Körfubolti

Helgi Már: Finnst allt í lagi að menn pústi svo framarlega sem þeir séu kurteisir
Helgi Már Magnússon, þjálfari KR, sagði að það hafi verið sárt að kyngja tapinu fyrir Tindastóli í framlengdum leik í kvöld. Stólarnir sóttu sigur í Vesturbæinn, 82-83.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Grindavík 81-77 | Kaflaskiptur leikur er Valur sigraði Grindavík eftir spennandi lokakafla
Valsmenn náðu í sinn fyrsta sigur í Subway deild karla þegar þeir lögðu Grindavík að velli 81-77 í kaflaskiptum leik sem varð spennandi í lokin eftir að ekkert benti til þeirrar þróunar lengi vel í seinni hálfleik. Bæði lið eru þá komin með tvö stig í pokann góða en það voru batamerki á leik þeirra beggja úr síðustu umferð.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Tindastóll 82-83 | Stólasigur í spennutrylli í Vesturbænum
Tindastóll vann nauman sigur á KR, 82-83, í framlengdum leik í 2. umferð Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld.

Finnur Freyr: Við trúum því að þetta lið sé nógu gott til að fara í hvern einasta leik til þess að vinna hann
Valsmenn fóru með sigur af hólmi gegn Grindvíkingum í kvöld þegar liðin áttust við í annarri umferð Subway deildar karla í körfubolta í kvöld. Leikurinn endaði 81-77 í leik sem var kaflaskiptur og var Finnur ánægður með ýmsa hluti í leik sinna manna.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Villeneuve D'Ascq 41-84 | Jákvæðir punktar en himinn og haf milli liðanna
Haukar töpuðu stórt á móti Villeneuve D'Ascq frá Frakklandi í fyrsta leik sínum í L-riðli EuroCup í körfubolta kvenna, 41-84.

Bjarni Magnússon: „Veit ekki hvort það var fyrir neðan þeirra virðingu“
Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, var ánægður með baráttuna í sínum leikmönnum og segist taka jákvæða punkta út úr leiknum, þrátt fyrir 43 stiga tap gegn Villeunueve í Evrópubikarnum.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Ak. - Njarðvík 91-109 | Frábær liðsheild Njarðvíkinga skilaði öruggugum sigri
Njarðvík vann í kvöld öruggan 18 stiga sigur þegar að liðið heimsótti Þór Akureyri í Subway-deild karla í körfubolta. Liðið hefur nú unnið báða leiki sína í fyrstu tveim umferðunum.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Vestri 100-77| Fyrsti sigur Íslandsmeistaranna í Subway-deildinni
Þór Þorlákshöfn vann sinn fyrsta leik í Subway-deildinni. Íslandsmeistararnir voru ekki í vandræðum með nýliða Vestra. Þór Þorlákshöfn gerði 30 stig í 3. leikhluta og stakk af. Þór vann á endanum 23 stiga sigur 100-77.

KR-ingurinn mætir liðinu sem hann yfirgaf á miðju tímabil í fyrra
Augu margra verða á Shawn Derrick Glover í DHL-höllinni í kvöld þegar KR tekur á móti Tindastól í annarri umferð Subway-deildar karla í körfubolta.

Boltinn lýgur ekki: Martin í beinni frá Spáni, NBA og íslensku deildirnar
Útvarpsþátturinn Boltinn lýgur ekki fær til sín góða gesti í dag en þátturinn hefst klukkan 16:00 á X-inu 977. Martin Hermannsson verður á línunni og Hörður Unnsteinsson mætir í hljóðverið.

Irving ætlar ekki að hætta: „Haldiði virkilega að ég vilji tapa peningum?“
Kyrie Irving, leikmaður Brooklyn Nets í NBA-deildinni, þvertekur fyrir að hann ætli að leggja körfuboltaskóna á hilluna í bráð.

LeBron James horfði á Squid Game en var ekki ánægður með endinn
Það eru allir að horfa á kóresku sjónvarpsseríuna Squid Game og körfuboltastjarnan LeBron James gat ekki beðið eftir því að tala um þáttinn eftir blaðamannafundinn sinn í gær.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Njarðvík 58-67 | Njarðvíkingar með fullt hús stiga eftir sigur í nágrannaslag
Nýliðar Njarðvíkur eru með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir í Subway-deild kvenna í körfuknattleik. Þær unnu 67-58 útisigur á nágrönnum sínum í Grindavík í kvöld.

Collier: Fann að þessi leikur var mikilvægur fyrir stelpurnar
Við fórum að gera það sem við erum þekktar fyrir í síðari hálfleik, að spila góða vörn, og það kveikti neista í sókninni hjá okkur,“ sagði Aliyah Collier leikmaður Njarðvíkur eftir sigurinn á Grindavík í Subway-deild kvenna í körfuknattleik í kvöld.

Keflavík sótti sigur í Grafarvog
Keflavík vann tólf stiga sigur á Fjölni í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur 89-77 gestunum í vil.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Breiðablik 73-70 | Íslandsmeistararnir enn ósigraðir
Íslandsmeistarar Vals unnu þriðja leikinn í röð er Breiðablik kom í heimsókn á Hlíðarenda í Subway-deild kvenna í kvöld. Sigurinn var einkar naumur en aðeins munaði þremur stigum á liðunum, lokatölur 73-70.

Helena um Evrópuævintýri Hauka: „Höfum engu að tapa og ætlum að stríða þeim eins mikið og við getum“
„Við erum ótrúlega spenntar og það verður skemmtilegt í Ólafssal á morgun,“ sagði Helena Sverrisdóttir, leikmaður Hauka, sem hefur leik í riðlakeppni Evrópubikar kvenna í körfubolta í Ólafssal í Hafnafirði á morgun.

Kyrie Irving mun ekki æfa né spila með Brooklyn
Körfuboltamaðurinn Kyrie Irving, sem leikur með Brooklyn Nets, mun hvorki æfa né spila með liðinu nema hann láti bólusetja sig.

Ben Simmons kom öllum á óvörum með því að mæta í vinnuna
Nú lítur allt í einu út fyrir það að Ben Simmons muni eftir allt saman spila með Philadelphia 76ers liðinu í NBA deildinni í körfubolta í vetur.

Aþena í beinni sjónvarpsútsendingu í fyrsta sinn í kvöld
Körfuboltafélagið Aþena UMFK fær sinn fyrsta sjónvarpsleik í kvöld þegar Þór Akureyri kemur í heimsókn í 1. deild kvenna í körfubolta.

Atson heillaði Grindvíkinga
Bandaríkjamaðurinn Travis Atson mun leika með körfuknattleiksliði Grindavíkur í vetur. Fyrsti leikur hans gæti orðið gegn KR í næstu viku.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Haukar 63-70| Fyrsti sigur Hauka í Subway-deildinni
Haukar unnu útisigur á Keflavík í 2. umferð Subway-deildarinnar. Helena Sverrisdóttir sneri til baka úr meiðslum og kom Haukum aftur á sigurbraut. Leikurinn endaði 63-70

Njarðvíkingar og Valskonur með sigra í Subway-deildinni
Njarðvíkingar og Valskonur unnu sigra í Subway-deild kvenna í kvöld. Njarðvíkingar fengu Fjölniskonur í heimsókn og unnu tíu sti-ga sigur, 71-61, og á sama tíma unnu Valskonur 22 stiga útisigur gegn Skallagrími, 92-70.

„Við munum bara verða betri”
Robbi Ryan, leikmaður Grindavíkur, átti framúrskarandi leik í 69-83 sigri Grindavíkur í Njarðvík í kvöld. Ryan skoraði alls 28 stig ásamt því að taka 7 fráköst og gefa 5 stoðsendingar. Hún varar önnur lið í deildinni við því að Grindavík er rétt að byrja.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Grindavík 69-83 | Fyrsti sigur nýliðanna
Nýliðar Grindavíkur unnu sinn fyrsta sigur í Subway-deild kvenna þegar að liðið heimsótti Breiðablik í kvöld. Lokatölur 83-69, en Blikar eru enn án sigurs.

Martin stigahæsti maður vallarins er Valencia tapaði gegn Real Madrid
Martin Hermannsson var stigahæsti maður vallarins með 20 stig þegar að Valencia tapaði fyrir Real Madrid í spænsku ACB deildinni í körfubolta í dag, 93-79.

NBA stjarna nýr stuðningsmaður Njarðvíkur
Njarðvíkingar hafa á að skipa afar öflugum mannskap í Subway deildinni í körfubolta og þykja líklegir til að vinna mótið örugglega.

Hóf sitt 25.tímabil í sigri á Íslandsmeisturunum
Subway deildin í körfubolta hófst fyrir helgi og goðsögnin Logi Gunnarsson var á sínum stað í liði Njarðvíkur.

Hafa meiri trú á Breiðablik en Vestra
Subway deildin í körfubolta fór af stað með pompi og pragt fyrir helgi.

Tryggvi og félagar steinlágu á Tenerife
Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Zaragoza gerðu ekki góða ferð til Tenerife í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.