Veður
18 19 20 21 22 23 24 25 26 … 44 ›
Éljagangur en léttskýjað norðaustanlands Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag, yfirleitt á bilinu átta til þrettán metrum á sekúndu, og má reikna með éljagangi en léttskýjuðu norðaustanlands. Veður 15.2.2023 07:02
Vestanátt, skúrir og síðar él en bjart norðaustantil Eftir hlýja og blauta sunnanátt gærdagsins verður vindur heldur vestanstæðari í dag og yfirleitt á bilinu átta til þrettán metrar á sekúndu. Veður 14.2.2023 07:29
Sunnan hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Landsmenn mega reikna með sunnan hvassviðri eða stormi í dag Rigning verður um sunnan- og vestanvert landið en yfirleitt þurrt norðan- og austanlands. Veður 13.2.2023 07:13
Allhvöss sunnanátt, rigning og má reikna með vatnselg á götum Veðurstofan spáir allhvassri sunnanátt með rigningu eða slyddu um sunnan- og vestanvert landið í dag, en slyddu eða snjókomu fyrir norðan fram eftir degi. Veður 10.2.2023 07:10
Hlánun í fyrramálið og talsvert um vatnselgi Snemma í fyrramálið mun hlána nokkuð hratt með rigningu og þá mun nýr snjór bráðna auðveldlega. Snjóa á víðast hvar um landið í nótt og mun nýi snjórinn bráðna auðveldlega. Veður 9.2.2023 10:51
Útlit fyrir skaplegt verður eftir hádegi en hvessir í kvöld Veðurstofan gerir ráð fyrir að það dragi úr vindi og úrkomu með morgninum og að útlit sé fyrir skaplegasta veður á landinu um og eftir hádegi. Vindur verði ekki nema suðvestan fimm til þrettán metrar á sekúndu seinni partinn, þurrt um allt land og hiti um eða undir frostmarki. Veður 9.2.2023 07:11
Víða éljagangur og hvasst suðvestantil Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan fimm til þrettán metrum á sekúndu í dag en heldur hvassara við suður- og suðvesturströndina. Veður 8.2.2023 06:58
„Seinasta sem við viljum er að vera úlfur, úlfur týpan“ Von er á vonskuveðri og almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi á landinu öllu í fyrramálið. Appelsínugular viðvaranir verða í gildi alls staðar nema á Vestfjörðum í fyrramálið. Fólk er hvatt til þess að fylgjast vel með og reyna eftir fremsta megni að fresta ferðum sínum á meðan veðrið gengur yfir. Veður 6.2.2023 23:10
Appelsínugular viðvaranir gefnar út fyrir nær allt land Veðurstofan hefur gefið út appelsínugular viðvaranir vegna sunnan eða suðvestan storms sem skellur á landið í fyrramálið. Veður 6.2.2023 10:17
Suðvestanátt með éljum í dag og hvessir á morgun Reikna má með suðvestanátt með éljum í dag en björtu með köflum á norðaustanverðu landinu. Það mælist enn allt að tíu stiga hiti á Austfjörðum nú í morgunsárið en hitastig fer lækkandi í dag og verður í kringum frostmark seinnipartinn. Veður 6.2.2023 07:13
Guli liturinn tekur yfir landið á þriðjudag Gul veðurviðvörun verður í gildi á öllu landinu á þriðjudaginn milli klukkan sjö um morgun og sex að kvöldi til. Veður 5.2.2023 15:59
Gular viðvaranir enn og aftur á morgun Gular viðvaranir verða í gildi alls staðar á landinu á morgun nema á Suðausturlandi og suðvesturhorninu. Búist er við talsverðri rigningu á Breiðafirði í nótt og á morgun. Veður 4.2.2023 13:24
Aldrei jafn kalt í janúar á þessari öld Janúarmánuðurinn sem var að líða er sá kaldasti á Íslandi á 21. öldinni. Þá hafa ekki verið færri sólskinsstundir í Reykjavík síðan árið 1977. Aðeins 2,5 sólskinsstundir mældust á Akureyri í janúar. Veður 4.2.2023 11:00
Reikna með hviðum að 45 metrum undir Eyjafjöllum og Kjalarnesi Gert er ráð fyrir snörpum hviðum allt að 40 til 45 metra á sekúndu í suðaustanátt undir Eyjafjöllum og á utanverðu Kjalarnesi nærri hádegi í dag. Veður 3.2.2023 08:49
Gengur í hvassviðri eða storm Þó að það sé tiltölulega rólegt veður á landinu nú morgunsárið þá varir það ekki lengi. Það mun ganga í suðaustan og sunnan hvassviðri eða storm þegar líður á daginn. Órólegt veður er í kortunum. Veður 3.2.2023 06:58
Von á stormi á morgun og fleiri gular viðvaranir gefnar út Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir landið allt á morgun vegna suðaustan hvassviðris eða storms. Gular viðvaranir eru nú í gildi eða hafa verið gefnar út fyrir landið allt. Veður 2.2.2023 10:42
Hvassviðri, gular viðvaranir og önnur lægð á leiðinni Útlit er fyrir austan og suðaustan hvassviðri eða storm á landinu í dag. Það verður úrkoma um allt land og víða á formi slyddu eða snjókomu og hiti verður kringum frostmark. Gular viðvaranir hafa þegar tekið eða munu taka gildi á næstu klukkustundum um nær allt land og eru þær í gildi fram á kvöld eða nótt. Einungis höfuðborgarsvæðið er undanskilið hvað viðvaranir Veðurstofu varðar. Veður 2.2.2023 07:15
Gefa út gular viðvaranir fyrir nær allt landið Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir nær allt landið á morgun vegna hvassviðris eða storms og hríðar. Fyrstu viðvaranirnar taka gildi snemma í fyrramálið og gilda einhverjar fram á kvöld. Veður 1.2.2023 11:06
Hvessir í kvöld og má búast við stormi til fjalla á morgun Útlit er fyrir norðaustan fimm til tíu metra á sekúndu og él á Norður- og Austurlandi í dag. Reikna má með hægari vindi og nokkuð björtu veðri sunnan heiða. Frost verður á bilinu núll til sjö stig. Veður 1.2.2023 07:14
Reikna með hviðum að 55 metrum á sekúndu Veður fer hratt versnandi á Suðurlandi upp úr hádegi. Í Mýrdal og undir Eyjafjöllum verður ofsaveður og má reikna með hviðum, 40 til 55 metrum á sekúndu, milli klukkan 14 og 18 í dag og litlu síðar í Öræfum. Veður 30.1.2023 08:05
Djúp lægð skellur á landið eftir hádegið Ört dýpkandi lægð nálgast nú landið úr suðvestri og má því reikna með vaxandi austanátt, 18 til 25 metrum á sekúndu síðdegis og víða snjókoma. Hvassara verður syðst á landinu fram á kvöld með talsverðri ofankomu. Veður 30.1.2023 07:34
Tólf veðurviðvaranir næstu tvo daga Appelsínugular og gular veðurviðvörunum ráða ríkjum á morgun og hinn á meirihluta landsins. Búist er við snjókomu sums staðar ásamt stormi og lélegu skyggni víða. Veður 29.1.2023 10:49
Slydda eða snjókoma verður að rigningu Spáð er sunnan 8 til 15 metrum á sekúndu og slyddu eða snjókomu í dag en það hlýnar með rigningu víða um land. Úrkomumest verður á Suður- og Vesturlandi en fram eftir morgni má búast við snjókomu fyrir norðan. Hiti 2 til 7 stig eftir hádegi í dag með hægari suðvestanátt síðdegis og kólnar smám saman með skúrum og síðar slydduéljum. Veður 28.1.2023 07:59
Vestlæg átt og sums staðar stormur Veðurstofan gerir ráð fyrir vestlægri átt í dag, hvassviðri og sums staðar stormi. Reikna má með slydduéljum eða éljum en dregur svo úr ofankomu þegar líður á daginn. Veður 27.1.2023 07:11
Gulu viðvaranirnar ætla engan enda að taka Þær gulu eru mættar á ný um land allt. Því miður er ekki átt við sólina í þetta sinn. Gular viðvaranir hafa verið birtar fyrir meirihluta landsins og ganga þær yfir í dag og á morgun. Veður 26.1.2023 15:36
Enn ein lægðin eys úrkomu úr sér sunnan- og vestantil Nú er enn ein lægðin að ausa úrkomu úr sér um landið sunnan- og vestanvert, en úrkomulítið er fyrir norðan og austan. Veður 26.1.2023 07:10
Vaxandi sunnanvindur og hlýindi og rigning á morgun Norðvestanátt er á landinu nú í morgunsárið, strekkingur eða allhvöss að styrk, en hvassari vindstrengir á Austfjörðum fram eftir morgni. Gul viðvörun er í gildi á Austfjörðum til klukkan 10. Veður 25.1.2023 07:12
Gul viðvörun á Austfjörðum í fyrramálið Gul veðurviðvörun verður á Austfjörðum í fyrramálið frá klukkan sex til klukkan tíu. Búist er við sterkum vindi þann tíma. Veður 24.1.2023 15:34
Útlit fyrir áframhaldandi umhleypingar út vikuna Útlit er fyrir suðvestan fimm til þrettán metrum á sekúndu með skúrum í dag, en þegar líður á daginn léttir til austanlands. Reikna má með að hiti verði á bilinu tvö til sjö stig. Veður 24.1.2023 07:23
Bjart og kalt í dag og von á næstu lægð í kvöld Veðurstofan reiknar með strekkingssuðvestanátt norðantil á landinu fram eftir morgni, en að annars megi búast við hægum vindi í dag. Bjart veður og kalt. Veður 23.1.2023 06:55