 2020: Vongóðu liðin (4. til 5. sæti)
Vísir er að spá fyrir um lokastöðuna í Pepsi Max deild kvenna og nú er komið að tveimur liðunum sem ættu að koma örugglega mjög bjartsýn og vongóð til leiks í sumar.

Pepsi Max kvenna eftir 2 daga: Pétur í mjög fámennan hóp með Loga Ólafs
Pétur Pétursson afrekaði það í fyrrasumar sem aðeins einum öðrum þjálfara hefur tekist í sögu íslenskrar knattspyrnu.

3 dagar í Pepsi Max: Lennon bara með 2 af 22 mörkum sínum á gervigrasi
Steven Lennon hefur skorað 91 prósent marka sinna undanfarin tvö sumur á grasvöllum eða 20 af 22.

Landsliðsmarkvörðurinn sem selur fyrir Smyril Line
Eftir að hafa aðeins leikið þrjá leiki í fyrra er Gunnar Nielsen staðráðinn í að hjálpa FH að berjast um Íslandsmeistaratitilinn. Færeyski landsliðsmarkvörðurinn hefur skotið rótum á Íslandi, heimalandi móður sinnar. Hann segir að FH vilji fara alla leið í sumar.

Pepsi Max-spáin 2020: Erfiður vetur en allt önnur staða með hækkandi sól
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir FH 4. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar.

Þór/KA ætlar í toppbaráttu – Fær bandarískan leikmann
„Við viljum og ætlum okkur að vera í toppbaráttu,“ segir Andri Hjörvar Albertsson, þjálfari Þórs/KA í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta. Liðið hefur bætt markaskorara í sinn hóp.

Áslaug Munda framúrskarandi í náminu og boltanum: „Alltaf verið auðvelt að tala við kennarana“
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, landsliðskona í fótbolta, fékk sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í námi og knattspyrnu þegar hún útskrifaðist frá afrekssviði Menntaskólans í Kópavogi á dögunum.

Guðmundur Steinn í KA
Guðmundur Steinn Hafsteinsson tekur slaginn með KA í Pepsi Max-deild karla í sumar.

Spáin fyrir Pepsi Max kvenna 2020: Varkáru liðin (6. til 7. sæti)
Tvö stórveldi í kvennafótboltanum síðustu ár, sem jafnan setja stefnuna á Íslandsmeistaratitilinn, þurfa að passa sig í sumar ef þau ætla ekki að dragast niður í fallbaráttuna.

Pepsi Max kvenna eftir 3 daga: Þriðja markahæsta lið deildarinnar féll í fyrra
Keflavíkurkonur settu met í markaskorun síðasta sumar því aldrei áður hefur lið fallið úr tíu liða deild með jafnmörg mörk.

4 dagar í Pepsi Max: Unnu fimm ár í röð án þess að vera spáð titlinum einu sinni
Skagamenn náðu því ótrúlega afreki að verða Íslandsmeistarar fimm ár í röð á árunum 1992 til 1996 en enginn hafði samt trú á neinum þessara titla í árlegri spá fyrir deildina.

Langar að verða meistari eins og pabbi
Hetjan í bikarúrslitaleiknum í fyrra, Óttar Magnús Karlsson, segir Víkinga stefna ótrauða á Íslandsmeistaratitilinn. Framherjinn vill reyna aftur fyrir sér erlendis. Óttar íhugaði að leggja handboltann fyrir sig, eins og pabbi sinn, en valdi fótboltann.

Pepsi Max-spáin 2020: Vonir og væntingar í Víkinni
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Víkingi 5. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar.

Ráðherra lagði hönd á plóg fyrir Fjölni
Íslandsmótið í fótbolta er handan við hornið og knattspyrnufélög landsins í óða önn við undirbúning sem meðal annars felst í því að selja sem flest árskort á heimaleiki til stuðningsmanna.

Tugum milljóna veðjað á 1. umferð bikarsins
Getspakir, og minna getspakir, fótboltaáhugamenn veðjuðu samtals fyrir að minnsta kosti um 20 milljónir króna á leiki í 1. umferð Mjólkurbikarsins í fótbolta.

Birgitta með fimmu gegn Fram - Ljóst hvaða lið mætast í 2. umferð bikarsins
Nú er orðið ljóst hvaða lið mætast í 2. umferð Mjólkurbikars karla og kvenna í fótbolta en síðustu leikjunum í 1. umferð lauk í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - HK 3-0 | Ragna Guðrún með tvö og Afturelding í 2. umferð
Afturelding sló í kvöld HK út úr Mjólkurbikar kvenna í fótbolta. Leikurinn fór 3-0 en hann fór fram á Fagverksvellinum í Mosfellsbæ. Afturelding komst yfir í fyrri hálfleik og var aldrei nálægt því að missa forystuna frá sér.

Mál Elliða inn á borð aganefndar - Dómarinn kallaður þöngulhaus
Framkvæmdastjóri KSÍ hefur vísað ummælum á Twitter-síðu 3. deildarliðsins Elliða til aga- og úrskurðarnefndar sambandsins.

Spáin fyrir Pepsi Max kvenna 2020: Fallbaráttan (8. til 10. sæti)
Vísir mun á næstu dögum spá fyrir um lokastöðuna í Pepsi Max deild kvenna og við byrjum á því að fara yfir liðin sem við teljum munu vera að berjast fyrir lífi sínu í deildinni.

Pepsi Max kvenna eftir 4 daga: Meistarar meistaranna hafa ekki unnið Íslandsmeistaratitilinn í tíu ár
Selfoss varð meistari meistaranna á laugardaginn með 2-1 sigri á Íslandsmeisturum Vals en það hefur ekki boðað gott fyrir kvennaliðin að vinna þennan titil síðasta áratuginn.

5 dagar í Pepsi Max: Sautján ár síðan KR vann titilinn eftir að hafa verið spáð honum
Það hefur ekki boðað gott þegar KR-liðinu er spáð Íslandsmeistaratitlinum en það hefur nú gerst oftar en einu sinni að hin liðin hafa sett pressuna á Vesturbæjarliðið.