Tónlist

Nemur við virtan tónlistarháskóla
Úlfur Hansson mun hefja meistaranám við hinn virta skóla Mills College í ágúst. Hann fær afslátt af skólagjöldunum gegn því að kenna yngri nemendum.

Jethro Tull kemur í sumar
Breska sveitin Jethro Tull er væntanleg til Íslands í byrjun júní og efnir til þrennra tónleika í heimsókn sinni, þar sem sveitin flytur öll sín þekktustu lög. Tónleikarnir verða í Hofi á Akureyri föstudaginn 7. júní, í Höllinni í Vestmannaeyjum laugardaginn 8. júní og í Eldborgarsal Hörpu í Reykjavík sunnudaginn 9. júní. Íslenskir tónlistarmenn koma jafnframt við sögu á tónleikum Tull í sumar. Jethro Tull kom líka til landsins í fyrra og hélt tvenna tónleika í Eldborgarsal Hörpu í júní.

Fyrsta myndband Sísý Ey loksins frumsýnt
Vísir frumsýnir hér myndbandið við smellinn Ain´t Got Nobody með hljómsveitinni Sísý Ey, sem hefur verið að gera allt vitlaust síðustu vikurnar.

Semja enska texta og safna fyrir nýrri plötu
Hljómsveitin Mammút sér loksins fyrir endann á erfiðu upptökuferli.

Fufanu á Hróarskeldu
Hljómsveitin Captain Fufanu, sem er skipuð Hrafnkatli Flóka Kaktusi Einarssyni og Guðlaugi Halldóri Einarssyni, kemur fram á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku í sumar.

Ný hljómplata í september
Næsta plata bandarísku rokksveitarinnar Kings Of Leon er væntanleg í búðir í september.

Góðir dómar og Evróputúr
Sin Fang er á leið í þriggja vikna tónleikaferðalag um Evrópu um miðjan maí næstkomandi.

Reykjavík Music Mess í þriðja sinn
Tónlistarhátðin Reykjavík Music Mess fer fram í þriðja sinn um hvítasunnuhelgina, dagana 24. til 26. maí.

Við höfðum alltaf trú á okkur sko
Hljómsveitin Vök úr Hafnarfirði stóð uppi sem sigurvegari í Músíktilraunum en úrslitakvöldið fór fram í Silfurbergi í Hörpu laugardagskvöldið 23.mars. Hér er myndband sem sýnir stemninguna og nokkur viðtöl sem Davíð Luther tók meðal annars við Óla Palla og meðlimi Vök sem sögðu: "Við erum mjög hógvær að eðlisfari en við höfðum alltaf trú á okkur sko...".

Spila á tónlistarhátíðum í Genf og Vilnius
Feðgarnir í Stereo Hypnosis og tónskáldið Þorkell Atlason leggja land undir fót um páskana.


Milljón plötur vestanhafs
Fyrsta plata Justins Timberlake í sjö ár, The 20/20 Experience, fór beint í toppsætið í Bretlandi og velti þar með nýjustu plötu Davids Bowie úr sessi. Á sama tíma missti popparinn efsta sætið á smáskífulistanum því lagið hans Mirrors lenti neðar en What About Us með The Saturdays.

Tónleikaferð um heiminn
Bítillinn fyrrverandi Paul McCartney hefur tilkynnt um tónleikaferð um heiminn sem ber yfirskriftina Out There!. Fyrstu tónleikarnir verða í Varsjá í Póllandi 22. júní en þar hefur hann aldrei spilað áður.

Sónar-hátíðin haldin aftur að ári
„Við erum ánægðir með að hátíðin fari fram aftur,“ segir Björn Steinbekk, skipuleggjandi tónlistarhátíðarinnar Sónar Reykjavík.

Fáar stelpur í sigurhljómsveitum Músíktilrauna
Dúettinn Vök vann Músíktilraunir um helgina. Vök, sem spilar melódíska raftónlist, er skipuð söngkonunni og gítarleikaranum Margréti Rán Magnúsdóttur og saxófónleikaranum, tölvumanninum og bakraddasöngvaranum Andra Má Enokssyni.

Lærði jóðl á Youtube
Hrefna Björg Gylfadóttir sló í gegn með jóðli sínu í úrslitum Gettu betur.

Evróvisjón sungið sitt síðasta
"Orðið Evróvisjón hefur verið notað alllengi og það má eiginlega segja að það hafi verið tilraun sem ekki gekk upp,“ segir Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV.

Syngja bæði á hebresku og úkraínsku
Friðrik Ómar, Regína Ósk og Selma Björns eru í stífri framburðarkennslu fyrir tónleikaröð.

Partíþokan í síðasta sinn
Partíþokan hófst á Akureyri í október 2011, og teygði sig til Ísafjarðar, og þaðan til Seyðisfjarðar. Hún er komin hringinn og ætlar að leggja árar í bát.

Léttleikandi rokkarar með glænýja plötu
Hljómsveitin The Strokes gefur í næstu viku út sína fimmtu hljóðversplötu.

Gréta Karen vinsæl á YouTube
Hefur fengið um 65 þúsund áhorf á vefsíðunni Youtube á aðeins tveimur vikum.

Svala og Einar gera tónlistarmyndband
Svala Björgvins sem búsett er í Los Angeles var ráðin ásamt kærasta sínum, Einari, til Universal Music og AMVI Australia til að gera tónlistarmyndbandið fyrir áströlsku poppstjörnuna Havana Brown við lagið "Big Banana" sem er hennar nýjasta smáskífa. Svala segir þau ekki hafa sofið mikið þessa tvo daga sem myndbandið var tekið upp. "Einar leikstýrði myndbandinu á sinn snilldarhátt eins og hann er vanur að gera og klippti myndbandið líka. Ég og Einar skrifuðum handritið saman og sáum um art direction sameiginlega. Ég sá um allt styling fyrir Havana Brown og klæddi alla leikarana sem voru 10 talsins í myndbandinu," segir Svala. "Svo sá ég um allai förðun og hár og notaði mitt bjútí team sem er 8 manns sem sáu um alla förðun og hár á Havana Brown og leikurum. Einar var með 8 manna tökulið sem sá um að skjóta myndbandið og lýsa það og svo framvegis. Eddi, yngrii bróðir Einars og okkar hljómsveitarmeðlimur í Steed Lord lék flott hlutverk í myndbandinu sem ríkur sonur fólksins sem er að halda partíið í myndbandinu. "Þetta var meiriháttar gaman og mikið stress og læti en allir unnu svo vel saman. Þetta var algjörlega frábært í alla staði," segir Svala. Hér má sjá útkomuna:

Einbeita sér að hipphoppi og raftónlist
Útvarpsstöðin Flass færir út kvíarnar og opna tvær nýjar útvarpsstöðvar.

Unglingarnir fá líka að njóta stóru atriðanna
Bretarnir í Rudimental eru nýjasta viðbótin við sístækkandi dagskrá Keflavík Music Festival.

Dave Grohl elskar Gangnam Style
Söngvarinn síkáti hélt ræðu á SXSW-hátíðinni í dag.

Snúa aftur með stæl
Bloodsports, fyrsta plata Suede í 11 ár með nýju efni, kemur út á mánudaginn.

Vill gera Vevo að hinu nýja MTV
Tónlistarmyndbandavefsíðan Vevo í sjónvarpið.

Tónleikarnir hluti af háskólanáminu
Marsibil, Bergþóra og Jóhann Páll skipuleggja tónleika til styrktar Geðhjálp á Kexi hosteli annað kvöld.

Ekki týpískur blús frá Helga
Valdimar, Sigríður Thorlacius og KK syngja á fjórðu sólóplötu Helga Júlíusar.

Fyrrum trommari Iron Maiden látinn
Clive Burr lést á heimili sínu 56 ára gamall.