Veður

Norður- og Austurland sleppa við rigninguna
Suðaustlæg eða breytileg átt, skýjað og úrkomulítið í dag, en norðaustan strekkingur og rigning á Vestfjörðum.

Stormur syðst og allt að 35 metrar í hviðum
Hvasst verður víða um land í dag. Spáð er allhvassri eða hvassri austanátt, sums staðar stormi syðra og víða rigningu, talsveðri um tíma, einkum suðaustanlands.

Gular viðvaranir sunnanlands og á Vestfjörðum
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir Vestfirði, Suðurland og Suðausturland vegna hvassviðris og rigningar.

Spá miklu hvassviðri víða um land á morgun
Veðurstofan spáir austan strekkingi við suðurströndina í dag, tíu til fimmtán metrum á sekúndu, en annars hægari vindi. Víða verður léttskýjað um vestanvert landið, en skýjað og sums staðar smáskúrir eða él austanlands.

Dálítil rigning syðst og stöku él norðaustantil
Veðurstofan spáir norðaustlægri átt í dag, yfirleitt golu eða kalda og þurru veðri, en dálítilli rigningu syðst og stöku éljum norðaustantil.

Norðlæg átt og rigning með köflum fyrir norðan
Veðurstofan spáir norðlægum áttum í dag, tíu til átján metrum á sekúndu og rigning með köflum eða súld fyrir norðan, en þurrt að kalla sunnan heiða. Heldur hvassara verður við fjöll norðvestanlands og á Suðausturlandi.

Norðanáttin allsráðandi á næstunni
Spáð er norðaustan strekkingi eða allhvössum vindi, tíu til átján metrum, fyrripart dags og víða rigningu í dag. Hvassast verður í vindstrengjum á vestanverðu landinu. Hins vegar dregur úr vindi síðdegis og rofar þá til sunnanlands.

Lægðin ekki dauð úr öllum æðum
Lægðin sem olli illviðrinu í gær er nú stödd við Snæfellsnes, en hefur grynnst mikið. Lægðin er þó ekki dauð úr öllum æðum og í dag veldur hún sunnan- og suðvestan strekkingi á landinu með skúrum eða slydduéljum.

Spá ofsaveðri norðvestantil og viðvaranir í gildi á stærstum hluta landsins
Spáð er norðvestanhríð norðan- og vestanlands í dag, en stórhríð á Ströndum og Vestfjörðum og rok eða jafnvel ofsaveður við Breiðafjörð. Appelsínugular viðvaranir taka gildi á Breiðafirði, Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra í dag og gilda fram á kvöld. Einnig er búið að gefa út gular viðvaranir víða annars staðar.

Hvöss norðanátt með slyddu eða snjókomu fylgir krappri lægð
Kröpp lægð þokast nú til vesturs fyrir norðan land og fylgir henni hvöss norðanátt með slyddu eða snjókomu norðvestantil á landinu. Gular viðvaranir eru í gildi Á Breiðafjarðarsvæðinu, Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra. Seint í dag dregur þó úr vindi og úrkomu.

Gular veðurviðvaranir norðvestantil
Veðurstofan hefur gefið út gular veðurviðvaranir á Breiðarfjarðarsvæðinu, Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra vegna norðan hríðar.

Væta á köflum um sunnanvert landið
Reikna má með vætu á köflum um landið sunnanvert í dag en úrkomuminna fyrir norðan. Fremur svalt í veðri. Austlæg og norðaustlæg átt í dag, fimm til þrettán metrar á sekúndu og allvíða skúrir eða slydduél, en dálítil rigning suðaustanlands.

Bætir í suðaustanáttina og rigning sunnan- og vestantil
Það bætir í suðaustanáttina með morgninum, átta til fimmtán metrum á sekúndu, og má reikna með rigningu bæði sunnan- og vestantil. Þurrt verður að mestu um landið norðanvert fram undir kvöld og sums staðar slydda á fjallvegum.

Skúrir eða slydduél í flestum landshlutum
Lægðin sem olli óveðri á landinu í gær er nú komin austur fyrir Jan Mayen, en nú í morgunsárið mælist enn hvassviðri úti við norðausturströndina. Þar dregur úr vindi á næstu klukkustundum.

Landsmenn varaðir við ónauðsynlegum ferðalögum
Appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi víðast hvar á landinu, nema á Norðurlandi og í Breiðafirði þar sem gular viðvaranir eru í gildi. Um er að ræða aðra haustlægðina sem gengur yfir landið. Búast má við miklum vindum og snörpum vindhviðum, einkum við fjöll og háhýsi og fólk varað við því að ferðast milli landshluta.

Gular viðvaranir fyrir landið allt vegna djúprar og öflugrar lægðar
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir allt landið ef frá er talið höfuðborgarsvæðið á morgun, þriðjudag. Í fyrramálið er von á djúpri og öflugri lægð að landinu.

Getur farið yfir 30 metra á sekúndu í hviðum
Lægð, sem í morgun var úti á Faxaflóa, er nú á leið norðaustur yfir landið. Henni fylgir vestan og norðvestan átta til fimmtán metrar, en í vindstrengjum nærri suðurströndinni mun vindstyrkurinn verða fimmtán til 23 metrum sekúndu upp úr hádegi og yfir þrjátíu í hviðum.

Von á næstu haustlægð í kvöld
Í dag er spáð vestan og suðvestan 3 til 10 metrar á sekúndu, skýjað með köflum og stöku skúrum en sunnan 8 til 13 og bjartviðri fram eftir degi á Austurlandi. Hiti 7 til 13 stig, hlýjast austanlands.

Lægð nálgast úr suðaustri
Landsmenn mega reikna með vestan- og norðvestan golu í dag og sums staðar vætu, einkum fyrir austan, en þurrt að kalla á suðvestanverðu landinu. Hiti veður sjö til fjórtán stig yfir daginn, hlýjast austantil og svalast á Vestfjörðum.

Allt að sautján stiga hiti fyrir norðan
Landsmenn mega búast við suðlægri átt í dag, átta til þrettán metrum á sekúndu og víða rigningu, en úrkomlítið á Norðausturlandi. Hiti verður á bilinu tíu til sautján stig, hlýjast fyrir norðan.

Vætusamir dagar framundan
Fremur vætusamt verður næstu daga og mun rigna í öllum landshlutum, þó mismikið og ekkert endilega á sama tíma heldur og eins munu koma kaflar þar sem dagpartar verða alveg þurrir.

Suðvestanátt og skúrir en strekkingsvindur á köflum
Reikna má með suðvestanátt og skúrir á sunnan- og vestanverðu landinu í dag, með strekkingsvindi á köflum, en allvíða bjartviðri norðaustantil.

Minnkandi sunnanátt og skúrir seinni partinn
Búast má við heldur minnkandi sunnanátt í dag, átta til fimmtán metrum á sekúndu og skúrir seinni partinn en þurrt að kalla norðaustanlands.

Ekkert ferðaveður í kvöld
Gul viðvörun tekur gildi víðast hvar á landinu síðdegis í dag. Búast má við hvössum vindum og mikilli úrkomu í þessari fyrstu haustlægð og fólk er hvatt til að huga vel að lausamunum utanhúss áður en veðrið skellur á af fullum krafti.

Ekkert ferðaveður á morgun: Gul viðvörun í gildi víða næstu daga
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna hvassrar suðvestanáttar sem mun herja á landsmenn á suður og vesturhluta landsins annað kvöld og fram á mánudag.

Gular viðvarnir gefnar út vegna leifa fellibylsins Larry
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna hvassrar suðvestanáttar sem mun herja á landsmenn á suður og vesturhluta landsins á sunnudagskvöld og fram á mánudag.

Lítilsháttar skúrir víða um land
Spáð er suðvestan og vestan fimm til tíu metrum á sekúndu í dag og lítilsháttar skúrir víða um land. Suðaustantil á landinu verður hins vegar yfirleitt þurrt og bjart, og það léttir einnig til á Vestfjörðum með morgninum.

Víða bjart en skýjað með köflum suðvestantil
Reikna má með suðvestlægri eða breytilegri átt í dag með golu eða kalda víða og björtu veðri, en skýjuðu með köflum um landið suðvestanvert.

Frysti í byggð í fyrsta skipti í tvo mánuði
Það gengur í strekkings suðvestanátt norðvestantil á landinu, en annars verður vindur hægari. Frekar þungbúið verður vestantil á landinu með lítilsháttar vætu öðru hverju, en léttara yfir fyrir austan og þurrt. Hiti verður á bilinu tíu til fimmtán stig að deginum.

Hiti að fimmtán stigum og rólegt veður í kortunum næstu daga
Rólegt veður er í kortunum næstu daga, með fremur hægum vindi, suðvestlægri eða breytilegri átt og lítilli úrkomu.