
Viðskipti erlent

Finnskur banki kaupir fyrrum fjármálafyrirtæki Glitnis
Finnski bankinn S-Pankki hefur fest kaup á fjármálafyrirtækinu FIM sem eitt sinn var í eigu Glitnis.

Messuvín er á þrotum í Venesúela
Kaþólska kirkja í Venesúela hefur sent frá sér skilaboð um að messuvín sé á þrotum í landinu vegna skorts á ýmsum birgðum til að framleiða það.

Útlánatap danskra banka í kreppunni nemur 3.700 milljörðum
Útlánatap danskra banka frá því að fjármálakreppan skall á árið 2008 nemur 174 milljörðum danskra kr. eða um 3.700 milljörðum kr. Upphæðin er á við rúmlega tvöfalda landsframleiðslu Íslands.

Disneyferð forstjóra Iceland kostar nær hálfan milljarð í skatt
Boðsferð Malcolm Walker forstjóra Iceland keðjunnar á Bretlandseyjum til Disneyland í Flórída ætlar að verða honum dýrkeypt. Breski skatturinn hefur krafið hann um 2,5 milljónir punda eða tæplega 470 milljónir kr.

Peningaþvætti sem nemur 750 milljörðum
Bandaríska netbankanum Liberty Reserve hefur verið lokað en talið er að hann hafi stundað umsvifamikið peningaþvætti sem nemur tæpum 750 milljörðum íslenskra króna.

Snjallsímaloftnetin misgóð
Fjarskiptaeftirlitsstofnanir Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hafa með bréfi til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins farið fram á að innleiddar verði merkingar á farsímtækjum með tilliti til hæfni þeirra til að nema merki frá fjarskiptasendum.

Grænar tölur vestan og austan hafs en rauðar á Íslandi
Helstu vísitölur á Wall Street hafa hækkað töluvert eftir að markaðir voru opnaðir þar fyrir stundu. Þessar hækkanir koma í kjölfar hækkana á Evrópumörkuðum. Hér heima eru hinsvegar rauðar tölur í gangi í Kauphöllinni.

Hlutabréf hækka í Evrópu en lækka á Íslandi
Hlutabréf hafa hækkað í flest öllum kauphöllum í Vestur Evrópu í dag. Hinsvegar hefur útvalsvísitalan í Kauphöllinni hér heim lækkað aðeins.

Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar að nýju
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur farið hækkandi frá því í gærdag. Tunnan af Brent olíunni er komin í tæpa 104,5 dollara og hefur hækkað um tæp 2% síðasta sólarhringinn. Bandaríska léttolían hækkar ekki eins mikið. Tunnan af henni hefur hækkað um tæpt prósent frá í gær og stendur í tæpum 95 dollurum.

Aldraðir í Hollandi reiðir vegna skerðinga á lífeyrisgreiðslum
Mikil reiði ríkir meðal aldraða í Hollandi vegna þess að lífeyrissjóðir landsins hafa skorið niður lífeyrisgreiðslur sínar að skipan seðlabanka landsins.

Eigandi IKEA vinnur enn fullan vinnudag orðinn 87 ára gamall
Ingvar Kamprad stofnandi og eigandi IKEA vinnur enn fullan vinnudag þótt hann sé orðinn 87 ára gamall.

Um 6% sumarhúsa í Svíþjóð í eigu útlendinga
Um 6% allra sumarhúsa í Svíþjóð eru í eigu útlendinga. Þetta er tvöfalt hærra hlutfall en það var um aldamótaskiptin.

Spá ítrekað rangt til um hagvöxt í Danmörku
Dönsk stjórnvöld hafa ítrekað spáð rangt um hagvöxt í landinu á undanförnum árum.

Kínverjar lækka tolla á svissneskum úrum í fríverslunarsamningi
Kínverjar munu lækka tolla á svissneskum úrum um allt að 60% á næstu tíu árum. Þetta er meðal atriða í fríverslunarsamningi milli þjóðanna sem undirrita á í júlí.

Dreamliner þotur aftur komnar á loft í Japan
Dreamliner þotur eru aftur komnar á loft í Japan, í fyrsta sinn síðan í janúar þegar allar Dreamliner þotur í heiminum voru kyrrsettar vegna bilunar í rafgeymum þeirra.

Mettap hjá Formúlu 1 liðinu Lotus
Formúlu 1 liðið Lotus tapaði 56,8 milljónum punda eða yfir 10,5 milljörðum króna á síðasta ári. Þetta er mest tap einstaks liðs í sögu Formúlu 1 keppninnar.

Danskir ellilífeyrisþegar eru orðnir yfir milljón talsins
Danir náðu þeim áfanga um síðustu áramót að fjöldi ellilífeyrisþega þar í landi fór yfir eina milljón einstaklinga.

Dómsdags fjárfestar veðja á stórt markaðshrun
Hlutabréf hafa hækkað svo mikið í verði það sem af er þessu ári að fjárfestar eru í auknum mæli farnir að veðja á að markaðurinn hrynji og það í stórum stíl.

Geimflaugaskotpallur NASA til leigu í Flórída
Einn af geimflaugaskotpöllum NASA, Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna, á Canaveral höfða í Flórída er til leigu. Um sögufrægan skotpall er að ræða því hann var notaður til að skjóta á loft fyrstu mönnuðu geimflaugunum sem fóru til tunglsins.

Dýrasta íbúðarhús heims til sölu á 23 milljarða
Dýrasta íbúðarhús heimsins er til sölu en verðmiðinn á því er 190 milljónir dollara eða ríflega 23 milljarða króna.

Ónýt lán upp á 1.600 milljarða ógna spænskum bönkum
Spænskir bankar munu tapa um 10 milljörðum evra, eða um 1.600 milljörðum kr., vegna ónýtra eða lélegra útlána á árinu.

Stærsti hluturinn úr Lego kubbum, X-Wing geimskip á Times Square
Stærsti hlutur sem búinn hefur verið til með Lego kubbum er nú til sýnis á Times Square í New York.

Niðursveiflan á alþjóðamörkuðum nær til Wall Street
Niðursveiflan á alþjóðamörkuðum náði einnig til Wall Street þegar þar var opnað fyrir viðskiptin klukkan tvö að okkar tíma.

Dýrasti Aston Martin bíll sögunnar seldur á 600 milljónir
Aston Martin DB4 GT var nýlega seldur á yfir 3,2 milljónir punda eða um 600 milljónir kr. á uppboði hjá Bonhams. Þetta er þar með dýrasti Aston Martin bíll sögunnar.

Ný Xbox kynnt til sögunnar
Microsoft kynnti nýju vélina, Xbox One, til sögunnar í Redmond, Washington í vikunni.

Niðursveifla á flestum mörkuðum í Evrópu
Niðursveifla er á flest öllum Evrópumörkuðum þennan morguninn og fylgja þeir þar með í fótspor markaða í Asíu í nótt.

Angela Merkel er áfram valdamesta kona heimsins
Angela Merkel kanslari Þýskalands er áfram valdamesta kona heimsins. Þetta kemur fram á árlegum lista Forbes tímaritsins um 100 valdamestu konurnar. Merkel var einnig á toppi listans í fyrra.

Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar töluvert
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað töluvert eða um tæp 2% frá því í gærdag.

Hrun á hlutabréfamörkuðum í Japan í nótt
Hrun varð á hlutabréfamörkuðum í Japan í nótt. Nikkei vísitalan í Tókýó féll um yfir 7%.

ESB útvíkkar rannsókn sína á olíusamráðinu
Samkeppnisyfirvöld innan Evrópusambandsins hafa útvíkkað rannsókn sína á meintu samráði um skráð heimsmarkaðsverð á olíu hjá þremur af stærstu olíufélögum Evrópu og ráðgjafafyrirtækisins Platts.