Tónlist

Nýtt myndband frumsýnt: „Skilgreining á hinsegin stafrófinu“
Hljómsveitin Eva var að gefa út nýtt myndband við lagið The Queer Song.

Heldur upp á endurnýjunina
Baldvin Snær Hlynsson gaf í maí út plötuna Renewal, djassplötu þar sem hann semur öll lögin og spilar á píanó. Í kvöld heldur hann upp á útgáfuna með tónleikum í Norræna húsinu.

Tónlistarhátíðinni við Skógafoss aflýst
Ákveðið hefur verið að aflýsa tónlistarhátíðinni Night+Day sem fyrirhuguð var við Skógafoss í júlí. Ástæðan er viðkvæmt ástand svæðisins við fossinn, að sögn skipuleggjenda. Umhverfisstofnun setti svæðið á rauðan lista á dögunum.

Harpa ekki lengur miðpunktur Iceland Airwaves og færri miðar í boði
Tónlistarhúsið Harpa í Reykjavík verður ekki miðpunktur Iceland Airwaves eins og verið hefur undanfarin ár heldur munu nýir tónleikastaðir koma inn með breyttu fyrirkomulagi hátíðarinnar.

Getur spilað ellefu mismunandi útgáfur af laginu Africa með Toto
Lagið Africa með sveitinni Toto kom út árið 1982 og sló rækilega í gegn og hefur það í raun notið vinsælda síðan þá.

Daði Freyr og Karitas senda frá sér sumarsmell
Þessi tvö hafa slegið í gegn á undanförnum mánuðum.

Föstudagsplaylistinn: Lord Pusswhip
"Þetta er playlisti með tónlist úr ýmsum áttum sem ég myndi persónulega dilla mér við á föstudagskvöldi, ef þið mynduð gera það líka fáið þið kúlstig!" segir Lord Pusswhip, en það er listamannsnafn Þórðs Inga Jónssonar, rappara og pródúsers sem er maðurinn bakvið föstudagsplaylistann að þessu sinni.

Neðanjarðarsenan tekin fyrir í tónleikaröð
Stage Dive Fest verður haldin í fimmta sinn nú í kvöld á skemmtistaðnum Húrra. Fram koma ungir og efnilegir tónlistarmenn.

Ragga Gísla flutti glænýtt Þjóðhátíðarlag
Tónlistarkonan Ragnhildur Gísladóttir semur og flytur Sjáumst þar, Þjóðhátíðarlagið í ár, en hún er jafnframt fyrsta konan sem fengin er til að semja Þjóðhátíðarlag.

Föstudagsplaylisti Flona
Rapparinn Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Floni, setti meðflylgjandi lagagista saman sem ætti að koma lesendum í föstudagsfílíng. "Þetta er léttur listi með þeim lögum sem hafa verið að hafa áhrif á mig undanfarið.“

Aflýsa tónleikum vegna veikinda Jökuls
Hljómsveitin Kaleo hefur aflýst átta tónleikum sem fara áttu fram í sumar víðs vegar um heiminn vegna veikinda Jökuls Júlíussonar, söngvara sveitarinnar.

Leiðarvísir um Secret Solstice
Það úir allt og grúir af alls kyns nöfnum á Secret Solstice hátíðinni sem hefst í dag og það getur verið erfitt að ákveða hvað skal sjá. Lífið kemur því hér til bjargar og setur upp smá leiðarvísi.

Yoko Ono gerð að meðhöfundi lagsins Imagine
Yoko Ono verður gerð að meðhöfundi lagsins Imagine en lagið er eitt vinsælasta lag eiginmanns hennar, Johns Lennon heitins. Tilkynning um ákvörðunina var send út í New York í Bandaríkjunum í gær.

Hefðu líklega aldrei getað rambað á fullkomnara samstarf
Upptökustjórinn og tónlistarmaðurinn Printz Board, sem unnið hefur með The Black Eyed Peas, John Legend, Fergie og fleirum, verður Stuðmönnum til halds og trausts í atriði þeirra á Secret Solstice-hátíðinni í dag. Þar verður áhorfendum gefin innsýn í nýjan tónlistarheim sem Printz og Stuðmenn hafa unnið með undanfarið undir yfirskriftinni Polar Beat.

Jamie xx í beinni frá Reykjavík
Jamie xx er að spila fyrir mannskara í Reykjavík.

Brot af Brooklyn í Laugardalnum
Rapparinn Young M.A. er um margt merkilegur karakter. Hún hefur bæði þurft að eiga við það að vera kona og samkynhneigð í karllægum og hörðum rappbransanum en tekur mótlætinu með mikilli ró. Hún ætlar að gefa okkur smá brot af Brooklyn á sunnudaginn.

Skipuleggjandi Secret Solstice: "Gæsla á ekki að vera ógnandi fyrir gesti“
Skipuleggjendur hátíðarinnar viilja þó ekki staðfesta hvort öryggisgæsla verði aukin.

Taylor Swift komin aftur á Spotify
Tónlistarkonan Taylor Swift hefur snúið aftur á allar tónlistarveitur, þar á meðal Spotify, eftir tæplega þriggja ára fjarveru. Athygli vekur að þetta útspil söngkonunnar samtvinnast útgáfu nýjustu breiðskífu Katy Perry, sem kemur út í dag, en þær hafa lengi eldað grátt silfur saman.

Taka útgáfunni með stóískri ró
Hljómsveitin Moses Hightower sendir frá sér Fjallaloft, sína þriðju plötu í dag. Þeir Moses Hightower menn eru ekkert stressaðir yfir útgáfunni enda kannski ekki að undra frá mönnum sem hafa spilað um allan heim.

Oyama hitar upp fyrir Dinosaur Jr.
Íslenska hjómsveitin Oyama hefur verið valin af liðsmönnum Dinosaur Jr. til að hita upp fyrir sig í Silfurbergi, Hörpu laugardaginn 22. júlí en þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu Live.

Halleluwah með lag í nýrri Samsung-auglýsingu
Lagið Dior með hljómsveitinni Halleluwah heyrist í nýrri herferð Samsung í Kanda fyrir Galaxy S8 og S8+.


Árni frumsýnir nýtt myndband: „Hver og einn verður að túlka fyrir sig“
Söng -og gítarleikarinn Árni Svavar Johnsen frumsýnir í dag nýtt myndband við lagið One More Night.

Frikki Dór frumsýnir nýtt myndband
Söngvarinn Friðrik Dór Jónsson, betur þekktur sem Frikki Dór, frumsýnir í dag nýtt myndband á Vísis og er það við lagið Hringd'í mig.

Ekki spennt fyrir miðnætursólinni
Söngkonan Chaka Khan hefur átt viðburðaríkan feril. Nú kemur hún loksins til Íslands þar sem hún mun spila á Secret Solstice hátíðinni. Chaka Khan leggur mikið upp úr því að sofa í myrkri og hún þekkir, og elskar, Björk – sem hún vissi ekki að væri íslensk.

Getur varla beðið eftir að vínylplatan detti í hús
Bubbi Morthens á afmæli í dag og fagnar deginum með plötuútgáfu en Túngumál, nýjasta plata hans, fæst nú í hillum verslana.

Radiohead kom aðdáendum á óvart með nýju myndbandi við gamalt lag
Breska hljómsveitin Radiohead kom aðdáendum sínum á óvart í dag með því að gefa út myndband fyrir hið 21 árs gamla lag I Promise.

Joey Christ, Aron Can, Herra Hnetusmjör og Birnir: Tóku upp myndbandið í Costco
Joey Cypher nefnist fyrsta lagið af mixteipi Joey Christ, eða Jóhanns Kristófers Stefánssonar. Myndbandið við lagið var tekið upp í Costco þar sem þeir Jóhann, Birnir, Herra Hnetusmjör og Aron Can leika á alls oddi - en máttu þó ekki veipa inni.

Föstudagsplaylistinn: Kött Grá Pje
Kött Grá Pje er með ýmislegt í gangi um þessar mundir en hann var að enda við að gefa út lag Dags rauða nefsins sem hann gerði með söngkonunni Karó og fleirum og í kvöld spilar hann ásamt Hatara á skemmtistaðnum Húrra.

Kim Jong Un í aðalhlutverki í nýju myndbandi XXX Rottweiler
Rappsveitin XXX Rotweiler frumsýnir í dag nýtt lag og myndband á Vísi en lagið ber nafnið Kim Jong-Un.