
Tónlist

Cheek Mountain Thief ferðast um Frakkland
Hljómplata sveitarinnar hefur fengið stórgóðar viðtökur í Frakklandi. Endaði á lista Les Inrock yfir bestu plötur ársins.

Sjáðu Carly Rose taka Little Talks
Söngkonan unga Carly Rose Sonenclar lenti í öðru sæti í X-Factor í Bandaríkjunum nú í desember.

Trommar með 20 mismunandi sveitum
Magnús Trygvason Eliassen er aðalmaðurinn í nýrri tónleikaröð á Kex Hostel.

Dagur Íslensku tónlistarverðlaunanna runninn upp
Villi naglbítur og Diddú kynnar. Afhent í 19. sinn í Silfurbergi í Hörpu í kvöld. Hér er listi yfir tilnefningarnar.

Ásgeir Trausti lofaður í Osló
Íslendingar létu til sín taka á tónlistarhátíðinni by:Larm í Noregi.

Kylie og múm senda frá sér lag
Poppsöngkonan Kylie Minogue sendi frá sér lag fyrr í dag sem hún gerði í samstarfi við íslensku hljómsveitina múm.

Tilbury tekur upp nýja plötu
Hljómsveitin Tilbury fór í hljóðver og tók upp fyrri helminginn af nýrri plötu.

„Þetta var alveg stórkostlegt“
Sónar tónlistarhátíðinni lauk með glæsibrag í Hörpu í gærkvöldi. Tæplega þrjú þúsund manns sóttu hátíðina en á meðal tónlistarmanna sem komu fram voru Mugison, Ásgeir Trausti, James Blake og Squarepusher.

Trentemöller og félagar slettu vel úr klaufunum á Kaffibarnum
Danski raftónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Trentemöller spilar á Sónar-hátíðinni annað kvöld, en hátíðin hefst í dag. Hann sletti vel úr klaufunum síðast þegar hann kom til Íslands og segist alltaf hlakka til að sækja landið heim.

Tinie Tempah skrifar í stjörnur á Íslandi
Enski rapparinn heimsfrægi kemur fram á Keflavík Music Festival 2013 í júní næstkomandi.

Þriggja daga djamm
Fyrsta plata Thoms Yorke og félaga í Atoms For Peace kemur út 25. febrúar.

Krakkarnir í Oyama leggja land undir fót
Hljómsveitin Oyama, sem gaf nýlega út EP-plötuna I Wanna, leggur nú land undir fót í fyrsta sinn. Tilefnið er bransahátíðin by:larm í Ósló sem og nokkrir tónleikar í London, þar á meðal á svokölluðu Club NME-kvöldi á hinum virta tónleikastað Koko. Fyrri tónleikarnir í Ósló voru í gær en þeir síðari verða í dag.

Einn af meisturunum
Það er margt gott á Sónar-hátíðinni sem hefst í Hörpu á morgun. Á meðal stærstu nafnanna eru Berlínarseitin Modeselektor, Lundúnabúinn James Blake, hinn danski Trentemöller, Japaninn Ryuichi Sakamoto, þýsk-mexíkóska dúóið Pechanga Boys og Íslendingarnir Mugison, Retro Stefson, Sóley og Valgeir Sigurðsson – og við erum rétt að byrja. Sá listamaður sem ég er samt spenntastur fyrir á Sónar er Squarepusher.

Poppstjarna í KR sendir frá sér nýtt lag
Knattspyrnukappinn Guðmundur Reynir Gunnarsson í KR hefur tekið upp nýtt lag. Lagið ber heitið I don't know.

Allir sungu með í Póllandi
Hljómsveitin Bloodgroup sendi frá sér sína þriðju plötu nú í vikunni, Tracing Echoes. Janus Rasmussen og Sunna Þórisdóttir söngvarar sveitarinnar segja Evróputúr á döfinni í apríl.

Hörpu verður breytt í stærsta klúbb Íslands
Nú stendur til að breyta Hörpunni í stærsta klúbb landsins og jafnvel í Evrópu. Sónar hátíðin er handan við hornið 15.-16.febrúar. Mikið er lagt upp úr sjónrænum og hljóðrænum hughrifum á hátíðinni. Allir helstu tónlistarmenn heimsins keppast um að koma fram á hátíðinni. Það þykir mikil viðurkenning fyrir tónlistarmenn að koma fram á Sónar en hátíðin hefur verið haldin við góðan orðstír í Barcelona, Sao Paolo, Tokyo og nú loksins í Reykjavík. Vinsældir danshljómsveitarinnar Sísý Ey hafa farið ört vaxandi og bráðlega er von á plötu með hljómsveitinni. Sísý Ey skipa þrjár systur sem eru dætur Ellenar Kristjáns þannig að þær eiga ekki langt að sækja tónlistarhæfileikana. Sísý Ey koma fram á Sónar Reykjavík. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá Frosta Logason viðtal við hljómsveitina.

Gefa sjálfir út plötuna erlendis
Hljómsveitin Retro Stefson hefur stofnað útgáfufélagið Les Frères Stefson.

Spila með Vampire Weekend
Of Monsters and Men, sem nýlega spilaði í Ástralíu, hefur tilkynnt um tvenna áhugaverða tónleika í apríl og maí.

Óskilgreind fegurð
Nick Cave & the Bad Seeds sendir frá sér sína fimmtándu hljóðversplötu, Push the Sky Away, í næstu viku. Hljómsveitin fagnar 30 ára afmæli sínu á þessu ári.

Morrissey aflýsir tónleikum
Tónlistarmaðurinn Morrissey hefur aflýst tveimur tónleikum sínum vegna veikinda. Morrissey átti að koma fram á tónleikum í Las Vegas hinn 9. febrúar og í Phoenix kvöldið eftir.

Vonast til að koma fólki á óvart enda laus við allar væntingar
Birgir Örn Steinarsson spilar á sínum fyrstu sólótónleikum í rúm sex ár á Gamla Gauknum í kvöld ásamt nýrri hljómsveit.

Einn af þeim villtari
Við tónlistarfíklar þurfum alltaf að vera að hlusta á eitthvað nýtt. Aðgengi að nýrri tónlist hefur aldrei verið betra. Það er t.d. hægt að streyma sig í hel (afsakið orðbragðið) á tónlistarsíðum eins og gogoyoko og Tónlist.is og eins er hægt að hala niður út í hið óendanlega.

Uppselt á Sónar Reykjavík
Tilkynnt í morgun. Notast verður við fjögur svið í Hörpu og verður spilað á þeim samtímis. Hluta af bílastæðinu í kjallara Hörpunnar breytt í næturklúbb

Örlygur Smári og Pétur svara fyrir sig
Mikið hefur verið rætt um líkindi lags okkar, Ég á líf, og lagsins "I am cow" síðustu daga. Við höfum ekki farið varhluta af þeirri umræðu. Í upphafi hlógum við bara að þessari samlíkingu en nú þykir okkur komið mál að linni. Alla vega þeirri umræðu að verið sé að væna okkur um lagastuld. Það að láta þjófkenna sig saklausan er ekkert gamanmál og nístir á endanum að innstu hjartarótum.

Mikilvægt að lifa í raunveruleikanum
Bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant gefur út nýja plötu í mars. Hann flutti til Íslands fyrir rúmu ári síðan eftir að hafa nýlega greinst með HIV-veiruna.

Nýr 300 manna tónleikastaður við Tryggvagötu
Sömu aðilar standa að baki Volta og staðarins Harlem. Mikið lagt upp úr útlitinu, hljómburðinum og allri aðstöðu fyrir tónleika- og viðburðahald.

Samstaða og gleði í Græna herberginu
Lagið Ég á líf í flutningi Eyþórs Inga Gunnlaugssonar sigraði Söngvakeppnina 2013 síðasta laugardag. Það keppir því fyrir Íslands hönd í Eurovision sem fram fer í Malmö í maí. Tinna Rós Steinsdóttir varði kvöldinu í Græna herberginu.

Eurovision-stjörnur framleiddar á Dalvík
Frá því Ísland tók fyrst þátt í Eurovision árið 1986 hafa 32 flytjendur farið utan fyrir okkar hönd. Eyþór Ingi er fimmti Dalvíkingurinn til að standa í þeim sporum,

Þorri íslenskra rokkara á svið
„Við getum kallað þetta skemmtilegt rokk en við tökum fyrir lögin sem hafa verið að kalla fram gæsahúð hjá fólki svo áratugum skiptir,“ segir Bjarni Ólafur Guðmundsson, sem, ásamt Birgi Nielsen, stendur fyrir Skonrokktónleikum nú í mars.

Meg White í uppáhaldi
Rokkarinn Dave Grohl hefur lofað trommuleik Meg White með rokkdúettnum sáluga The White Stripes í hástert.