Skilvirkni og gagnsæi í málefnum flóttafólks Eva Rún Helgadóttir skrifar 19. apríl 2026 15:30 Sveitarfélög vítt og breitt um landið hafa undirritað samninga um svokallaða samræmda móttöku flóttafólks. Samningarnir eru gerðir við félags- og húsnæðismálaráðuneytið, ásamt Vinnumálastofnun. Sveitarfélög ákveða sjálf hversu mörgum flóttamönnum þau taka á móti samkvæmt samningnum. Miðflokkurinn í Hafnarfirði sendi gagnabeiðni á Vinnumálastofnun og óskaði eftir gögnum um fjölda einstaklinga sem Vinnumálastofnun hefur vísað til bæjarins í samræmda móttöku. Stofnunin staðfesti að samtals hafa 1.252 eintaklingar verið paraðir við Hafnarfjörð á tímabilinu 2020-2025. Samkvæmt samningi Vinnumálastofnunar við Hafnarfjarðarbæ er gert ráð fyrir að fjárframlög taki mið af þeim kostnaði sem sveitarfélagið kann að bera vegna sérstakra stuðningsþarfa flóttafólks. Í samningnum er jafnframt gengið út frá því að allir sem falla undir samræmda móttöku þurfi aukna félagslega aðstoð, það er þjónusta umfram það sem kveðið er á um í lögum um félagsþjónustu. Þ.e.a.s. að flóttafólk fá aukna félagslega aðstoð en sem kveðið er á um í lögum um félagsþjónustu. Árið 2016 sendi Hafnarfjarðarbær erindi til allsherjar- og menntamálanefndar þar sem bent var á að samkvæmt lögum og viðmiðunarreglum væri einungis hluti kostnaðar endurgreiddur til sveitarfélaga.[1] Sérstaklega var tekið fram að starfsmannakostnaður vegna þessa málaflokks væri ekki endurgreiddur, þrátt fyrir að oft væri um að ræða umfangsmikla vinnu margra fagaðila. Bæjarfélagið lagði því áherslu á að bæta þyrfti úr þessu. Sú umfangsmikla vinna sem fer í að sinna þessum málafokki endurspeglast í stöðugildum hjá Hafnarfjarðarbæ, en árið 2024 taldi þetta 16 starfsmenn. Í sama erindi til allsherjar- og menntamálanefndar árið 2016 ítrekaði bæjarfélagið einnig nauðsyn þess að skýra og festa þyrfti ferla varðandi upplýsingaflæði milli Útlendingastofnunar, lögreglu og sveitarfélaga í tengslum við flóttafólk sem njóta þjónustu sveitarfélagsins. Sú vinna hefur þó ekki skilað tilætluðum árangri. Í skýrslu starfshóps sem unnin var fyrir dómsmálaráðuneytið og birt í lok árs 2025, gerir starfshópurinn tillögur til að auka heimildir til upplýsingamiðlunar fyrir stofnanir, ásamt að auka upplýsingaskyldu til Útlendingastofnunar.[2] Nánar tiltekið að tryggja þurfi að upplýsingum frá t.d. lögreglu og þjóðskrá sé miðlað reglulega og kerfisbundið til Útlendingastofnunar. Í dag eru þessar heimildir stofnana á Íslandi oft ófullnægjandi og engin skýr skylda varðandi upplýsingar til Útlendingastofnunar sem gerir það að verkum að stofnunin getur ekki vaktað nægilega hvort skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis séu enn fyrir hendi og/eða hvort grunur sé um hagnýtingu einstaklinga. Miðflokkurinn í Hafnarfirði vill einnig benda á að inn á upplýsingavef verndarmála er tekið fram að forræði þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttamenn hafi breyst og erfitt er því um vik í bili að sýna áreiðanlegar kostnaðartölur fyrir verndarkerfið og því eru engar upplýsingar gefnar upp.[3] Skjáskot af upplýsingavef verndarmála Miðflokkurinn í Hafnarfirði mun leggja áherslu á að skilvirkni og gagnsæi þegar kemur að þessum málaflokki. Höfundur skipar 4. sæti á framboðslista Miðflokksins í Hafnarfirði. [1]Alþingi, Svar félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn um nefndir, starfshópa og verkefnisstjórnir þskj 1513, 145. löggjafarþing (2015–2016) https://www.althingi.is/altext/erindi/145/145-1513.pdf [2]Stjórnarráð Íslands, Skýrsla starfshóps um dvalarleyfi (Dómsmálaráðuneytið) https://www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/DMR/Fylgiskjol-i-frett/Sk%C3%BDrsla%20starfsh%C3%B3ps%20um%20dvalarleyfi [3] Stjórnarráð Íslands, ‘Alþjóðleg vernd á Íslandi – Kostnaður við verndarkerfið’ https://www.stjornarradid.is/verkefni/utlendingar/upplysingavefur-verndarmala#kostnadur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar