Skoðun

Nýsköpun án framtíðar?
Undanfarin misseri hafa stjórnvöld lagt mikla áherslu á nýsköpun á Íslandi. Samkeppnissjóður nýsköpunar Tækniþróunarsjóður hefur verið efldur, endurgreiðslur rannsókna- og þróunarkostnaður fyrirtækja hafa stóraukist, og skattaívilnanir fyrir sérhæft erlent starfsfólk verið komið á.

Landlæknir veldur skaða
Eitt af meginhlutverkum landlæknis er að hafa sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustu, skv. j-lið 1. mgr. 4. gr. laga um Landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007. Landlæknir hefur einnig eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsmönnum, skv. e-lið sama lagaákvæðis.

Jafnlaunavottun átti aldrei að vera skylda
Lögum um jafnlaunavottun var ætlað að stuðla að jafnrétti á vinnumarkaði. Samtök atvinnulífsins komu að mótun jafnlaunastaðalsins á sínum tíma en voru hins vegar ekki fylgjandi lögfestingu hans. Samtökin gerðu margvíslegar athugasemdir við lagafrumvarpið á sínum tíma og hafa varnaðarorðin raungerst.

Tekst Samfylkingunni að virkja lýðræðið - Tekst henni að færa kjósendum aukið vald
Sá viðsnúningur hefur nú orðið hjá Samfylkingunni, að í skoðanakönnun sögðust 30% kjósenda ætla að kjósa Samfylkinguna. Í ræðu Kristrúnar Frostadóttur á fundi flokksstjórnar á Laugabakka sagði hún flokkinn hafa skyldur við það fólk.

Ný Selfossbrú yfir Ölfusá – bruðl eða skynsemi?
Undanfarið hefur ný Selfossbrú yfir Ölfusá verið fréttaefni, ekki eingöngu vegna tafa, veggjalda eða vöntunar á ríkisábyrgð heldur vegna byggingarkostnaðar hennar.

Það er þetta með þorpið
Ef þú bara vissir hvað mér þykir gaman að mæta í vinnuna. Nýjar áskoranir á hverjum degi. Ótal tækifæri til að byggja upp einstaklinga framtíðarinnar og hvetja þá til góðra verka. Læra meira en í gær, kenna allt milli himins og jarðar og jafnvel skoða hluti sem maður vissi ekki að væru til.

Kostir gamaldags samræmdra prófa
Til skýringar: Með (gamaldags) samræmdum prófum í þessari grein er átt við stór próf sem haldin eru samdægurs í mörgum skólum, próf sem eru samin og yfirfarin miðlægt og próf sem hafa áhrif á leið nemenda í gegnum skólakerfið.Hér er því átt við próf eins og gömlu samræmdu prófin voru: próf þar sem mikið er undir.

Ábyrgð stjórnenda á netöryggi og NIS2
Á tímum hraðrar stafrænnar þróunar, þegar fyrirtæki reiða sig sífellt meira á tækni í daglegum rekstri, er netöryggi orðið lykilþáttur í rekstraráhættu fyrirtækja.

Ég skvetti málningu á bandaríska sendiráðið en hér er opið bréf til utanríkisráðherra
Þórdís Kolbrún, ég, Margrét Rut Eddudóttir hef nú mótmælt aðgerðaleysi þínu og ábyrgðarleysi í að verða eitt ár. Í eitt ár hafa þú og Bjarni Benediktsson lagt ykkur fram við að viðhalda þjóðarmorðinu í Palestínu og nú Líbanon.

Uppeldi frá gamla einmenningar eins-skin-litar viðhorfum
Hin meiriháttar orð Hrafnhildar Ming Þórunnardóttur ættu að vera það sem þau sem ala upp börn í dag noti sem fyrirmynd. Hún er svo heppin að hafa fengið rétta móður með rétt uppbyggjandi viðhorf.

Af ofurhetjum og störfum þeirra
Í dag er alþjóðlegur dagur kennara og við það tilefni er mikilvægt að kennarar taki höndum saman og veki athygli á því góða og öfluga starfi sem þeir inna af hendi daglega í skólum landsins.

Eignafólk græðir mikið á vaxtastefnu Seðlabankans
Allir vita að bankarnir hafa grætt mikið á þeim úrræðum sem Seðlabankinn hefur beitt gegn verðbólgunni. Hávaxtastefnan hefur verið megininntak þessara aðgerða Seðlabankans. Bankarnir hafa skilað methagnaði síðustu ár og það skilar sér síðan til stjórnenda bankanna í auknum bónusum og miklum ávinningi af kaupréttarsamningum.

Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum
Þörf einstaklingsins til að tilheyra er mikil; tilheyra fjölskyldu, tilheyra vinahópi, tilheyra skólanum sínum, tilheyra íþróttafélagi - tilheyra samfélagi, öðlast um leið tilgang og mynda félagsleg tengsl.

Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál?
Það tók íslenska háskóla aðeins sex daga að sammælast um að lýsa yfir stuðningi við Úkraínu opinberlega, og aðeins tvær vikur fyrir Háskóla Íslands að setja upp sérstaka síðu þar sem árás Rússlands var fordæmd og „samstöðu með nemendum og starfsfólki úkraínskra háskóla sem og öllum íbúum landsins“ lýst yfir.

Framtíðarkvíði er ekki gott veganesti
Fátt fer meira í taugarnar á mér en sú heimsendaspá sem borin er á borð af aðilum sem oft á tíðum er sama fólkið er kennir öðrum um óttastjórnmál. Þessir málsvarar sannleikans flytja síðan innblásnar ræður um áhyggjur sínar af kvíða og þunglyndi unga fólksins okkar.

Spilling á Íslandi: Erum við að missa tökin?
Það er kominn tími til að við spyrjum okkur: Er íslenskt samfélag að þjóna hagsmunum fólksins í landinu, eða er kerfið orðið gegnsýrt af hagsmunum fjármála- og stjórnmálaafla? Fjármálakerfið, stjórnmálin og orkumálin virðast allt of oft vinna gegn okkur – almenningi – og við verðum að vakna til vitundar

Orkan á Vestfjörðum
Síðustu ár hafa verið góð fyrir vestfirskt samfélag en uppbygging í tengslum við fiskeldi, vöxtur Kerecis og fjölgun ferðamanna hafa stóraukið verðmætasköpun í fjórðungnum. Gera má ráð fyrir áframhaldandi vexti og fjárfestingu hjá Kerecis, Kalkþörungafélaginu, fiskeldinu og í sjávarútvegi.

Smábátar eru þjóðhagslega hagkvæmari en togarar
Í gær birti Hagstofa Íslands frétt þar sem fram kemur að strandveiðiflotinn sló enn eitt metið í aflaverðmætum og skilaði rúmlega 5 milljörðum inn í hagkerfið.

Foreldrar eru sérfræðingar í sínum börnum
Góð samvinna heimilis og skóla er einn af hornsteinum farsællar skólagöngu barna. Skólinn gerir ekkert einn og sér, foreldrar gera ekkert einir og sér og barnið gerir ekkert eitt og sér. Hér þarf góða og virka samvinnu.

Vísindin vakna til nýsköpunar!
Alger umskipti hafa orðið á nokkrum árum á viðhorfi vísinda- og háskólasamfélagsins til nýsköpunar. Afrakstur rannsókna á nú greiðari leið til áhrifa í samfélaginu og eflir samkeppnishæfni þjóðarinnar.

Risastórt lýðheilsumál sem Alþingi hunsar
Góðvild Styktarsjóður hefur undanfarin misseri bent ráðuneytum á það að það sé óeðlilegt að vörur sem eru nauðsynleg hjálpartæki líkt og gleraugu, göngugrindur, hjólastólar, heyrnartæki og aðrar læknavörur séu í hæsta virðisaukaskattsflokki eða 24% en í öðrum Evrópulöndum er vsk prósentan mun lægri eða frá 9% niður í 0%.

Þess vegna býð ég mig fram
Umhverfis- og náttúruvernd. Kvenfrelsi. Félagslegt réttlæti. Friðarhyggja. Þetta eru grunnstoðirnar sem Vinstri græn byggja pólitík sína og stefnumál á. Þessum áherslum vil ég áfram vinna brautargengi í íslensku samfélagi. Ég hef verið varaformaður VG frá 2019, fyrir utan síðustu mánuði, svo ég þekki starfið vel.

Sleppum brúnni og förum betri leið framhjá Selfossi
Nýrri brú yfir Ölfusá, norðan við Selfoss, er ætlað að létta af umferð gegnum bæinn. En það er til önnur leið yfir Ölfusá til að komast framhjá. Hún liggur um Þrengslin og Eyrarbakkaveg.

Einstakur atburður og viðbúnaður
Enn einn „einstakur“ atburður átti sér stað og viðbúnað skorti. Málið er að ekkert er ófyrirséð annað en tímasetning atburðarins. Hver verður næsti einstaki, óvænti atburðurinn sem setur allt á hliðina? Hefur verið lagt í vinnu við að greina mögulega atburði og koma í veg fyrir að þeir valdi tjóni fyrir íbúa viðkomandi svæða? Fyrir utan, að þetta var ekki einstakur atburður. Það er bara svo langt síðan þetta gerðist síðast. Þá er ég ekki að tala um rafmagnsleysið, heldur höggið á kerfið

Framboð er eina leiðin
Það er valtað yfir öryrkja og eldri borgara á hverjum degi. Kosningaloforðin eru samstundis svikin. Hvar eru forystumenn Samtaka eldri borgara og ÖBÍ? Uppteknir af því að slétta úr gömlu Framsóknarskírteinunum sínum eða pressa gömlu stuttbuxurnar sínar frá því að þeir voru í Heimdalli?

Háskóli Íslands er ekki að sinna skyldum sínum
Á Íslandi er fólki kennt frá blautu barnsbeini að menntun sé mikilvægasta verkfærið fyrir bjarta og árangursríka framtíð. Það er skólaskylda upp að 10. bekk og þaðan eru okkur allir menntavegir færir.

Verðmætasköpun og kennarar
Birtast verðmæti úr tómarúmi? Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að flestir geta verið sammála um að svo er ekki. Aftur á móti virðist umræðan varðandi verðmæti litast af því að þegar verðmæti verða til þá komi það eins og þruma úr heiðskýru lofti, skapað af öflugum einstakling.

Nýjar lausnir gegn ofbeldi
Til að vinna gegn ofbeldi þarf að trúa þeim sem verður fyrir ofbeldi og það þarf að hafa afleiðingar fyrir þá sem beita því. Að auki þarf öflugt forvarnarstarf. Svo einfalt er það og þó kannski ekki nógu einfalt.

Lögin um það sem er bannað
Ólíkt því sem margir kunna að halda endurspeglast pólitísk sýn og stefna stjórnmálaflokka alla jafna ekki í frumvörpum ráðherra ríkisstjórnar, þ.e. í svokölluðum stjórnarmálum. Margvíslegar málamiðlanir geta skotið þar upp kollinum, sér í lagi í samstarfi við stjórnlynda flokka, svo dæmi sé tekið.

Að dansa í regninu
„Lífið snýst ekki um að bíða eftir að storminn lægi, það snýst um að læra að dansa í regninu.“