
Körfubolti

Chris Paul neitaði að hvíla og leiddi Phoenix til sigurs á meisturunum
Chris Paul og félagar í Phoenix Suns jöfnuðu metin í einvíginu við meistara Los Angels Lakers í átta liða úrslitum Vesturdeildar NBA með 92-100 sigri í Staples Center í gær.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Valur 65-71 | Risaþristar réðu úrslitum í stórskemmtilegum leik
Valskonur eru komnar í 2-0 í úrslitaeinvíginu gegn Haukum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Annar sigur Valskvenna kom í Hafnarfirði í kvöld, 65-71 urðu lokatölur en stórir þristar á lokamínútunum tryggðu gestunum sigurinn.

Bjarni Magnússon: Þessi þrjú litlu atriði spila stóran þátt í þessu tapi
Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, var eðlilega svekktur eftir tap liðsins gegn Val í úrslitaeinvígi Domino's deildar kvenna. Hann segir að liðið hafi gert vel í 37 mínútur í kvöld, en seinustu þrjár mínúturnar hafi farið með leikinn.

Benedikt Guðmundsson tekur við Njarðvík
Benedikt Guðmundsson mun þjálfa karlalið Njarðvíkur í Domino's deildinni næstu þrjú ár. Samningar þess efnis voru undirritaðir á dögunum en Benedikt mun einnig taka að sér þjálfun yngri flokka félagsins.

Vildum ekki leika við matinn okkar
Giannis Antetokounmpo, Gríska undrið, notaði skemmtilega myndlíkingu eftir öruggan sigur Milwaukee Bucks á Miami Heat í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt.

Miami sópað, Washington að fara sömu leið, Portland gefst ekki upp og Utah tók forystuna | Myndbönd
Fjórir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Á meðan einu einvígi er lokið og öðru við það að ljúka er allt galopið í hinum tveimur.

Jakob Örn: Klukkan hálf níu um morguninn er maður orðinn peppaður í leikinn
Jakob Örn Sigurðarson, leikmaður KR, mætti í viðtal í Körfuboltakvöld eftir oddaleik KR og Vals á föstudaginn. Hann segir það mikinn létti að þessari rimmu sé lokið.

NBA dagsins: Magnaður Tatum hógvær eftir að skora 50 stig ásamt því helsta úr leikjunum í nótt
Jayson Tatum skoraði 50 stig er Boston Celtics hélt sér á lífi í einvígi liðsins gegn Brooklyn Nets í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. Þá komst Atlanta Hawks í 2-1 gegn New York Knicks og Los Angeles Clippers minnkuðu muninn í 2-1 gegn Dallas Mavericks

Má alveg velta fyrir sér hversu gáfuleg ákvörðun það var að láta hana sitja út af á þessum tímapunkti
Valur vann Hauka í fyrsta leik úrslitaeinvígis Domino´s deildar kvenna á fimmtudagskvöld. Ákvörðun þjálfara Hauka að kippa Alyeshu Lovett af velli í síðari hálfleik vakti athygli Domino´s Körfuboltakvölds.

Jón Arnór um síðasta leik ferilsins: „Var þarna með félögunum þó ég hafi verið í öðrum búning“
Jón Arnór Stefánsson, einn albesti íþróttamaður Íslandssögunnar, hætti í körfubolta eftir tap Vals gegn KR í 8-liða úrslitum Domino´s deildar karla í gærkvöld. Hann ræddi við Körfuboltakvöld um leikinn, ferilinn og margt fleira að leik loknum.

Hawks tók forystuna, Tatum hélt Celtics á floti og stjörnuleikur Luka dugði ekki | Myndbönd
Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í kvöld. Atlanta Hawks tók 2-1 forystu í einvígi sínu gegn New York Knicks, lokatölur 105-94.

Umfjöllun: Valur - KR 86-89 | Íslandsmeistararnir í undanúrslit
KR er komið í undanúrslitin í Domnio's deild karla eftir sigur á Val í oddaleik að Hlíðarenda 86-89. Það er mál manna að sjaldan eða aldrei hafi einvígi í úrslitakeppninni verið jafn ákaflega spiluð en bæði líkami og andi leikmanna fékk að finna fyrir því í einvíginu.

Jón Arnór: Fyrst og fremst þakklátur
Jón Arnór Stefánsson var skiljanlega ekki sáttur við að hafa fallið úr leik í átta liða úrslitum Íslandsmótsins í körfubolta þegar Valur tapaði fyrir KR 89-86 fyrr í kvöld. Hann var hinsvegar þakklátur fyrir að hafa tekið þátt í þessu einvígi og að hafa fengið að spila körfubolta en hann tilkynnti að hann væri hættur að spila körfubolta. Hann var spurður að því hvernig tilfinningarnar væru strax eftir leik.

Jón Arnór hættur
Jón Arnór Stefánsson er hættur í körfubolta. Þetta staðfesti hann í samtali við Stöð 2 Sport að loknum leik Vals og KR í átta liða úrslitum Domino's deildar karla í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 104-72 | Stjarnan í undanúrslit eftir stórsigur
Stjarnan er komið í undanúrslit Domino's deildar karla eftir sigur á Grindavík í oddaleik í Garðabæ í kvöld.

Sjáðu upphitunarmyndband fyrir oddaleikjakvöldið mikla
Dagurinn í dag, 28. maí, er eins og aðfangadagur fyrir körfuboltaáhugafólk enda eru tveir oddaleikir á dagskrá. Eftir kvöldið verður ljóst hvaða fjögur lið komast í undanúrslit Domino's deildar karla.

NBA dagsins: AD og LeBron búnir að skipta í meistaragírinn
Í fyrsta sinn í langan tíma þá leit Los Angeles Lakers liðið út í nótt eins og lið sem ætlar sér að berjast um meistaratitilinn í NBA deildinni í sumar.

KR-ingar hafa unnið tíu af síðustu ellefu útileikjum sínum í úrslitakeppni
Úrslitastund í einvígi Vals og KR í átta liða úrslitum Domino's deildar karla í körfubolta er í kvöld en heimaliðið hefur enn ekki náð að fagna sigri í rimmunni.

„Það var rosalegur hrollur í þeim“
Það er líklega ekki hægt að finna lið sem hefur byrjað úrslitaeinvígi verr en Haukakonur í lokaúrslitum Domino's deild kvenna í körfubolta í gær. Haukar töpuðu fyrsta leikhlutanum 18-2 og náðu aldrei að vinna það upp það sem eftir lifði leiks.

Tímalína um rimmu Vals og KR: Loftbrú úr Vesturbænum á Hlíðarenda, Júdas, fasteignapeningar og lúxus körfubolti
Eftir umdeild félagaskipti, skeytasendingar og fyrst og síðast frábæran körfubolta nær rimma fjandliðanna Vals og KR hámarki þegar þau mætast í oddaleik um sæti í undanúrslitum Domino's deildar karla í kvöld.

Sigur í fyrsta heimaleik Lakers liðsins í úrslitakeppni í átta ár
Los Angeles Lakers og Denver Nuggets eru bæði búin að snúa við sínum einvígum með tveimur sigrum í röð í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta en Milwaukee Bucks er aftur á móti komið í 3-0 á móti Miami Heat.

Knicks banna áhorfandann sem hrækti á Trae Young
Úrslitakeppnin í NBA-deildinni í körfubolta hefur farið af stað með látum. Áhorfendur eru mættir aftur á hliðarlínuna og hafa þeir heldur betur látið taka til sín. Sumir á jákvæðan hátt en aðrir á neikvæðan hátt.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Haukar 58-45 | Haukar byrjuðu einum leikhluta of seint
Valskonur tóku í kvöld forystu í einvíginu við Hauka um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta, með 58-45 sigri á Hlíðarenda í fyrsta leik.

„Þykir auðvitað vænt um þær innst inni en þegar leikurinn er í gangi þá gleymum við því“
„Við vildum gefa þeim fyrsta kjaftshöggið en vorum náttúrulega ekki alveg búnar undir að þær myndu bara skora eina körfu,“ sagði Helena Sverrisdóttir um ótrúlegan fyrsta leikhluta einvígis Vals og Hauka um Íslandsmeistaratitilinn.

NBA dagsins: „Ég hef aldrei verið í svona stöðu áður“
Utah Jazz endurheimti sinn besta mann og tókst að jafna einvígið sitt á móti Memphis Grizzlies í úrslitakeppni NBA í nótt og það þrátt fyrir metframmistöðu hjá stjörnubakverði hins liðsins.

Varnarleikur AkureyrarÞórs ekki í neinum takti við tilefnið
Mikill munur var á varnarleik Þórsliðanna í leiknum á Akureyri í gær. Á meðan Adomas Drungilas bætti vörn ÞorlákshafnarÞórsara til muna var vörn AkureyrarÞórsara eins og vængjahurð.

Kallaði fram kjánahroll og minningar um gerviíþrótt í Bandaríkjunum
Það hefur verið hart tekist á í úrslitakeppni Domino's deildar karla í körfubolta en leikaraskapurinn er líka til staðar eins og sannaðist í Grindavík í síðasta leik.

Allar nokkrum prósentum betri eftir komu Söru og von á æsilegu einvígi
„Þetta einvígi verður æsispennandi og býður upp á gæðakörfubolta,“ segir Pálína Gunnlaugsdóttir um úrslitaeinvígi Vals og Hauka um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta kvenna.

Russell Westbrook endaði kvöldið snemma, meiddur og í poppkornssturtu
Þetta var ekki gott kvöld fyrir Washington Wizards liðið sem er komið 2-0 undir á móti Philadelphia 76ers í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta. Utah Jazz jafnaði metin á móti Memphis og New York Knicks jafnaði metin á móti Atlanta.

„Örlögin ákváðu að þetta færi í oddaleik“
Darri Freyr Atlason var að vonum ekkert sérstaklega ánægður eftir tapið gegn Val á heimavelli í kvöld