Lífið

Mannakjöt vakti lukku á Hrekkjavöku
Útgáfu ljóðabókarinnar Mannakjöts var fagnað rækilega í útgáfuhófi á Tryggvagötu 10 á þriðjudag. Um hundrað manns mættu til að hlusta á rithöfundinn Magnús Jochum Pálsson lesa upp úr bókinni, neyta veiga og kaupa árituð eintök beint frá höfundi.

Matthías og Brynhildur eiga von á öðru barni
Listaparið Matthías Tryggvi Haraldsson og Brynhildur Karlsdóttir eiga von á sínu öðru barni saman.

Síðasta lag Bítlanna er komið út
Það má segja að John Lennon syngi í gegnum móðuna miklu því lag sem hann samdi og söng skömmu fyrir andlát sitt kom út í dag. Lagið sem um ræðir var óklárað úr smiðju söngvarans en gervigreind kom því í verk að hægt var að gefa það út nú áratugum eftir andlát hans.

Sváfu undir berum himni umkringdar villihundum
Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Silja Ýr Leifsdóttir lentu í heldur óvenjulegri lífsreynslu þegar þær héldu í heimsreisuferð fyrir nokkru síðan.

Þorgeir Ástvalds skvetti vatnsglasi yfir sofandi Gústa B
Það fór heldur betur vel á meðal Gústa B og Þorgeiri Ástvalds þegar þeir tveir félagarnir bjuggu saman í nokkra daga og það í þáttunum Sambúðin á Stöð 2.

„Nýr leikskóli í nýju landi“
Skúli Mogensen, athafnamaður og unnusta hans Gríma Björg Thorarensen innanhúshönnuður eru stödd á Balí þar sem synir þeirra eru byrjaðir í leikskóla.

Almenn ánægja með nýju búningana
Flugfélagið Icelandair tók nýjan einkennisfatnað í notkun í gær. Breytingin er í takt við samfélagslegar breytingar og liðkaðar reglur félagsins sem voru kynntar árið 2019.

Stefndi á heimsfrægð þegar Stundin okkar bauðst
„Ég er ekki að fara neitt þannig að þetta kemur bara allt saman í ljós,“ segir Felix Bergsson, sem er viðmælandi í Einkalífinu.

Icelandair frumsýnir nýjan einkennisfatnað
Flugfélagið Icelandair tók nýjan einkennisfatnað í notkun í dag. Breytingin er í takt við samfélagslegar breytingar og liðkaðar reglur félagsins sem voru kynntar árið 2019. Fólk getur valið hvernig það klæðist óháð kyni.

Stjörnur landsins eins og þú hefur aldrei séð þær fyrr
Hrekkjavakan fór fram með pompi og prakt víðs vegar um landið þar sem heilu hverfin voru skreytt í anda hátíðarinnar. Ungir jafnt sem aldnir klæddu sig upp í allra kvikinda líki og gengu húsanna á milli í von um sælgæti. Stjörnur landsins létu sig ekki vanta í gleðina og birtu myndir af afrakstrinum á samfélagmiðlum.

Metró maðurinn orðinn miðaldra
Baldur Rafn Gylfason hárgeiðslumeistari var einn þeirra sem lagði grunn að innreið Metró mannsins til Íslands upp úr aldamótum.

Inga Lind bætist í hóp glæsilegra einhleypra kvenna
Inga Lind Karlsdóttir, framleiðandi og fjölmiðlakona, fer einhleyp inn í veturinn. Nýlega slitnaði upp úr sambandi hennar og eiginmanns hennar, Árna Haukssonar fjárfestis.

Rúrik meðal gesta í klikkuðu partý hjá Heidi Klum
Rúrik Gíslason, athafnamaður og fyrirsæta, lagði land undir fót og mætti í árlegt Hrekkjavökupartí stórfyrirsætunnar Heidi Klum á næturklúbbnum Marquee í New York í gærkvöldi.

Engum lækni datt í hug að hún væri ólétt
Átján ára stúlka, sem fór ítrekað til læknis vegna magaverkja og var send í röntgenmyndatöku og ristilspeglun, kveðst reið og pirruð út í heilbrigðiskerfið eftir að í ljós kom að hún var ófrísk - og komin sex mánuði á leið.

Heidi Klum toppar sig í búningadeildinni
Fyrirsætan Heidi Klum er þekkt fyrir að taka hrekkjavökunni alvarlega, að minnsta kosti þegar kemur að búningum. Hún sló heldur betur í gegn í fyrra þegar hún mætti í sitt árlega hrekkjavökuteiti klædd sem ormur.

Ófæddur sonur Kardashian kominn með óvenjulegt nafn
Trommuleikarinn Travis Barker, eiginmaður raunveruleikastjörnunnar Kourtney Kardashian, leysti frá skjóðunni hvað ófæddur sonur þeirra ætti að heita í hlaðvarpsþætti á dögunum.

Óvenjuleg íbúð í stórborgarstíl
Í Listhúsinu við Engjateig í Laugardalnum er falleg og björt tveggja hæða íbúð til sölu. Eignin er í anda loft-íbúða erlendis sem einkennast af opnum og björtum rýmum með aukinni lofthæð. Ásett verð fyrir eignina er 142 milljónir.

Seiðskrattinn og elddrottningin heimsækja Árbæjarsafn á Hrekkjavöku
Hrekkjavaka verður að vanda haldin hátíðleg á Árbæjarsafni í Reykjavík í kvöld þar sem seiðskrattinn ógurlegi og elddrottningin munu meðal annars sýna listir sínar.

„Þetta er algjör vitleysa!“
„Þetta er algjör vitleysa!“ hrópaði Robert De Niro í réttarsal í New York í gær, þegar hann bar vitni í dómsmáli sem fyrrverandi starfsmaður leikarans höfðaði gegn honum.

Yfirlýsing frá Vinunum um fráfall Perry
Leikararnir úr þáttunum Friends segjast niðurbrotin eftir fráfall Matthew Perry. Jennifer Aniston, Courtney Cox, Lisa Kudrow, Matt LeBlanc og David Schwimmer sendu frá sér yfirlýsingu í kvöld.

Tannlæknir fer alla leið á hrekkjavökunni á Selfossi
Tannlæknir á Selfossi kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að því að skreyta húsið sitt fyrir hrekkjavökuna annað kvöld. Það tekur hann um viku að koma öllu upp en uppblásnar dúkkur og blóðugar grímur eru hluti af leikmununum, auk þess sem húsið blikkar allt í ljósum.

Áttu fallega stund í leynilauginni
Tónlistarkonan, plötusnúðurinn og Reykjavíkurdóttirin Ragnhildur Jónasdóttir, betur þekkt sem Ragga Hólm, kynntist kærustu sinni, Elmu Valgerði Sveinbjörnsdóttur, á djamminu.

Myndaveisla: „Við erum ennþá nákvæmlega sömu gaurarnir“
Rappdúettinn Úlfur Úlfur, sem samanstendur af Arnari Frey Frostasyni og Helga Sæmundi Guðmundssyni, gaf út plötuna Hamfarapopp á dögunum sem er þeirra fyrsta breiðskífa frá árinu 2017. Fyrir hafa þeir gefið út þrjár plötur.

Jakob Helgi og Stella selja 170 milljóna glæsihús í Garðabæ
Jakob Helgi Bjarnason, framkvæmdastjóri Modulus, og eiginkona hans, Bryndís Stella Birgisdóttir, innanhúshönnuður, hafa sett glæsilegt parhús við Stígprýði 4 í Garðabæ til sölu. Ásett verð fyrir eignina er 169,9 milljónir.

Allt vitlaust þegar liðið komst áfram í undanúrslit á lokaspurningunni
Það var heldur betur háspenna lífshætta í Kviss á laugardagskvöldið þegar Fjölnir og Dalvík/Reynir mættust í 8-liða úrslitum.

Stjörnulífið: „Grikk eða tott?
Hrekkjavökugleðin var við völd um helgina og tóku stjörnur landins forskot á sæluna skelltu sér í búninga. Aðrir skemmtu sér á árshátíðum erlendis, héldu afmæli og fögnuðu ástinni, svo fátt eitt sé nefnt. Þá létu sumir pússa sig saman.

Dánarorsök Perrys óljós
Formlegri niðurstöðu krufningar gamanleikarans Matthews Perry hefur verið frestað þar til niðurstöður eiturefnarannsóknar liggja fyrir.

Glæsilegustu einhleypu konur landsins
Íslenskar konur þykja þær fallegustu í heimi. Við hjá Lífinu á Vísi erum sammála þeirri kenningu. Í samráði við vel valda álitsgjafa settum við saman lista af einhleypum og glæsilegum íslenskum konum.

Liverpool-draumur varð að veruleika
Soffía Dögg Garðarsdóttir þáttastjórnandi Skreytum hús aðstoðaði tíu ára fótboltastelpu að breyta og bæta herbergið hennar í fyrsta þætti af fjórðu þáttaröðinni sem fór í loftið á Vísi á laugardaginn.

Ingimar vann leikinn og giftist Margréti
Einkaþjálfarinn Margrét Edda Gnarr og Ingimar Elíasson leikstjóri eru orðin hjón. Parið lét pússa sig saman við fallega athöfn í gær.