Veður

Gular viðvaranir og slæmt ferðaveður á Vestur- og Norðurlandi
Gular viðvaranir eru í gildi á nær öllu vestan- og norðanverðu landinu. Þær renna út á Breiðafirði og Vestfjörðum á hádegi en ekki fyrr en á morgun á Norðvestur- og Norðurlandi. Slæm færð er á vegum um land allt og víða vegir lokaðir eða á óvissustigi.

Stormur á Vestfjörðum en hægari vindur annars staðar
Núna í morgunsárið er 958 millibara lægð yfir Suðurlandi og það er því breytilegt hvaðan vindur blæs í dag. Við suðurströndina verður suðvestan 13 til 18 metrar á sekúndu og rigning en á Vestfjörðum verður norðaustan stormur og snjókoma.

Stormur á Vestfjörðum í kvöld og í fyrramálið
Gul veðurviðvörun tekur gildi seint í dag á Vestfjörðum. Búist er við norðaustan 13-20 metrum á sekúndu og snjókomu og skafrenningi með slæmu skyggni. „Versnandi færð og varasamt ferðaveður,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Lægð nálgast úr suðvestri og von á stórhríð norðvestantil
Lægð nálgast nú landið úr suðvestri og má reikna með hægt vaxandi austan- og suðaustanátt. Það mun svo hlýna sunnanlands með rigningu eða slyddu.

Veður skánar á Vestfjörðum en él sunnan- og vestanlands
Hægfara lægð er nú stödd skammt vestur af landinu og benda nýjustu spár til þess að veðrið á Vestfjörðum verði mun skárra í dag en verið hefur. Þó er stutt í hvassa norðaustanátt úti á miðunum og þar lítið að breytast til að hún nái aftur inn á land.

Spáð miklu hvassviðri og appelsínugul viðvörun fyrir vestan
Spáð er austlægri átt, fimm til þrettán metrum á sekúndu, sunnan- og austanlands og verður nokkuð vætusamt á þessum slóðum og þungbúið. Norðvestantil er hins vegar spáð norðaustan 15 til 23 metrum á sekúndu og snjókomu.

Appelsínugul viðvörun á vegna norðaustan hríðar
Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun vegna norðaustan hríðar sem hefur skollið á norðvesturhluta landsins. Gular viðvaranir hafa sömuleiðis verið gefnar út við Faxaflóa, Breiðafjörð og Ströndum og Norðurlandi vestra.

Slydda og snjókoma á vestanverðu landinu
Skammt suðvestur af Reykjanesi er nú þúsund millibara lægð sem mjakast norður og fylgir henni slydda eða snjókoma á vestanverðu landinu. Má reikna með vindi átta til fimmtán metrum á sekúndu.

Norðlæg átt og víðast dálítil él
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag, víða fimm til þrettán metrum á sekúndu, og dálitlum éljum í flestum landshlutum.

Hvassast suðaustantil og kólnandi veður
Lægð suðaustur af landinu og hæð yfir Grænlandi stýra veðrinu í dag og má gera ráð fyrir norðaustlægri átt, yfirleitt kalda, en allhvössu á Vestfjörðum og Suðausturlandi.

Lægðardrag færist vestur yfir landið
Lægðardrag færist nú vestur yfir landið með dálítilli snjókomu eða slyddu og síðar rigningu.

Áfram bjart suðvestantil á landinu
Skammt suðaustur af Hvarfi er nú lægð sem þokast austur á bóginn. Gera má ráð fyrir að vindur verði aðeins norðlægari en í gær og áfram bjart veður suðvestantil á landinu. Þó má reikna með dálitlum éljum norðaustanlands.

Dregur úr vindi þegar líður á morguninn
Alldjúp og kröpp lægð fór til vesturs skammt suður af Reykjanesi í nótt og olli hvassri austan- og suðaustanátt með talsverðri rigningu á þeim slóðum.

Væta og hlýindi framan af degi en hvessir síðdegis
Allmikil lægð á vestanverðu Grænlandshafi veldur því að austan- og suðaustanáttir leika um landið og fylgir þeim lítilsháttar væta og hlýindi. Lengst af verður þó þurrviðri fyrir norðan.

Mild suðaustanátt en hvasst suðvestantil
Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði áfram mild suðaustlæg átt í dag og nokkuð hvasst suðvestantil, en hægari vindur í öðrum landshlutum.

Mild austanátt en hvassviðri sunnantil
Lægð suðvestur af landinu beinir nú til okkar mildri austan- og suðaustanátt og má gera ráð fyrir að víða verði strekkingsvindur en hvassviðri með suðurströndinni.

Rauðar tölur um allt land
Lægðin sem liggur skammt suður af landinu kemur með milt loft og er hitastigið víða komið upp í núll til sjö stig núna í morgunsárið. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu vöknuðu upp við hvíta jörð í morgun.

Reikna með að frostið bíti í kinnar í norðannæðingi
Veðurstofan gerir ráð fyrir að það muni bæta í vind á landinu þegar gangi í norðan átta til fimmtán metra á sekúndu og hvassara í vindstrengjum suðaustantil síðdegis.

Útlit fyrir norðanátt í dag og talsverðum kulda
Útlit er fyrir norðanátt á landinu í dag – ýmist golu eða kalda og stöku éljum – en björtum köflum sunnan heiða og er ekki búist við úrkomu á þeim slóðum.

Hægir vindar og él á víð og dreif
Allmikil lægð skammt norðaustur af Jan Mayen hreyfist nú norður og önnur, sem er heldur veigaminni og djúpt suður í hafi, hreyfist til norðausturs. Þessar tvær lægðir stjórna veðri í dag, en þar sem þær eru fjarri landi eru vindar hægir og dálítli él á víð og dreif.

Stormur suðaustantil og slyddu- eða snjóél víða um land
Yfir Austurlandi er nú djúp og víðáttumikil lægð á hreyfingu austur og gengur í kjölfarið í vestanhvassviðri eða -storm suðaustantil. Annars verður hægari norðvestlæg átt og slyddu- eða snjóél víða um landið.

Gul viðvörun vegna hríðar
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna vestan- og norðvestan hríðar á morgun.

Lægir og dregur víðast úr vætu þegar líður á daginn
Lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu á landinu í dag en nú í morgunsárið er allhvöss sunnanátt á landinu og talsverð rigning sunnan- og vestanlands. Þó er úrkomulítið um landið norðaustanvert.

Bjart og kalt í morgunsárið
Nú í morgunsárið er bjart og kalt veður víða á landinu að því sem fram kemur í textalýsingu Veðurstofunnar. Í dag nálgast lægð úr suðvestri og eftir hádegi er búist við að hægt vaxandi suðlægri átt og að það muni hlýna smám saman.

Víða vindur á landinu
Hæð yfir Grænlandi og lægð við Noreg beina norðlægri átt að Íslandi í dag. Þetta kemur fram í textalýsingu Veðurstofunnar.

Hiti rís upp frá nýju hrauni og myndar bólstra í lofti
Ef litið er frá höfuðborgarsvæðinu í átt að Reykjanesinu má í dag sjá röð skúraskýja frá nýju hrauni við Sundhnúkagíga og út á sjó.

Snjóar norðantil og hvessir allhressilega
Djúp lægð skammt vestur af landinu þokast nú til suðvesturs og kemur smálægð úr norðaustri í kjölfar hennar. Veðurstofan gerir ráð fyrir að það snjói um norðanvert landið í dag og hvessi allhressilega norðvestantil.

Breytileg átt og einhver úrkoma
Veðurstofan gerir ráð fyrir breytilegri átt í dag þar sem vindur verður á bilinu átta til fimmtán metrar á sekúndu. Víða má búast við einhverri úrkomu.

Lægðabraut yfir landinu færir með sér skúr og rigningu
Spáð er suðlægri vindátt í dag, 3 til 10 metrum á sekúndu með skúrum, en að mestu bjart norðaustantil. Suðaustan 8 til 13 metrar á sekúndu og rigning sunnan- og vestanlands í kvöld.

Þrettán til tuttugu metrar á sekúndu
Í dag er spáð austan og suðaustan 13 til 20 metrum á sekúndu með rigningu eða súld og hita á bilinu 2 til 8 stig sunnantil. Norðanlands verður hægari vindur, úrkomulítið og frost 0 til 5 stig, en þar hlýnar þegar líður á daginn.