Tíska og hönnun

Svala Björgvins bloggar um tísku
Söngkonan Svala Björgvinsdóttir hóf nýverið að blogga og heldur nú úti stórskemmtilegu tískubloggi þar sem hún fjallar um tísku, kvikmyndir, tónlist og annað tískutengt efni.

Magga Maack á kápunni í tveimur heimsálfum
„Myndir eftir mig hafa áður birst í erlendum bókum og tímaritum og ég geri ráð fyrir því að bókaútgáfan hafi fundið mig annað hvort í gegnum það eða heimasíðuna mína," segir grafíski hönnuðurinn Ólöf Erla Einarsdóttir, sem mun hanna kápur þriggja bóka í bókaflokknum Creature Court.

E-Label í TopShop á Íslandi
Hönnunarmerkið E-Label verður fáanlegt í verslunum TopShop í Kringlunni og Smáralind frá og með deginum í dag. Í tilefni þess verður efnt til veislu í versluninni TopShop í Kringlunni klukkan 18.00 í kvöld og verður ný sumarlína E-Label frumsýnd við sama tækifæri.

Þórunn bjó til nýtt samgöngukerfi
Vöruhönnuðurinn Þórunn Árnadóttir hefur hannað nokkuð sérstakan hanska sem nefnist Hitchhike, eða Puttalingurinn. Hanskinn þjónar sem nokkurs konar samskiptatæki milli bílstjóra og ferðalangs og hefur ítalska hönnunartímaritið Abitare meðal annars fjallað um hanskann.

Fjórir hönnuðir fengu fjórar milljónir Auroru
Vorúthlutun Hönnunarsjóðs Auroru og sú fjórða frá því sjóðurinn var stofnaður fór fram í gær.

Oprah bjargaði Lady Gaga í kjólaveislu ársins
Svakaleg dramatík varð í árlegri fjármögnunarveislu Metropolitan-safnsins um helgina þegar söngkonan Lady Gaga læsti sig inni í búningsherbergi og neitaði að koma út.

Hús og híbýli fær nýjan ritstjóra
Sigríður Elín Ásmundsdóttir hefur verið ráðinn ritstjóri rótgróna tímaritsins Húsa og híbýla. Sigríður hefur verið blaðamaður og aðstoðarritstjóri á blaðinu í nokkur ár.

Saumaði 40 kjóla á fjórum dögum
Ása Ninna Pétursdóttir Ása Ninna lenti í hremmingum þegar efni sem sauma átti 40 kjóla úr tafðist á leiðinni til landsins.

PopUp ferðast til Akureyrar
„Fólk úti á landi var farið að sækjast eftir því að fá markaðinn í sitt bæjarfélag og við ákváðum að slá til. Fyrsti markaðurinn verður haldinn á Akureyri núna um helgina og svo höfum við einnig ákveðið að taka þátt í

Þrívíddarpúsl fékk hönnunarverðlaun
Á baráttudag verkalýðsins voru veitt verðlaun í hönnunarsamkeppni í anda myndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar, sem verslunin Kraum, Listasafn Reykjavíkur og Hönnunarmiðstöð Íslands standa að.

Beyoncé ræður Victoriu Beckham í vinnu
Söngkonan Beyoncé hafði samband við Victoriu Beckham og bað hana um að teikna föt og búninga fyrir næstu tónleikaferð sína.

Linda Björg hannar heimafatnað
Hönnuðurinn Linda Björg Árnadóttir hefur gert fatalínu sem hún lýsir frekar sem heimafatnaði heldur en tísku. Linda hefur um tíma hannað undir heitinu Scintilla og samanstendur nýja fatalínan meðal annars af hlýrabolum, kjólum, leggings og háum sokkum úr hundrað prósent silki og fæst hún í tískuversluninni Kron Kron.

Eva Longoria bjó til eina ilmvatnið sem hún getur notað
Eva Longoria er með ofnæmi í allar áttir og hefur alltaf átt í vandræðum með að vera með ilmvatn. Hún bjó því til sitt eigið.

Baksviðs á tískusýningu LHÍ
Tískusýning útskriftarnemenda í fatahönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands var haldin í gamla Bykohúsinu við Hringbraut síðastliðinn föstudag.

Scarlett og Gwyneth í Armani-slag á frumsýningu | Myndir
Leikkonurnar Scarlett Johanson og Gwyneth Paltrow stálu senunni á frumsýningu Iron Man 2. Þær voru báðar í fötum frá Armani.

Ólafur Elíasson með sýningu ársins í Berlín
Safnamenn í Berlín segja nýja sýningu Ólafs Elíassonar af þvílíkum gæðaflokki að hún hljóti að vera valin sýning ársins.

Aðgangsmiði í fínar og frægar merkjaverslanir
Kron hefur hannað skó fyrir vetrarlínu tískuhússins Rue de Mail í París, en þar er Martine Sitbon yfirhönnuður. Fjöldi stórstjarna hafa klæðst flíkum frá Rue de Mail og má þar á meðal nefna leikkonurnar Cate Blanchet, Kirsten Dunst og Scarlett Johansson auk fyrirsætunnar Kate Moss og forsetafrú Frakklands, Cörlu Bruni.

Lady Gaga ferðast með þrjár júmbóþotur í eftirdragi
Söngkonan Lady Gaga er ein sú svakalegasta þegar kemur að búningum og fatnaði.

Flíkur innblásnar af gosinu
„Þetta er allt í vinnslu núna en vonandi verða flíkurnar komnar í verslanir eftir rúman mánuð. Þetta var upprunalega hugmynd hönnuðarins Hörpu Einarsdóttur, sem hefur verið að hanna fyrir okkur upp á síðkastið. Hún

Nýjasta nýtt í grafískri hönnun
Næstkomandi laugardag opnar árleg útskriftarsýning Listaháskóla Íslands í Hafnarhúsinu.

Glæsileg tískuhelgi að baki
Um helgina var haldin fyrsta raunverulega „tískuvikan“ í Reykjavík en hún átti sér stað á hátíðinni Reykjavík Fashion Festival sem var haldin í tengslum við Hönnunarmars. Á föstudags- og laugardagskvöld sýndu tuttugu og tveir íslenskir fatahönnuðir hönnun sína í gömlu kaffiverksmiðju Ó. Johnson & Kaaber við Sætún þar sem færri komust að en vildu. Sýningarnar þóttu heppnast mjög vel í þessari glæsilegu umgjörð og nokkur fjöldi erlendra blaðamanna og tískumógula voru á svæðinu til að fylgjast með nýjustu straumunum í hinum vaxandi íslenska tískuheimi. Ljósmyndari Fréttablaðsins mætti á RFF á föstudagskvöldið og myndaði þessa smekklegu gesti. - amb

Hönnunarmars í Hafnarhúsinu
Opnunarhátíð Hönnunarmars 2010 var haldin í Hafnarhúsinu á fimmtudag og var fjöldi góðra gesta viðstaddur. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin. Fjöldi áhugaverðra viðburða er í boði á hátíðinni og ættu allir þeir sem hafa áhuga á hönnun og arkitektúr að finna þar eitthvað við sitt hæfi. Hátíðinni lýkur á morgun.

Beðið eftir Björk
Fyrirsætur, rokkstjörnur og áhrifafólk á borð við Michelle Obama hafa lýst yfir mikilli sorg vegna fráfalls hönnuðarins Alexanders McQueen.

Kjóll Jóhönnu Guðrúnar vakti athygli á stóra sviðinu
Kjóllinn sem Jóhanna Guðrún mun klæðast í forkeppni Eurovision á þriðjudagskvöld vakti mikla athygli á æfingum í Moskvu í gær. Mikil leynd hefur hvílt yfir honum en það er fatahönnunartvíeykið Andersen & Lauth sem á heiðurinn að honum.

Kisan vekur athygli í New York
Tískuritið Women’s Wear Daily fjallaði um nýja verslun Kisunnar í SoHo í New York í síðustu viku. Ritið er eitt það allra virtasta í tískubransanum og lesið af flestöllum sem í honum starfa. Í greininni er rætt við Þórunni Anspach og Olivier Bremond, eigendur Kisunnar bæði hér heima og í New York, og lýsir blaðamaður WWD Kisunni sem blöndu af „fágaðri Parísartísku og grófum skrautmunum og prjónavörum frá fæðingarlandi Anspach, Íslandi.“

Ekki sammála vali á verst klæddu konum landsins
Haffi Haff förðunarfræðingur, stílisti og sönvari er alls ekki sammála vali sem fram fór á verst og best klæddu konum landins í Fréttablaðinu í dag.

Dönsk hönnun og stíliseruð íþróttaföt
Danska tískumerkið Wood Wood sýndi sumarlínu sína fyrir árið 2008 á tískuvikunni í Kaupmannahöfn ásamt íþróttamerkinu Adidas sem einnig kynnti nýjustu línu sína. Hönnuðir Wood Wood hafa áður unnið með Adidas og hönnuðu eitt sinn strigaskó undir merkinu.

Þjóðlegir skór eftir íslenska hönnuði
Fyrir helgi kom ný sending af hinum svokölluðu Cruser-skóm í verslanir Skór.is og skóbúðina Far á Laugavegi. Mynstrin á þeim hafa vakið mikla athygli enda eru þau mörg hver afar þjóðleg og búin til af íslenskum hönnuðum.

Ungur og hæfileikaríkur hönnuður
Það eru ekki allir fimmtán ára krakkar sem geta státað af því að hafa haldið heila tískusýningu en það mun Særós Mist Hrannarsdóttir gera í dag. Sýningin fer fram í Hinu húsinu og opnar húsið klukkan tvö.

Versaces minnst í Mílanó
Fatahönnuðarins fræga, Gianni Versaces, var minnst í Mílanó á sunnudag, en þá voru liðin tíu ár frá því að Versace var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Miami. Vinir og aðdáendur Giannis flykktust í óperuhúsið La Scala til að horfa á ballett til heiðurs hönnuðinum.