
Körfubolti

Sportpakkinn: Snæfellskonur lokuðu á gamla liðsfélagann en KR fór samt heim með öll stigin
KR ætlar að veita Val harða keppni í Dómínósdeild kvenna í körfubolta. KR jafnaði Val að stigum í Stykkishólmi í gærkvöldi, vann Snæfell með 24 stiga mun, 81-57.

Finnur komst aftur á sigubraut | Haukur Helgi og Tryggvi í sigurliðum í Evrópukeppnum
Íslendingar voru í eldlínunni í körfuboltanum í Danmörku og Rússlandi.

Njarðvík bætir við sig Bandaríkjamanni sem þjálfarinn þekkir vel
Einar Árni Jóhannsson hefur náð í gamla lærisvein.

ESA hefur lokað málinu gegn Körfuknattleikssambandi Íslands
EFTA Surveillance Authority, sem er skammstafað ESA, sættir sig við þær breytingar sem Körfuknattleikssamband Íslands hefur gert á reglum um erlenda leikmenn. Málið gegn KKÍ heyrir því sögunni til.

Daði Berg fékk þriggja leikja bann og Mantas einn leik
Búið er að úrskurða í máli Daða Berg Grétarssonar og Mantas Virbalas.

Jón Axel er á hinum sögufræga Naismith lista
Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson er á listanum yfir þá fimmtíu sem menn eiga að fylgjast með í Bandaríkjunum í vetur

LeBron James með þrennu í þriðja leiknum í röð
Los Angeles Lakers hélt sigurgöngu sinni áfram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið vann endurkomusigur á Chicago Bulls. Þetta var sjötti sigur Lakers í röð eftir tapið í fyrsta leik tímabilsins.

Sjáðu tíu bestu tilþrif umferðarinnar í Domino's deildunum
Tíu bestu tilþrif 5. umferða Domino's deildar karla og kvenna.

Þriðji NBA-leikmaðurinn dæmdur í 25 leikja bann fyrir að nota ólögleg lyf
Einn besti leikmaður Atlanta Hawks fékk langt bann eftir að hann féll á lyfjaprófi.

KR ekki í vandræðum í Stykkishólmi
KR lenti í engum vandræðum með Snæfell í 6. umferð Dominos-deildar kvenna er liðin mættust í Stykkishólmi í kvöld. Lokatölur 81-57.

Óþekktur nýliði kom Golden State til bjargar á afmælinu sínu
Ný stjarna er mögulega að fæðast hjá Golden State Warriors eftir ótrúlega frammistöðu nýliða þegar liðið þurftu á öllu hans að halda í miklum meiðslavandræðum sínum.

Sportpakkinn: Blikar ætla að koma aftur á óvart
Í dag var dregið í 16-liða úrslit Geysisbikars karla og kvenna í körfubolta.

Suðurnesjaslagir í 16-liða úrslitum Geysisbikarsins
Dregið var í 16-liða úrslit Geysisbikars karla og kvenna í körfubolta í dag.

Fyrsta tap 76ers kom í Phoenix
Öll lið NBA deildarinnar hafa nú tapað leik á tímabilinu þar sem Phoenix Suns batt enda á fimm leikja sigurgöngu Philadelphia 76ers í nótt.

Þór áfram eftir spennutrylli en þægilegra hjá Stólunum á Selfossi
Þór Þorlákshöfn og Tindastóll voru síðustu liðin inn í 16-liða úrslit Geysis-bikars karla.

Frábær varnartilþrif Tryggva | Myndband
Bárðdælingurinn varði þrjú skot í sigri Casademont Zaragoza á San Pablo Burgos um helgina.

Nýi Bandaríkjamaður botnliðsins hefur spilað bæði með OKC og FSU
Þór Akureyri hefur fengið nýjan bandarískan leikmann til liðs við sig í Dominos deild karla í körfubolta.

LeBron fór á kostum í fimmta sigri Lakers í röð
Los Angeles Lakers byrjar tímabilið af krafti í NBA körfuboltanum.

Blikar slógu ÍR úr bikarnum
Grindavík, Sindri, Njarðvík, Þór Akureyri og Breiðablik eru komin áfram í aðra umferð Geysisbikars karla.

Martin fór mikinn og Alba enn ósigrað
Martin Hermannsson átti frábæran leik fyrir Alba Berlin sem vann sigur á Ratiopharm Ulm í þýsku Bundesligunni í körfubolta í dag.

Fyrsta tap Finns í Danmörku
Eftir að hafa unnið fyrstu sex deildarleiki sína tapaði Horsens sínum fyrsta leik á tímabilinu í dag.

Domino's Körfuboltakvöld: Heimastúlkurnar draga Haukavagninn
Haukar eru á góðu skriði í Domino's deild kvenna.

Giannis sýndi sparihliðarnar gegn meisturunum og 76ers ósigraðir
Átta leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Körfuboltakvöld: Sigur ÍR frammistaða tímabilsins
ÍR vann sterkan sigur á KR í Domino's deild karla í vikunni. Sigur ÍR var frammistaða tímabilsins að mati sérfræðinga Domino's Körfuboltakvölds.

Framlengingin: Njarðvík aldrei að fara að falla
Keflvíkingar eru alvöru meistaraefni, Njarðvíkingar falla ekki og bæði Grindvíkingar og Haukar geta farið á flug. Þetta sögðu sérfræðingar Domino's Körfuboltakvölds í Framlengingunni.

Meiðslalisti Warriors lengist
Meiðslavandræði Golden State Warriors eru orðin enn verri eftir að Draymond Green meiddist á fingri í leik Warriors og San Antonio Spurs.

Körfuboltakvöld: Ahmad með „ekkert venjulegt touch“
Keflavík er efsta lið Domino's deildar karla og hefur ekki tapað leik þegar fimm umferðir eru búnar.

„Emil Karel búinn að vera besti Íslendingurinn í deildinni“
Emil Karel Einarsson, fyrirliði Þórs Þ., fékk mikið hrós frá sérfræðingum Domino's Körfuboltakvöld.

Sjáðu eldræðu Teits um Njarðvík: „Við minnstu mótspyrnu verða þeir litlir kallar og hræddir“
Teitur Örlygsson var ekki par sáttur með frammistöðu Njarðvíkinga gegn Stjörnumönnum.

LeBron stórkostlegur í fjórða sigri Lakers í röð
Átta leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.